Sjónvarpsstjóri Sýnar situr fyrir svörum Í hádeginu var haldinn blaðamannafundur þar sem sjónvarpsstöðin Sýn 2 var formlega kynnt til leiks, en hún mun gera enska boltanum skil næstu þrjú árin. Hilmar Björnsson sjónvarpsstjóri Sýnar sat fyrir svörum í hádegisviðtalinu á Stöð 2 og varpaði ljósi á áform stöðvarinnar varðandi enska boltann. Smelltu á spila til að sjá viðtalið. Enski boltinn 27. júní 2007 14:09
Miðvikudagsslúðrið á Englandi Slúðurdálkarnir í bresku blöðunum eru fullir af safaríku efni í dag eins og venjulega og þar kemur meðal annars fram að forráðamenn LA Galaxy hafi farið þess á leit við David Beckham að hann stytti sumarfrí sitt, því liðið er í bullandi vandræðum í MLS deildinni. Enski boltinn 27. júní 2007 13:40
Geremi orðaður við Newcastle Sam Allardyce stjóri Newcastle er nú sagður vera á höttunum eftir Kamerúnmanninum Geremi hjá Chelsea, en hann er með lausa samninga í sumar. Geremi spilaði 23 leiki með Chelsea á síðustu leiktíð þegar mikil meiðsli voru í herbúðum liðsins en óvíst er hvort pláss verður fyrir hann á næstu leiktíð. Enski boltinn 27. júní 2007 12:45
Ronaldo tekur Nani undir sinn verndarvæng Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætlar að sjá til þess að landi hans Nani fái góða handleiðslu í herbúðum liðsins á næsta tímabili. Nani gekk í raðir United frá Sporting Lissabon á dögunum og hefur stundum verið líkt við landa sinn Ronaldo. Enski boltinn 27. júní 2007 10:42
Beðið eftir Wenger Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segist vongóður um að Arsene Wenger knattspyrnustjóri fáist til að framlengja samning sinn við félagið lengur en út næsta keppnistímabil. Framtíð stjórans virðis óráðin hjá félaginu og margir hafa slegið því föstu að hann muni fara frá félaginu eftir ár. Enski boltinn 27. júní 2007 10:36
Liverpool er í viðræðum við Atletico Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að Liverpool sé nú að gera lokatilraun til að fá til sín framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Sagt er að félögin séu í viðræðum en forseti Atletico segir ekkert tilboð hafa komið frá enska félaginu. Enski boltinn 27. júní 2007 10:31
Caborn ræðir við erlenda eigendur Richard Caborn, íþróttamálaráðherra á Englandi, ætlar að funda með erlendum eigendum knattspyrnuliða í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Tilefni fundarins eru auknar áhyggjur heimamanna af þeim fjölda útlendinga sem eiga nú mörg af stóru félögunum í landinu. Sjö félög eru nú í eigu útlendinga í úrvalsdeildinni og þá fyrirhuguð sala á Manchester City ekki talin með. Enski boltinn 26. júní 2007 21:35
Zola langar að taka við Chelsea Hinn smái en knái Gianfranco Zola segir að sig langi mikið að gerast knattspyrnustjóri Chelsea einn daginn, en hann átti glæsilegan sjö ára feril með liðinu sem leikmaður á síðasta áratug. Zola er sem stendur aðstoðarmaður Pierluigi Casiraghi hjá U-21 árs liði Ítala. Enski boltinn 26. júní 2007 17:15
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Íslenskir leikmenn koma við sögu í slúðurpakkanum í bresku blöðunum í morgun. Daily Mirror segir Manchester United vera á höttunum eftir Eiði Smára Guðjohnsen og þá segir The Times að Heiðar Helguson gæti verið á leið aftur til fyrrum félaga sinna í Watford. Enski boltinn 26. júní 2007 11:42
Eriksson semur við Manchester City Manchester City hefur náð samkomulagi við knattspyrnustjórann Sven-Göran Eriksson um að taka við liðinu eftir langar viðræður. Reuters fréttastofan greindi frá þessu rétt í þessu. Eriksson var síðast þjálfari enska landsliðsins en tekur nú við City þar sem reiknað er með að Thaksin Shinawatra verði nýr eigandi innan skamms. Enski boltinn 26. júní 2007 11:21
