Innlent

Leggja til brott­rekstur til­kynni leik­menn ekki of­beldis­mál

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar. Vísir/Egill

Starfshópur KSÍ, sem vann að endurskoðun á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur skilað af sér skýrslu og tillögur um endurbætur á þeim málum. Meðal tillaga er að leikmönnum sambandsins verði gert að skrifa undir skilmála að þeim beri að tilkynna ofbeldismál sem þeir tengjast, viðurlög varði brottrekstri. 

Þetta kom fram á opnum fundi mannréttinda-, nýsköpunar- og lýræðisráðs Reykjavíkurborgar sem hófst klukkan 9 í morgun. Kynnti Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur og fulltrúi í framkvæmdastjórn ÍSÍ, sem jafnframt fór fyrir hópnum, skýrsluna. 

Fjórir hópar hafa verið að störfum vegna ofbeldismála innan KSÍ undanfarið hálft ár og stýrir Kolbrún tveimur þeirra. Verkefni hópsins, hvers skýrslu hún kynnti í morgun, var að skoða vinnulag, viðhorf og menningu innan KSÍ. 

Óskýrt hverjum ætti að tilkynna ofbeldi

Upphaflegt verkefni starfshópsins var að taka á móti tilkynningum um kynferðisbrot og koma þeim í viðeigandi ferli, meta hvað teldist formleg tilkynning, uppfæra verkferla, leggja fram tillögur að viðbrögðum/viðurlögum við brotum með því til dæmis að meta hvenær megi fjarlægja fólk, hvort það eigi afturkvæmt og þá hvenær og í hvaða tilvikum. Síðasta verkefni hópsins hafi verið að leggja mat og koma með tillögur að úrbótum varðandi vinnulag, viðhorf og menningu. 

Með þetta að leiðarljósi hafi starfshópurinn lagt af stað í sína vinnu, sem síðan hafi komið í ljós að aðrir væru með á sínu borði. Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála, sem tók til starfa árið 2020, hafi til að mynda það verkefni að taka á móti tilkynningum. Þetta hafi hins vegar ekki verið kynnt nógu vel þar sem ráðgjafinn hafi tekið til starfa í miðjum faraldri. Samskiptaráðgjafinn hafði sömuleiðis ráðist í vinnu við það í vor að uppfæra verkferla. 

Laugardalsvöllur í Reykjavík, höfuðstöðvar KSÍ.Vísir/Vilhelm

„Íþróttafélögin og sérsamböndin voru ekki alveg viss hvenær ætti að tilkynna til hennar, hvernig og hvort öll mál mættu fara til hennar. En það er alveg skýrt. Íþróttafélög, sérsambönd og ÍSÍ á ekki að vinna með einstaklingsmál. Það á ekki að tilkynna þangað, það á að tilkynna til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála, sem kemur málinu í faglegan feril,“ sagði Kolbrún í kynningu sinni. 

Sjálfboðaliðar ekki þeir sem eigi að taka við tilkynningum um ofbeldi

Hún segir eitt helsta vandamálið við ofbeldismenningu og ójafnrétti innan íþróttahreyfingarinnar hafa verið það í gegn um tíðina að íþróttafélögin hafi ekki verið að takast á við þessi mál. Það megi að hluta rekja til þess að íþróttahreyfingin sé borin að mestu uppi af sjálfboðaliðum, sem endurspegli menningu samfélagsins inn í íþróttahreyfinguna. 

Nauðsynlegt sé að mati starfshópsins að sérhæfðir einstaklingar innan íþróttahreyfingarinnar taki á móti ábendingum um ofbeldi og ójöfnuð. 

„Það er vegna þess að innan íþróttastarfs eru oft mjög mikil tengsl á milli fólks, þetta eru sjálfboðaliðar með ólíka þekkingu, ólíka reynslu og ólík viðhorf og við viljum að þetta sé faglega gert.“

Annar starfshópur var settur af stað sem metur hvað teljist formleg tilkynning og svo leggja fram tillögur að viðbrögðum við brotum. Sú vinna sé ekki bara fyrir KSÍ heldur íþróttahreyfinguna í heild sinni. 

75% leikmanna issu ekki hvert ætti að tilkynna ofbeldi

Svo fór því að starfshópurinn fór aðeins í þá vinnu að koma með tillögur að úrbótum á viðhorfum, vinnulagi og menningu innan KSÍ. Tillögur hópsins felast í fjórum meginpunktum: 

  1. Að uppfæra siðareglur og samninga. Skýrt skal kveðið á um ofbeldismál.
  2. Að skýra leiðir og viðbrögð við ofbeldismálum innan KSÍ og hjá aðildarfélögum. 
  3. Að forysta KSÍ taki skýra afstöðu gegn ofbeldi og sýni það í verki. 
  4. Að KSÍ geri átak í og veðri leiðandi á sviði jafnréttismála innan íþróttahreyfingarinnar.

Starfshópurinn lagði fram nokkrar leiðir, við hvert mál, um hvernig hægt væri að koma þessum atriðum í gagnið. Til dæmis við fyrsta punktinn lagði hópurinn til að ákvæði yrði sett inn í leikmannasamninga sem kveði á um að þeim beri skylda til að tilkynna hafi þeir ofbeldisbrot á bakinu eða ef þeir hafi mál í vinnslu í tengslum við ofbeldi. 

Við annað atriðið nefndi Kolbrún að könnun hafi verið lögð fyrir efstu tvær knattspyrnudeildirnar, bæði kvenna og karla, og þegar sú könnun var yfirfarin hafi komið í ljós að 75 prósent iðkenda vissu ekki hvert þeir ættu að leita upplifðu þau eða yrðu vitni að ofbeldi. Leggur hópurinn til að framkvæmdastjóri hvers íþróttafélags og KSÍ sömuleiðis sé sá sem taka eigi við slíkum ábendingum. Sé enginn framkvæmdastjóri starfandi, eins og í smærri félögum, þurfi að útnefna einhvern í verkefnið og hafa upplýsingar umhvaða leiðir eigi að fara skýrar, t.d. á heimasíðum félaganna. Þá eigi öllum að vera ljóst að ferill þeirra sé ekki í hættu segi þeir frá ofbeldi og að brugðist verði við. 

Sagði Kolbrún þá að nauðsynlegt sé að forysta KSÍ komi sér saman um hvernig sé talað um ofbeldi. Forystan grípi tækifæri til að minna á ofbeldismál, til dæmis á ársþingum og í viðtölum. 

Lesa má tillögur starfshópsins í heild sinni hér. 


Tengdar fréttir

Leitaði til al­manna­tengils vegna gruns um heimilis­of­beldi lands­liðs­manns

Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ, brást við upplýsingum um að lögregla hefði verið kölluð að dvalarstað landsliðsmanns vegna grunsemda um heimilisofbeldi með því að leita til almannatengils. Fyrrverandi eiginkona umrædds landsliðsmanns varð fyrir vonbrigðum með hvernig KSÍ tók á málinu.

KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum

Úttektarnefnd ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi, skilaði sinni skýrslu í dag. Rán Ingvarsdóttir lögmaður segir að KSÍ hafi mikið svigrúm varðandi val á landsliðsmönnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×