Guðmundur Þórarinsson og félagar MLS-meistarar eftir vítaspyrnukeppni Guðmundur Þórarinsson og félagar hans í New York City FC urðu MLS-meistarar í fótbolta er liðið lagði Portland Timbers 4-2 í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var jöfn eftir framlengingu, 1-1, í úrslitaleik bandarísku MLS-deildarinnar í fótbolta. Fótbolti 11. desember 2021 23:20
Zlatan bjargaði stigi fyrir toppliðið með hjólhestaspyrnu Zlatan Ibrahimovic bjargaði stigi fyrir AC Milan þegar hann jafnaði metin í 1-1 gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í uppbótartíma. Fótbolti 11. desember 2021 21:46
„Ekki séð mörg lið spila eins vel gegn toppliðunum og Norwich gerði í kvöld“ Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri Manchester United, hrósaði nýliðum Norwich fyrir spilamennsku sína í kvöld eftir að United vann 0-1 útisigur gegn botnliðinu. Enski boltinn 11. desember 2021 20:33
Ronaldo tryggði United þriðja sigurinn í röð Manchester United hefur unnið seinustu þrjá leiki sína í ensku úrvalsdeildinni, og er ósigrað í seinustu fjórum, eftir nauman 1-0 sigur gegn nýliðum Norwich í kvöld. Enski boltinn 11. desember 2021 19:25
Juventus missteig sig gegn Íslendingaliðinu Venezia, lið Arnórs Sigurðssonar og Bjarka Steins Bjarkasonar, gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus er stórliðið kom í heimsókn í ítölsku úrvasdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 11. desember 2021 18:52
Gerrard: „Við töpuðum á vafasömu víti“ Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, snéri aftur á heimaslóðir þegar lið hans heimsótti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 1-0 tap, en segir að vítaspyrnan sem Salah skoraði úr hafi verið vafasöm. Enski boltinn 11. desember 2021 17:45
Dramatík á Brúnni | Öruggt hjá Arsenal Það var mikil dramatík er Leeds United sótti Chelsea heim. Fór það svo að heimamenn unnu 3-2 sigur þar sem sigurmarkið kom úr vítaspyrnu þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þá vann Arsenal þægilegan sigur. Enski boltinn 11. desember 2021 17:07
Salah hetja Liverpool í endurkomu Gerrard á Anfield Liverpool vann 1-0 heimasigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Líkt og í leik Manchester City fyrr í dag þurftu heimamenn vítaspyrnu til að tryggja öll þrjú stigin. Enski boltinn 11. desember 2021 16:55
Bayern komið með sex stiga forystu eftir að Dortmund missteig sig Bayern Munchen er komið með sex stiga forystu á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir að Borussia Dortmund náði aðeins jafntefli gegn Bochum. Fótbolti 11. desember 2021 16:40
Sterling kom Man City til bjargar Raheem Sterling kom Manchester City til bjargar er hann skoraði eina mark liðsins gegn Wolves í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 11. desember 2021 14:35
Ætlar ekki að sannfæra einn né neinn um að vera áfram Ralf Rangnick sendi Paul Pogba skýr skilaboð á blaðamannafundi sínum fyrir leik liðsins gegn Norwich City síðar í dag. Fótbolti 11. desember 2021 14:00
Leik Tottanhem og Rennes aflýst | Óvíst hvað gerist í framhaldinu Leik Tottenham Hotspur og Rennes í Sambandsdeild Evrópu sem átti fram að fara á fimmtudagskvöld hefur nú verið aflýst. Vegna fjölda kórónuveirusmita í liði Tottneham er ljóst að leikurinn getur ekki farið fram á tilsettum tíma. Fótbolti 11. desember 2021 12:31
Fyrrverandi yngri liða þjálfari hjá Barcelona ásakaður um misnotkun á börnum Albert Benaiges, fyrrverandi þjálfari yngra liða Barcelona, hefur verið ásakaður um að hafa misnotað allt að 60 börnum á tíma sínum hjá félaginu. Benaiges er með þekktari yngra liða þjálfurum Spánar. Fótbolti 11. desember 2021 10:16
Klopp segir það óhjákvæmilegt að Gerrard taki við Liverpool í framtíðinni Liverpool goðsögnin Steven Gerrard snýr aftur á Anfield í dag, og nú í fyrsta skipti sem þjálfari í ensku úrvalsdeildinni, þegar Aston Villa heimsækir Liverpool. Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, jós lofi yfir fyrrum fyrirliða liðsins í vikunni. Enski boltinn 11. desember 2021 08:45
Guðlaugur Victor með fyrirliðabandið er Schalke flaug upp töfluna Guðlaugur Victor Pálsson bar fyrirliðabandið fyrir Schalke er liðið vann 4-1 sigur gegn Nürnberg í þýsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn lyfti Schalke úr áttunda sæti og upp í það þriðja. Fótbolti 10. desember 2021 19:24