United að bjóða í Eið Smára? Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag að Manchester ætli að bjóða 8 milljónir punda eða einn milljarð í landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona. Þó verði ekki af kaupunum fyrr en United klárar að selja Alan Smith til Middlesbrough. Þá segir blaðið að félagið muni selja framherjann Giuseppe Rossi til Parma. Enski boltinn 26. júní 2007 11:10
Tevez spenntur fyrir Arsenal Carlos Tevez viðurkennir að hann sé spenntur yfir áhuga Arsenal á sér. Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Arsenal eftir að Thierry Henry var keyptur til Barcelona í gær. Enski boltinn 26. júní 2007 10:03
Atletico: Höfum ekkert heyrt í Liverpool Forseti Atletico Madrid hefur vísað fregnum um brottför framherjans Fernando Torres á bug, en leikmaðurinn hefur verið orðaður við Liverpool. "Við höfum ekki fengið tilboð frá Liverpool eða öðrum í Torres. Hann er í sumarleyfi og kemur aftur til starfa þann 9. júlí," sagði Enrique Cerezo forseti. Enski boltinn 25. júní 2007 16:37
Boxið tók á taugarnar hjá Wayne Rooney Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United fylgdi hnefaleikaranum og vini sínum Ricky Hatton inn í hringinn um helgina þegar hann vann glæsilegan sigur á Jose Luis Castillo. Rooney sagðist hafa verið taugaóstyrkari fyrir bardagann en fyrir nokkurn leik með United eða enska landsliðinu. Sport 25. júní 2007 12:38
Mánudagsslúðrið á Englandi Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Atletico Madrid er heitasta nafnið í bresku slúðurblöðunum í dag og ekki í fyrsta sinn. Vitað er að Liverpool hefur mikinn áhuga á að fá Torres í sínar raðir og Daily Star heldur því fram í dag að Atletico vilji fá Peter Crouch í skiptum fyrir Torres. Daily Telegraph segir að Liverpool muni hinsvegar kaupa hann beint fyrir hvorki meira né minna en 25 milljónir punda. Enski boltinn 25. júní 2007 12:18
Smith á leið til Boro? Nokkur bresku blaðanna fullyrða í morgun að enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hafi fengið tilboð sitt í framherjann Alan Smith hjá Manchester United samþykkt. Boro er aðeins eitt fjölda liða sem orðuð hafa verið við kappann á síðustu vikum og talið er að Sunderland, Newcastle og Portsmouth séu öll tilbúin að greiða um 6 milljónir punda fyrir hann. Enski boltinn 25. júní 2007 11:00
Warnock: Ég myndi standa mig betur en Eriksson Neil Warnock, fyrrum þjálfari Sheffield United, segir að hann myndi án efa standa sig betur í starfi en Sven-Göran Eriksson ef hann fengi tækifæri til að taka við Manchester City. Svíinn hefur verið orðaður sterklega við félagið sem er nú á kafi í yfirtöku Thaksin Shinawatra. Enski boltinn 25. júní 2007 10:45
Justin Timberlake heldur með Manchester United Poppstjarnan Justin Timberlake viðurkenndi nýlega að hann væri orðinn harður stuðningsmaður Manchester United eftir að Alan Smith gaf honum miða á leik United og West Ham í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni í vor. Enski boltinn 24. júní 2007 19:30
Sunnudagsslúðrið á Englandi Helgarblöðin á Englandi eru full af góðum slúðurfréttum og margar þeirra snúast um þá leikmenn sem mest hafa verið í umræðunni undanfarnar vikur. Þetta eru m.a. framherjarnir David Nugent, Nicolas Anelka, Fernando Torres og Darren Bent. Enski boltinn 24. júní 2007 15:34
Richardson íhugar að fara frá United Miðjumaðurinn Kieran Richardson hjá Manchester United segist ætla að hugsa málið vandlega á næstu leiktíð ef hann nær ekki að vinna sér fast sæti í liði Manchester United. Richardson náði ekki að festa sig í sessi á síðustu leiktíð en segist umfram allt vilja vera áfram hjá þeim rauðu. Enski boltinn 24. júní 2007 15:18
