Upplifir loks drauminn og uppfyllir í leiðinni loforð sem hann gaf ömmu sinni Pólski framherjinn Lukas Podolski upplifir loks æskudraum sinn á sunnudag þegar hann spilar sinn fyrsta leik fyrir Gornik Zabrze í pólsku úrvalsdeildinni. Á sama tíma uppfyllir hann loforð sem hann gaf ömmu sinni meðan hún var enn á lífi. Fótbolti 23. júlí 2021 08:32
Eiður Smári meðal þeirra sem eru nefndir til sögunnar hjá Swansea Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er meðal þeirra sem er orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea City sem spilar í ensku B-deildinni. Enski boltinn 23. júlí 2021 07:31
Eriksen fær ekki að spila á Ítalíu nema hjartastillirinn verði fjarlægður Christian Eriksen, leikmaður Inter Mílanó og danska landsliðsins, getur ekki spilað áfram í ítölsku deildinni nema hjartastillirinn sem græddur var í hann eftir að hann varð fyrir hjartastoppi á EM verði fjarlægður. Fótbolti 23. júlí 2021 07:00
Smith-Rowe framlengir við Arsenal Emile Smith-Rowe skrifaði í dag undir nýjan samning við Arsenal. Þessi tvítugi sóknarsinnaði miðjumaður skuldbindur sig Lundúnaliðinu til ársins 2026. Enski boltinn 22. júlí 2021 23:31
Tölvuleikurinn Football Manager mun bjóða upp á kvennalið í fyrsta skipti Framleiðendur tölvuleiksins Football Manager hafa gefið það út að á næstu árum muni spilarar leiksins loksins geta stjórnað liðum af báðum kynjum. Fótbolti 22. júlí 2021 22:45
Delph sagður æfur vegna yfirlýsingar Everton Fabian Delph, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar, hjá enska knattspyrnuliðinu Everton er sagður vera æfur yfir því að yfirlýsing liðsins vegna máls Gylfa hafi ekki verið afdráttarlausari en svo að Delph var bendlaður við málið á samfélagsmiðlum. Sport 22. júlí 2021 21:28
Þeir eru með aðeins meiri gæði en við Matthías Vilhjálmsson var ekki sáttur með 0-2 tap FH á heimavelli gegn Rosenborg í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Matthías lék lengi vel með norska liðinu og fékk frábært færi til að minnka muninn. Fótbolti 22. júlí 2021 21:16
Öruggur sigur Fjölnismanna Fjölnir tók á móti Þrótti R. í Lengjudeild Karla í knattspyrnu í kvöld. Heimamenn unnu öruggan 3-1 sigur og lyfta sér í það minnsta tímabundið upp í fjórða sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 22. júlí 2021 21:12
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Rosenborg 0-2 | Gestirnir refsuðu Góð lið refsa alltaf og það sannaði Rosenborg í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á FH er liðin mættust í Kaplakrika í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu. Það er því á brattan að sækja fyrir Hafnfirðinga í síðari leiknum sem fram fer eftir viku. Fótbolti 22. júlí 2021 21:00
Umfjöllun: Valur - Bodø/Glimt 0-3 | Norsku meistararnir í kjörstöðu eftir sigur á Hlíðarenda Noregsmeistarar Bodø/Glimt unnu öruggan sigur á Íslandsmeisturum Vals, 0-3, í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar á Hlíðarenda í kvöld. Fótbolti 22. júlí 2021 20:56
Tvö íslensk töp í Sambandsdeildinni Það voru Íslendingar í eldlínunni í tveimur leikjum sem var að ljúka í Sambandsdeild Evrópu. Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í AGF töpuðu 2-1 gegn Larne frá Norður-Írlandi og á sama tíma þurftu Óskar Sverrisson og félagar í Häcken að sætta sig við 5-1 tap gegn skoska liðinu Aberdeen. Fótbolti 22. júlí 2021 20:39
Þurfa að vera á pari við AC Milan og Tottenham þegar kemur að launum Spænsku stórveldin Barcelona og Real Madrid hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa leikmenn dýrum dómum og borga jafn há laun og þau hafa gert undanfarin ár. Reglugerð La Liga, spænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, sér til þess. Fótbolti 22. júlí 2021 20:00
„Það verður gaman að berjast á hinum enda töflunnar“ Guðrún Arnardóttir mun fylla skarð Glódísar Perlu Viggósdóttir hjá Rosengård, en hún skrifaði undir tveggja ára samning við sænska félagið í dag. Fótbolti 22. júlí 2021 19:31
Jón Guðni og félagar með sigur í Sambandsdeildinni Jón Guðni Fjóluson og félagar hans í Hammarby tóku á móti slóvenska liðinu Maribor í annari umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Jón Guðni lék allan leikinn í hjarta varnar Hammarby sem vann sterkan 3-1 sigur. Fótbolti 22. júlí 2021 18:39
