Nýr landsliðsþjálfari byrjar á leik gegn Frökkum Fyrsti leikur nýs þjálfara íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta verður gegn ógnarsterku liði Frakka. Fótbolti 26. janúar 2021 11:16
Barcelona skuldar Liverpool ennþá meira en sex milljarða Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho er fyrir löngu kominn í hóp verstu kaupa fótboltasögunnar. Hann hefur lítið hjálpað Börsungum inn á vellinum og félagið er enn langt frá því að hafa gert upp við hans gömlu eigendur. Enski boltinn 26. janúar 2021 09:30
„Varð kyntákn á HM en nú skiptir hann um feril“ Danski miðillinn Berlingske, BT, gerði Rúrik Gíslason að umfjöllunarefni sínu fyrir helgi en þar fjallaði miðillinn um skipti Rúriks; úr fótboltanum yfir í sjónvarpsheiminn. Fyrir helgi var tilkynnt að Rúrik myndi taka þátt í þýska sjónvarpsþættinum Let’s Dance. Fótbolti 26. janúar 2021 07:00
Dagskráin í dag: Enski boltinn og Seinni bylgjan Þrjár beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í dag en þær eru úr heimi handboltans og fótboltans. Sport 26. janúar 2021 06:01
Biðja um hjálp stuðningsmanna við að borga laun Özils Mesut Özil er kominn til Tyrklands. Hann hefur samið við Fenerbache en hann kemur til félagsins frá Arsenal eftir rúmlega sjö ára veru. Í Tyrklandi þénar hann áfram vel og nú biður Fenerbache um hjálp frá stuðningsmönnum í dag. Fótbolti 25. janúar 2021 23:00
Mourinho hafði betur gegn hárfagra þungarokkaranum Tottenham er komið í sextán liða úrslit enska bikarsins eftir 4-1 sigur á B-deildarliðinu Wycombe. Í sextán liða úrslitunum verður mótherjinn Everton en leikurinn fer fram um miðjan febrúar. Enski boltinn 25. janúar 2021 21:45
Liverpool spurðist fyrir um Sokratis David Ornstein, blaðamaður The Athletic, greinir frá því að Liverpool hafi spurst fyrir um fyrrum varnarmann Arsenal, Sokratis, sem gekk í dag í raðir Olympiakos í Grikklandi. Enski boltinn 25. janúar 2021 21:31
Yfirlýsing Lampard: Þakklátur fyrir stuðninginn og stoltur af yngri leikmönnunum Frank Lampard, sem var í dag rekinn úr stjórastólnum hjá Chelsea, segist þakklátur fyrir tækifærið að stýra Chelsea og að hann vissi hversu stórt verkefni þetta var þegar hann tók við liðinu. Enski boltinn 25. janúar 2021 20:13
Forseti félagsins og fjórir leikmenn fórust Brasilíska fótboltafélagið Palmas varð fyrir miklu áfalli í gær þegar flugvél á vegum félagsins fórst. Fótbolti 25. janúar 2021 17:01
Segir að Benítez taki ekki aftur við Newcastle nema Ashley selji félagið Rafa Benítez tekur ekki aftur við Newcastle United meðan Mike Ashley er eigandi félagsins. Enski boltinn 25. janúar 2021 14:01
Ekki ásættanlegt að gera landsliðsþjálfarastarfið að hlutastarfi „Ég held að við værum ekki einu sinni að ræða þetta ef að um karlalandsliðið væri að ræða,“ segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ, um þá niðurstöðu að ráða ekki Elísabetu Gunnarsdóttur í starf landsliðsþjálfara samhliða starfi hennar sem þjálfari Kristianstad. Fótbolti 25. janúar 2021 12:54
Klopp: Ekki hafa áhyggjur af okkur Stuðningsmenn Liverpool eru margir hverjir að fara á taugum. Vandræði Englandsmeistaranna héldu áfram í gær með tapi á móti erkifjendunum og Liverpool hefur enn ekki unnið „alvöru“ lið á árinu 2021. Enski boltinn 25. janúar 2021 12:31
Chelsea staðfestir brottreksturinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur ákveðið að reka knattspyrnustjórann Frank Lampard eftir slælegt gengi í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 25. janúar 2021 11:37
Elísabet drullusvekkt með að verða ekki landsliðsþjálfari Ekkert verður af því að Elísabet Gunnarsdóttir taki við íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta. Samningaviðræður hennar og KSÍ sigldu í strand. Fótbolti 25. janúar 2021 11:25
Tuchel líklegastur til að taka við Chelsea Enskir fjölmiðlar greina frá því að Thomas Tuchel sé líklegastur til að taka við Chelsea af Frank Lampard sem verður sagt upp störfum hjá félaginu í dag. Enski boltinn 25. janúar 2021 10:48
