Fram í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Framarar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Val. Fótbolti 25. janúar 2023 21:11
Willum á skotskónum í Hollandi Willum Þór Willumsson skoraði mark Go Ahead Eagles sem tapaði 4-1 gegn AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mark Willums kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Fótbolti 25. janúar 2023 20:04
Nýttu sér vesenið hjá Everton og stálu Danjuma Arnaut Danjuma gekk í dag til liðs við Tottenham á láni frá spænska félaginu Villareal. Brotthvarf Frank Lampard frá Everton gerði það að verkum að félagið missti af leikmanninum. Enski boltinn 25. janúar 2023 18:16
Gunnhildur Yrsa komin heim í Stjörnuna Landsliðskonan margreynda Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Gunnhildur Yrsa kemur til Stjörnunnar frá bandaríska liðinu Orlando Pride. Fótbolti 25. janúar 2023 17:37
Einn besti kylfingur heims dolfallinn yfir golfhæfileikum Bales Jon Rahm, sem er í 3. sæti heimslistans í golfi, var dolfallinn yfir golfhæfileikum Gareths Bale eftir að spila níu holur með Walesverjanum á dögunum. Golf 25. janúar 2023 17:00
„Ekki upplifað svona blóðuga viku á Ítalíu síðan 2006“ „Við höfum ekki upplifað svona blóðuga viku á Ítalíu síðan 2006, Calciopoli-skandalinn,“ segir Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska fótboltann, en hneykslismálið sem skekur ítalskan fótbolta þessa dagana var rætt í þaula í nýjasta þættinum af Punkti og basta. Fótbolti 25. janúar 2023 16:02
Guðný lagði upp dýrmætt mark fyrir Milan Guðný Árnadóttir átti stóran þátt í 1-0 sigri AC Milan á útivelli gegn Fiorentina í Íslendingaslag í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Fótbolti 25. janúar 2023 15:32
Sló hraðamet ensku úrvalsdeildarinnar strax í fyrsta leik Nýr leikmaður Chelsea var ekki lengi að koma sér í metabækur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Enski boltinn 25. janúar 2023 14:30
Kolbeinn frá Dortmund til Freys Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Birgir Finnsson er orðinn fjórði Íslendingurinn í herbúðum danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby en félagið fékk hann frá þýska stórliðinu Dortmund. Fótbolti 25. janúar 2023 11:22
Leggur skóna á hilluna fyrir 24 ára afmælið sitt Ingimundur Aron Guðnason mun ekki spila með Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 25. janúar 2023 10:30
Liverpool leiðir kapphlaupið um Bellingham Þrátt fyrir áhuga frá stórliðum á borð við Manchester City og Real Madrid leiðir Liverpool kapphlaupið um að kaupa enska miðjumanninn Jude Bellingham frá Borussia Dortmund. Enski boltinn 25. janúar 2023 07:01
Bregðast við löngum samningum Chelsea og breyta fjárhagsreglunum Evrópska knattspyrnusambandið UEFA mun bregðast við löngum samningum enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea með því að gera breytingu á fjárhagsreglum sambandsins, FFP (e. Financial Fair Play). Enski boltinn 24. janúar 2023 23:31
Viðurkennir að leikmenn hafi svindlað á Covid-prófum á Afríkumótinu Said All Said Athouman, forseti knattspyrnusambands Kómoreyja, viðurkennir að leikmenn hafi svindlað á kórónuveiruprófum fyrir leik liðsins gegn Gana á Afríkumótinu í fótbolta sem haldið var í Kamerún fyrir tveimur árum. Fótbolti 24. janúar 2023 23:00
Sierra Lelii gengin til liðs við Þrótt á ný Bandaríska knattspyrnukonan Sierra Marie Lelii er gengin til liðs við Þrótt og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu-deild kvenna. Fótbolti 24. janúar 2023 22:32
Newcastle komið hálfa leið í úrslit Newcastle vann góðan 1-0 sigur er liðið heimsótti Southampton í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í enska deildarbikarnum í knattspyrnu í kvöld. Enski boltinn 24. janúar 2023 21:59