Blikar í góðri stöðu eftir jafntefli í Vínarborg Breiðablik gerði góða ferð til Austurríkis í annari umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í dag. Blikar mættu heimamönnum í Austria Vín og skildu liðin jöfn, 1-1. Fótbolti 22. júlí 2021 17:54
Celtic sækir liðsstyrk frá Akureyri María Catharina Ólafsdóttir Gros, leikmaður Þórs/KA, er gengin til liðs við skoska úrvalsdeildarfélagið Celtic frá Glasgow. María skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 22. júlí 2021 17:30
Leik frestað vegna smits hjá Ólsurum Leik Víkings Ó. og Fram í Lengjudeild karla hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í leikmannahópi Ólsara. Íslenski boltinn 22. júlí 2021 15:57
Segir Arnór Ingva og félaga ekki betri á pappír en þeir séu með góða liðsheild og spili sem lið Inter Miami tapaði sínum sjötta leik í röð í MLS-deildinni í knattspyrnu er Arnór Ingvi Traustason setti tvö í 5-0 sigri New England Revolution í nótt. Fótbolti 22. júlí 2021 15:02
Pelé hrósaði Mörtu fyrir að hvetja milljónir um heim allan og skapa betri heim Brasilíska goðsögnin Pelé hrósaði samlöndu sinni Mörtu fyrir þá hvatningu sem hún veitir fólki um heim allan. Marta er af mörgum talin ein albesta knattspyrnu heims og jafnvel frá upphafi. Fótbolti 22. júlí 2021 14:30
Marca gagnrýnt fyrir að kalla Alaba hinn svarta Sergio Ramos Spænska dagblaðið Marca hefur fengið mikla gagnrýni fyrir grein um nýjasta leikmann Real Madrid, David Alaba. Fótbolti 22. júlí 2021 14:01
Richarlison byrjar með látum og Mexíkó pakkaði Frakklandi saman Ólympíuleikarnir í knattspyrnu karla hófust í dag með átta leikjum. Af nægu er að taka en helst það að frétta að Richarlison skoraði öll mörk Brasilíu í 4-2 sigri á Þýskalandi, Mexíkó vann 4-1 sigur á Frakklandi og Ástralía lagði Argentínu 2-0. Fótbolti 22. júlí 2021 13:31
Veifaði peningamerki og fékk tveggja leikja bann síðast þegar hann mætti Rosenborg Á ýmsu gekk síðast þegar Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, stýrði liði gegn Rosenborg. Handabending hans kostaði hann tveggja leikja bann. Fótbolti 22. júlí 2021 12:46
Van Gaal að taka við hollenska landsliðinu í þriðja sinn Hollenski fjölmiðillinn De Telegraaf segir að Louis van Gaal, fyrrum þjálfari Barcelona og Manchester United sé að taka við hollenska landsliðinu á nýjan leik. Hann stýrði liðinu frá 2000 til 2002 og frá 2012 til 2014. Fótbolti 22. júlí 2021 10:30
Guðrún fyllir skarð Glódísar hjá Rosengård Guðrún Arnardóttir hefur samið við Rosengård. Hún kemur til liðsins frá Djurgården. Fótbolti 22. júlí 2021 09:21
Sektað vegna hegðunar stuðningsfólks síns í leiknum gegn Íslandi Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur ákveðið að sekta knattspyrnusamband Mexíkó vegna hegðunar stuðningsfólks þess í 2-1 sigrinum gegn Íslandi er þjóðirnar mættust í vináttulandsleik í maí á þessu ári. Fótbolti 22. júlí 2021 09:01
Ítalíumeistararnir fara heldur ekki til Flórída Ítalíumeistarar Inter Milan hafa ákveðið að fara ekki til Flórída og taka þátt í samnefndu æfingamóti vegna kórónuveiruna. Aðeins eru tvö lið eftir á mótinu eins og staðan er í dag. Fótbolti 22. júlí 2021 08:00
Skoraði fyrstu mörkin í MLS gegn stjörnuliði Inter og trónir á toppnum Arnór Ingvi Traustason skoraði tvö mörk í sigri New England Revolution á Inter Miami í MLS-deildinni í fótbolta í Bandaríkjunum í nótt. Voru þetta fyrstu mörk hans fyrir félagið. Er liðið því enn á toppi Austurdeildar. Fótbolti 22. júlí 2021 07:31
„Þurfum að spila töluvert betur en við gerðum á laugardaginn“ „Þetta er hörkulið, Bodö/Glimt, gott sóknarlið, eru aggressívir og spila góðan fótbolta. Þannig að þetta verður vonandi hörkuleikur,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta, sem verður í eldlínunni gegn Noregsmeisturunum á Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Fótbolti 22. júlí 2021 07:00
Frá í allt að hálft ár Anna Rakel Pétursdóttir, leikmaður Vals í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta, er á leið í aðgerð og verður frá út árið. Íslenski boltinn 21. júlí 2021 23:30
Óvænt hættur 17 dögum fyrir mót Steve Cooper gekk frá þjálfarastarfi sínu hjá Swansea City í dag eftir tveggja ára starf, þegar aðeins 17 dagar eru þar til keppni fer af stað í Championship-deildinni. Hinn 41 árs gamli Walesverji var nálægt því að stýra liðinu upp í úrvalsdeildina í vor. Fótbolti 21. júlí 2021 23:01