Robertson reyndi að öskra Greenwood úr jafnvægi Andy Robertson greip til nokkuð óhefðbundis bragðs til að koma í veg fyrir að Mason Greenwood skoraði í leik Manchester United og Liverpool í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í gær. United vann leikinn, 3-2. Enski boltinn 25. janúar 2021 09:30
Celtic-hetjur minnast Jóhannesar Packie Bonner og Murdo Macleod eru meðal Celtic-hetja sem minnast Jóhannesar Eðvaldssonar sem lést í gær, sjötugur að aldri. Fótbolti 25. janúar 2021 09:00
Dagskráin í dag: Dominos-deild karla, FA-bikarinn og spænski boltinn Það er áhugaverður mánudagur framundan á Stöð 2 Sport. Við sýnum beint frá enska FA-bikarnum, tveimur leikjum Dominos-deild karla og frá spænska boltanum. Sport 25. janúar 2021 06:01
Jóhannes Eðvaldsson látinn Fyrrum landsliðsmaðurinn Jóhannes Eðvaldsson er látinn sjötugur að aldri. Jóhannes lék knattspyrnu með skoska stórveldinu Celtic á áttunda áratug síðustu aldar. Var hann í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins. Fótbolti 24. janúar 2021 23:13
Atlético komið með sjö stiga forystu á toppnum Atlético Madrid kom til baka gegn Valencia og vann 3-1 sigur er liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Diego Simeone eru þar af leiðandi komnir með sjö stiga forystu á toppi La Liga. Fótbolti 24. janúar 2021 23:00
Everton örugglega áfram í bikarnum | Sjáðu mörkin Everton vann öruggan 3-0 sigur á B-deildarliði Sheffield Wednesday í fjórðu umferð FA-bikarsins. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn í liði Everton. Enski boltinn 24. janúar 2021 21:55
Solskjær ánægður með að Man Utd hafi loks unnið á eigin forsendum Ole Gunnar Solskjær var hæstánægður með 3-2 sigur sinna manna gegn Liverpool í FA-bikarnum í dag. Enski boltinn 24. janúar 2021 21:15
Sverrir Ingi spilaði allan leikinn og nældi sér í gult spjald gegn AEK Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn er PAOK gerði 2-2 jafntefli við AEK Aþenu í grísku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag vann topplið Olympiacos 0-1 útisigur á Atromitos Aþenu, Ögmundur Kristinsson var ekki í leikmannahópi toppliðsins. Fótbolti 24. janúar 2021 20:00
Liverpool aðeins einu sinni komist í 16-liða úrslit FA-bikarsins síðan Klopp tók við Englandsmeistarar Liverpool töpuðu 3-2 gegn Manchester United í fjórðu umferð FA-bikarsins [32-liða úrslitum] í dag. Það þýðir að Liverpool hefur aðeins einu sinni komist í 16-liða úrslit keppninnar á þeim sex árum sem Jürgen Klopp hefur stýrt liðinu. Enski boltinn 24. janúar 2021 20:00
Bruno Fernandes skaut Man United áfram | Sjáðu mörkin Manchester United vann 3-2 sigur á erkifjendum sínum í Liverpool er liðin mættust á Old Trafford í 4. umferð FA-bikarsins í dag. Varamaðurinn Bruno Fernandes reyndist hetja heimamanna í mögnuðum fótboltaleik. Enski boltinn 24. janúar 2021 19:00
Albert lagði upp í mikilvægum sigri AZ AZ Alkmaar hafði sætaskipti við Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni eftir 3-2 sigur AZ í leik liðanna í dag. Albert Guðmundsson lagði upp fyrsta mark AZ í leiknum. Fótbolti 24. janúar 2021 17:51
De Jong allt í öllu er Barcelona komst nær toppliðunum Barcelona vann 0-2 útisigur á Elche í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Hollenski miðjumaðurinn Frenkie De Jong skoraði fyrra markið og lagði upp það seinna. Fótbolti 24. janúar 2021 17:15
Burnley og Leicester áfram í bikarnum Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn þegar Burnley vann 3-0 sigur á Fulham í FA-bikarnum á Englandi. Leicester vann á sama tíma 3-1 sigur á Brentford. Enski boltinn 24. janúar 2021 16:30
Napoli tapaði dýrmætum stigum Hellas Verona lagði Napoli að velli í ítölsku A-deildinni í dag. Lokatölur 3-1. Fótbolti 24. janúar 2021 15:59
Þrenna Tammy Abraham dugði til að koma Chelsea í 16-liða úrslit Chelsea komst í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í dag. Liðið vann Luton úr B-deild 3-1 á Stamford Bridge. Enski boltinn 24. janúar 2021 14:00