Fótbolti

Evrópumeistararnir fá engar bónusgreiðslur á HM

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Eins og staðan er núna mun enska knattspyrnusambandið ekki greiða leikmönnum kvennalandsliðsins árangurstengdar bónusgreiðslur fyrir frammistöðu þeirra á HM.
Eins og staðan er núna mun enska knattspyrnusambandið ekki greiða leikmönnum kvennalandsliðsins árangurstengdar bónusgreiðslur fyrir frammistöðu þeirra á HM. Joe Prior/Visionhaus via Getty Images

Leikmenn enska kvennalandsliðsins í fótbolta furða sig á því að þær muni ekki fá neinar árangurstengdar bónusgreiðslur frá enska knattspyrnusambandinu, FA, út frá því hvernig liðinu gengur á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi sem hefst síðar í mánuðinum.

Leikmenn margra annarra þjóða munu fá greiddar árangurstengdar bónusgreiðslur að mótinu loknu, en eins og staðan er núna munu ríkjandi Evrópumeistarar Englands ekki fá neitt slíkt frá sínu knattspyrnusambandi. Leikmenn liðsins hefa þó átt í viðræðum við FA um málið.

Í fyrsta sinn í sögunni munu leikmenn á heimsmeistaramóti kvenna fá beinar greiðslur frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA fyrir þátttöku sína í mótinu. Leikmenn fá rúmar fjórar milljónir króna fyrir að taka þátt í riðlakeppninni og greiðslurnar hækka eftir því sem liðið kemst lengra á mótinu. Leikmenn sigurliðsins fá um 36,7 milljónir króna hver og knattspyrnusamband þeirrar þjóðar fær rúmar 590 milljónir króna í sinn hlut.

Áður hafði knattspyrnusamband hverrar þátttökuþjóðar fyrir sig fengið greiðslur frá FIFA, og samböndin gátu svo sjálf ákveðið hvernig peningunum yrði eytt og hversu mikið af þeim peningum yrðu nýttir í að greiða leikmönnum.

Leikmenn Evrópumeistara Englands höfðu fengið boð um bónusgreiðslur frá enska knattspyrnusambandinu, en nú þegar ákveðið hefur verið að leikmenn fái greitt beint frá FIFA virðist sambandið hafa tekið því sem svo að það kæmi í staðinn fyrir bónusgreiðslurnar.

Leikmenn enska landsliðsins eru ekki sáttir við þessa ákvörðun FA. Sambandið vilji vera leiðandi í mótun og framþróun kvennaknattspyrnu, en þarna falli það í skuggann á öðrum samböndum sem eru tilbúin að greiða leikmönnum sínum árangurstengdar bónusgreiðslur eins og m.a. Spánn, Ástralía og Bandaríkin munu gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×