Stóri Sam stýrði síðasta enska liðinu sem vann deildarleik á Anfield 23. apríl 2017. Þetta er dagsetningin á því hvenær Liverpool tapaði síðast leik á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 1. nóvember 2020 10:31
Donny vill spila meira Manchester United fékk Hollendinginn Donny van de Beek til félagsins í sumar frá Ajax en hann hefur ekki spilað rosalega mikið í upphafi tímabilsins. Enski boltinn 1. nóvember 2020 10:00
Moyes segir að Salah hafi kastað sér niður David Moyes, stjóri West Ham, var ekki hrifinn af vítaspyrnudómnum sem Liverpool fékk í 2-1 sigrinum á Hömrunum í gær. Enski boltinn 1. nóvember 2020 09:31
Árangurinn framar vonum og segir góðan vin sinn ástæðu þess að hann spili í dag Alexaner Aron Hannesson er í toppbaráttunni í úrvalsdeildinni í eFótbolta þar sem keppt er í tölvuleiknum FIFA. Hann hefur þó töluvert lengur haft áhuga á fótbolta sem er spilaður á grasi og taldi sig í raun ekki nægilega góðan til að taka þátt í úrvalsdeildinni. Sport 1. nóvember 2020 09:00
Elías Már gæti gefið Hamrén og Frey höfuðverk fyrir næsta landsliðshóp Elías Már Ómarsson hefur farið mikinn með liði Excelsior í hollensku B-deildinni á tímabilinu. Umræða hefur myndast hvort hann eigi að fá fleiri tækifæri með íslenska landsliðinu. Fótbolti 1. nóvember 2020 08:00
Dagskráin í dag: Íslendingaslagur á Spáni, Martin mætir Real, NFL og ítalski boltinn Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Um að gera að hlýða Víði og koma sér vel fyrir á sófanum og njóta dagsins heima. Sport 1. nóvember 2020 06:00
Bæði Kópavogsfélögin mæta með nýja þjálfara til leiks næsta sumar Kvennalið HK vann sér sæti í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu og mætir með nýjan þjálfara til leiks næsta sumar. Sömu sögu er að segja af Augnablik sem leikur í sömu deild. Íslenski boltinn 31. október 2020 23:16
Slæmt gengi Börsunga heima fyrir heldur áfram Slæmt gengi Börsunga heima fyrir virðist engan enda ætla að taka. Liðið gerði 1-1 jafntefli við Deportivo Alavés í kvöld. Fótbolti 31. október 2020 22:15
Sara Björk og Berglind Björg á skotskónum í Frakklandi Landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir voru á skotskónum í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Úrslit liða þeirra voru þó ekki þau sömu. Fótbolti 31. október 2020 22:00
Guðni segir sátt hafa ríkt með 1. des viðmiðið þegar það var gefið út Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld að mikil sátt hefði ríkt með 1. desember viðmiðið þegar það var gefið út í sumar. Þá skilur hann gremju félaganna sem töpuðu á ákvörðun KSÍ. Íslenski boltinn 31. október 2020 20:01
Skiptingar Klopp gerðu gæfumuninn | Liverpool jafnaði félagsmet Varamaðurinn Diego Jota var hetja Liverpool er liðið vann nauman 2-1 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Með því jafnaði Liverpool félagsmet yfir flesta heimaleiki án taps á heimavelli. Alls eru leikirnir orðnir 63 talsins. Enski boltinn 31. október 2020 19:40
Króatarnir björguðu stigi fyrir Inter Króatinn Ivan Perišić bjargaði stigi fyrir Inter Milan er liðið fékk Parma í heimsókn í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 2-2 sem gera lítið fyrir Inter í toppbaráttu deildarinnar. Fótbolti 31. október 2020 19:00
Sigur og sjálfsmark í fyrsta leik Daníels Leó Daníel Leó Grétarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Blackpool í ensku C-deildinni í dag. Varð hann fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 2-1 sigri liðsins. Þá kom Jón Daði Böðvarsson inn af varamannabekk Milwall í 0-1 tapi. Enski boltinn 31. október 2020 17:15
Chelsea með sannfærandi sigur gegn Jóhannslausum Burnley-mönnum Chelsea vann góðan sigur á Burnley á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag, 3-0. Jóhann Berg Guðmundsson spilaði ekki með Burnley vegna meiðsla. Enski boltinn 31. október 2020 16:50
Gnabry skoraði í endurkomunni | Hummels óvænt hetja Dortmund Bayern München og Borussia Dortmund eru jöfn á topp þýsku úrvalsdeildarinnar eftir leiki sína í dag. RB Leipzig gæti þó náð toppsætinu að nýju síðar í dag. Fótbolti 31. október 2020 16:46