Lazio valtaði yfir meistarana og stökk upp í þriðja sæti Lazio vann afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Ítalíumeisturum AC Milan í stórleik nítjándu umferðar ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fótbolti 24. janúar 2023 21:39
Þýsku meistararnir misstigu sig annan leikinn í röð Þýskalandsmeistarar Bayern München björguðu stigi er liðið tók á móti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, lokatölur 1-1. Þetta er annar deildarleikurinn í röð sem Bayern tapar stigum og því óhætt að segja að liðið fari hægt af stað eftir langt jóla og HM-frí. Fótbolti 24. janúar 2023 21:25
Gunnhildur og eiginkonan yfirgefa Orlando Pride Knattspyrnukonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur yfirgefið herbúðir Orlando Pride þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár. Fótbolti 24. janúar 2023 21:09
Moshiri setur Everton á sölu og vill tæpa níutíu milljarða fyrir félagið Farhad Moshiri, eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, hefur sett félagið á sölu. Moshiri er sagður vilja fá meira en hálfan milljarð punda fyrir Everton, en það samsvarar tæpum níutíu milljörðum íslenskra króna. Enski boltinn 24. janúar 2023 20:26
Tottenham að ræna Danjuma af Everton Þrátt fyrir að hafa gengist undir læknisskoðun hjá Everton síðastliðin laugardag virðist hollenski kantmaðurinn Arnaut Danjuma ætla að enda í herbúðum Tottenham. Enski boltinn 24. janúar 2023 19:15
Jökull fenginn á neyðarláni vegna meiðsla en leiknum frestað Markvörðurinn Jökull Andrésson skrifaði í dag undir sjö daga lánssamning við enska C-deildarliðið Exeter City. Jökull átti að bjarga Exeter út úr meiðslavandræðum, en leik liðsins sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað. Enski boltinn 24. janúar 2023 18:30
Nýhættur Bale tekur þátt á PGA-mótaröðinni Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Gareth Bale hefur tilkynnt að hann muni taka þátt í einum viðburði á PGA-mótaröðinni í golfi í byrjun næsta mánaðar. Golf 24. janúar 2023 17:45
Víkingar versluðu sér miðvörð í Mjóddinni Bikarmeistarar Víkings í fótbolta hafa fengið til sín ungan varnarmann sem félagið keypti frá ÍR. Sá heitir Sveinn Gísli Þorkelsson. Íslenski boltinn 24. janúar 2023 17:01
„Mýta að Tottenham hafi ekki stutt Conte“ Gary Neville segir það mýtu að Tottenham hafi ekki stutt við bakið á Antonio Conte á félagaskiptamarkaðnum. Enski boltinn 24. janúar 2023 16:31
Aftur til Akureyrar eftir níu ár og núna er hún landsliðsfyrirliði Tahnai Annis, 33 ára gamall miðjumaður frá Bandaríkjunum, mun spila með knattspyrnuliði Þórs/KA á komandi leiktíð eftir að hafa síðast spilað með liðinu sumarið 2014. Íslenski boltinn 24. janúar 2023 16:18
Zinchenko: Nú hlær enginn lengur að titildraumum Arsenal Oleksandr Zinchenko þekkir það vel að verða enskur meistari en hann kom til Arsenal í sumar eftir að hafa unnið enska titilinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum með Manchester City. Enski boltinn 24. janúar 2023 14:31
Thiago segir að leikmenn Liverpool séu enn að jafna sig eftir fernu-klúðrið í fyrra Stjörnumiðjumaður Liverpool heldur því fram að leikmenn Liverpool séu enn í sárum eftir að hafa misst af fernunni í fyrra. Enski boltinn 24. janúar 2023 13:31
Keflavík fær markvörð sem fékk varla á sig mark í Færeyjum Keflvíkingar hafa fundið markvörð til að fylla í skarðið sem Sindri Kristinn Ólafsson skildi eftir þegar hann gekk í raðir FH í vetur. Íslenski boltinn 24. janúar 2023 12:49
Þurftu að flytja Dani Alves á milli fangelsa af öryggisástæðum Dani Alves, fyrrum leikmaður Barcelona, dúsar í fangelsi þessa dagana eftir að hafa verið handtekinn fyrir nauðgun. Fótbolti 24. janúar 2023 10:01
Kvennalið Bayern auglýsir afrek karlanna á búningunum og Valur er í sömu stöðu Stjörnur á búningum kvennaliða eru til umræðu í Noregi eftir að eitt stærsta félag Noregs, Rosenborg, ákvað að breyta búningum sínum. Fótbolti 24. janúar 2023 08:31