Martial vill komast burt frá United Franski sóknarmaðurinn Anthony Martial vill komast burt frá Manchester United þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Enski boltinn 10. desember 2021 18:00
ÍBV sækir sér liðsstyrk frá meisturunum Nýliðar ÍBV hafa fengið liðsstyrk frá meisturum Víkings fyrir næsta fótboltasumar. Halldór Jón Sigurður Þórðarson skrifaði undir samning við Eyjamenn til þriggja ára. Íslenski boltinn 10. desember 2021 14:46
Engin íslensk á topp hundrað í ár Á meðan að Sara Björk Gunnarsdóttir er í barneignaleyfi er engin íslensk knattspyrnukona á lista The Guardian yfir 100 bestu knattspyrnukonur heims. Fótbolti 10. desember 2021 14:31
Ekki fleiri nefndir um þjóðarleikvanga: „Sannfærður um að við löndum þessu“ „Við þurfum bara að ýta á Enter,“ segir Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, um nýja þjóðarleikvanga fyrir boltaíþróttir og frjálsíþróttir sem lengi hefur verið beðið eftir. Sport 10. desember 2021 14:00
Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Atli Viðar Björnsson, markahæsti FH-ingur sögunnar og þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi, var gestur hjá Ríkharð Guðnasyni og Kristjáni Óla Sigurðssyni í nýjasta þættinum af Þungavigtinni. Íslenski boltinn 10. desember 2021 13:30
Hannes skammaði ríkisstjórnina fyrir að íþróttamálaráðherra sé ekki titlaður Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, hefur ofurtrú á því að íþróttamálaráðherrann Ásmundur Einar Daðason komi því í gegn að byggja nýjan þjóðarleikvang Íslands en ekki er ekki ánægður með það virðingarleysi sem ríkisstjórnin sýnir íþróttunum með því að hafa íþróttirnar ekki í titla ráðherra. Körfubolti 10. desember 2021 12:30
Skilur hugarfar Söru betur eftir að hafa séð Blika spila í snjóbyl Fyrrverandi samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur segist skilja betur hugarfar hennar eftir að hafa séð Breiðablik spila í snjóbyl gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 10. desember 2021 12:00
Leggja til brottrekstur tilkynni leikmenn ekki ofbeldismál Starfshópur KSÍ, sem vann að endurskoðun á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur skilað af sér skýrslu og tillögur um endurbætur á þeim málum. Meðal tillaga er að leikmönnum sambandsins verði gert að skrifa undir skilmála að þeim beri að tilkynna ofbeldismál sem þeir tengjast, viðurlög varði brottrekstri. Innlent 10. desember 2021 11:26
Grétar Rafn hættur hjá Everton Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, er hættur hjá Everton eftir að hafa starfað fyrir félagið frá árinu 2018. Enski boltinn 10. desember 2021 10:55
Milos sagður hafna Rosenborg Milos Milojevic, fyrrverandi þjálfari Víkings og Breiðabliks í fótbolta, hefur ákveðið að afþakka boð um að taka við norska stórveldinu Rosenborg. Fótbolti 10. desember 2021 10:26
Markvörður danska dínamítsins á HM í Mexíkó 1986 dáinn Danir misstu í fyrrinótt einn af leikmönnum eftirminnilegs landsliðs síns frá níunda áratugnum þegar Lars Högh lést 62 ára gamall. Fótbolti 10. desember 2021 10:01
Aldrei spilað við „klikkaðri“ aðstæður en í Kópavogi og afmælisbarnið fékk blástur Sænska knattspyrnustjarnan Kosovare Asllani virtist njóta sín vel á Kópavogsvelli í fyrrakvöld en hún segir aðstæður þar þó hafa verið þær „klikkuðustu og köldustu“ sem hún hafi prófað á sínum ferli. Fótbolti 10. desember 2021 09:30
Brendan Rodgers: „Ég veit ekki einu sinni hvaða keppni þetta er“ Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester, var eðlilega ósáttur eftir 3-2 tap sinna manna gegn Napoli í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í gær. Tapið þýðir að liðið fer í útsláttakeppni Sambandsdeildarinnar í staðin fyrir Evrópudeildarinnar. Fótbolti 10. desember 2021 07:01
Öðrum leik Tottenham frestað vegna hópsmitsins Tottenham Hotspur gat ekki tekið á móti Rennes í Sambandsdeild Evrópu í kvöld vegna fjölda kórónuveirusmita innan herbúða liðsins. Nú hefur enska úrvalsdeildin ákveðið að fresta leik liðsins gegn Brighton sem átti að fara fram næsta sunnudag. Enski boltinn 9. desember 2021 23:30
Spilar ekki meira á árinu eftir að hafa greinst óbólusettur með kórónuveiruna Joshua Kimmich, leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern München og þýska landsliðsins í fótbolta, spilar ekki meira á þessu ári eftir að hafa greinst með kórónuveiruna í síðasta mánuði. Í október viðurkenndi Kimmich að hann sé ekki bólusettur. Fótbolti 9. desember 2021 23:04