Alfreð kom af bekknum og breytti leiknum Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason kom inn af varamannabekk Augsburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag og lagði upp annað mark liðsins í 3-1 sigir á Mainz 05. Fótbolti 31. október 2020 16:36
Fram og Magni taka undir með KR Stjórnir knattspyrnudeilda Fram og Magna hafa sent frá sér yfirlýsingu og líst yfir óánægju með ákvörðun KSÍ frá því í gær um að aflýsa mótinu. Íslenski boltinn 31. október 2020 16:22
Stefán Teitur greindist með kórónuveiruna Stefán Teitur Þórðarson, leikmaður Silkeborg, er einn þriggja leikmanna liðsins sem greindust með kórónuveiruna í dag. Fótbolti 31. október 2020 15:55
Hazard skoraði í öruggum sigri Real Madrid Real Madrid nær toppsætinu í spænsku deildinni vinni liðið Huesca á heimavelli sínum en gestirnir hafa enn ekki unnið leik á leiktíðinni. Fótbolti 31. október 2020 14:55
City með mikilvægan sigur á Sheffield Manchester City nældi sér í dýrmæt þrjú stig í dag með sigri á Sheffield United. Lokatölur í Sheffield 1-0 fyrir City. Enski boltinn 31. október 2020 14:25
Formaðurinn vill ekki tjá sig um fögnuð Leiknismanna Leiknir Reykjavík er komið upp í Pepsi Max deildina 2021 eftir að KSÍ tók ákvörðun um að blása Íslandsmótið í knattspyrnu af í gær, þar sem Leiknir var í öðru sæti þegar einungis tvær umferðir voru eftir af mótinu. Íslenski boltinn 31. október 2020 14:17
Segir að Rashford eigi að byrja á bekknum gegn Arsenal Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, segir að Ole Gunnar Solskjær eigi að byrja með Marcus Rashford á bekknum hjá Man Utd í leiknum gegn Arsenal á morgun. Enski boltinn 31. október 2020 13:31
KR ætlar að áfrýja ákvörðun KSÍ Stjórn Knattspyrnudeildar KR hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun KSÍ um að hætta keppni í Íslandsmótinu í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflu gilda. KR er það lið í Pepsi Max deildinni sem fer hvað verst út úr ákvörðuninni, enda þýðir hún að liðið muni ekki leika í Evrópukeppni næsta tímabil. Íslenski boltinn 31. október 2020 13:16
Þórólfur um fögnuð Valsmanna: Hópsýkingar geti komið upp við slíkar aðstæður „Mér finnst leitt að heyra að menn séu ekki að vanda sig meira,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, í um Íslandsmeistarafögnuð Valsmanna í gærkvöldi. Innlent 31. október 2020 11:37
Fyrirliða ÍBV sagt að hann sé ekki í framtíðarplönum liðsins Víðir Þorvarðarson, einn reynslumesti leikmaður ÍBV, fékk þau skilaboð í gær að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá liðinu. Íslenski boltinn 31. október 2020 11:30
Rúnar Alex segist þurfa að venjast rólegheitum í markinu hjá Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson spilaði sinn fyrsta leik í markinu fyrir aðallið Arsenal á fimmtudaginn þegar liðið mætti Dundalk í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Rúnar gekk til liðs við Arsenal í sumar eftir tvö ár með Dijon í Frakklandi. Enski boltinn 31. október 2020 11:01
Umdeildur fögnuður Valsmanna ekki með blessun formanns Leikmenn og starfsmenn meistaraflokks Vals í knattspyrnu fögnuðu Íslandsmeistaratitli sínum í Fjósinu, félagsheimili félagsins, í gærkvöldi. Svo virðist sem reglur um samkomubann hafi gleymst í fögnuði Valsmanna þar sem staðið var á stólum og sungið. Formaður Vals vissi ekki af hittingnum og segir hann ekki í anda félagsins. Fótbolti 31. október 2020 10:53
„Auðvitað munu alltaf einhverjir sitja eftir með sárt ennið“ KSÍ tók þá erfiðu ákvörðun í gær að flauta af Íslandsmótið í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflur gilda. Sú ákvörðun kemur sér misvel fyrir knattspyrnulið á Íslandi, sum þeirra njóta góðs af á meðan önnur sem sáu fram á að bæta stöðu sína með góðum lokaspretti sitja eftir í súpunni. Íslenski boltinn 31. október 2020 10:12
Ronaldo loksins laus við kórónuveiruna Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður seinni tíma og leikmaður Juventus, fékk loksins neikvætt veirupróf eftir þriggja vikna bið. Fótbolti 31. október 2020 09:31
Dagskráin í dag: Enski, ítalski, spænski og golf Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Um að gera að hlýða Víði og koma sér vel fyrir á sófanum og njóta dagsins heima. Sport 31. október 2020 06:01