Vieri orðaður við Tottenham Ítalski framherjinn Christian Vieri sem síðast lék með Mónakó í Frakklandi er nú með lausa samninga og fregnir herma að enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hafi augastað á honum. Vieiri hefur auk þess verið orðaður við lið eins og Genoa, Torino og Napoli. Vieri er 34 ára gamall og gerði garðinn frægan með liðum eins og Inter og Lazio á árum áður. Enski boltinn 24. júní 2007 15:14
Benitez vill ekki lána Cisse Rafa Benitez knattspyrnustjóri Liverpool segist ekki hafa áhuga á að lána framherjann Djibril Cisse frekar og vill heldur finna lið sem hefur áhuga á að kaupa hann. Cisse lék sem lánsmaður í heimalandi sínu Frakklandi síðasta vetur þar sem hann náði sér ágætlega á strik með Marseille eftir erfið meiðsli. Cisse á tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool, en hefur fótbrotnað tvisvar á síðustu þremur árum. Enski boltinn 24. júní 2007 12:29
Laugardagsslúðrið á Englandi Tíðindin af Thierry Henry hafa hleypt nýju blóði inn í slúðrið í enskum fjölmiðlum í dag og nokkur þeirra fullyrða að Arsene Wenger ætli sér að krækja í Carlos Tevez eða Nicolas Anelka til að fylla skarð Henry í framlínu Arsenal. Enski boltinn 23. júní 2007 14:54
Bent fer líklega til Tottenham Breska blaðið The Guardian telur sig hafa heimildir fyrir því að framherjinn Darren Bent muni ganga í raðir Tottenham frá Charlton eftir helgina fyrir 15-16 milljónir punda nema Liverpool stökkvi til og bjóði í hann á síðustu stundu. Liverpool er sagt vera að reyna að fá til sín Fernando Torres frá Atletico Madrid, en þar mun Bent vera næsti kostur ef félaginu mistekst að næla í Torres. Enski boltinn 23. júní 2007 14:44
Ensk lið sögð berjast um að fá Eið Smára Breska pressan var fljót að leggja saman tvo og tvo þegar ljóst varð að Thierry Henry væri á leið til Barcelona á Spáni og heldur því fram að Newcastle, Manchester United og Portsmouth séu nú öll að reyna að fá landsliðsfyrirliðann í sínar raðir. Enski boltinn 23. júní 2007 14:36
Arsenal staðfestir brottför Henry til Barcelona Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal tilkynnti formlega í morgun að það hefði náð samkomulagi við spænska stórveldið Barcelona um sölu á framherjanum Thierry Henry. Talið er að kaupverðið sé um 16 milljónir punda og mun sá franski líklega skrifa undir fjögurra ára samning við Barca á mánudaginn ef hann lýkur læknisskoðun. Enski boltinn 23. júní 2007 13:32
Enginn fallstemmning Ég ætla ekki að taka falldrauginn með mér til Portsmouth segir Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður í fótbolta. Fleiri ensk úrvalsdeildarlið vildu fá Hermann í sínar raðir, en framkvæmdastjórinn gerði útslagið. Enski boltinn 22. júní 2007 21:42
Smith að fara til Newcastle? Talið er að Newcastle sé búið að semja við Manchester United um að fá framherjann Alan Smith til liðsins. Smith vill fara frá United þar sem honum hefur verið sagt að hann fái ekki nýjan samning. Smith, sem er 26 ára skrifaði undir 5 ára samning við United árið 2004. Enski boltinn 22. júní 2007 13:29
Shinawatra staðfestir fund með Eriksson Thaksin Shinawatra, sem í dag lagði fram formlegt yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Manchester City, staðfesti nú síðdegis að hann hefði þegar rætt við Sven-Göran Eriksson um að taka við knattspyrnustjórastöðunni. Eriksson mun vera að hugsa málið í augnablikinu. Claudio Ranieri hefur þegar verið boðin staðan en hann afþakkaði. Enski boltinn 21. júní 2007 17:07
Mikel settur út úr nígeríska landsliðinu Nígeríska knattspyrnusambandið hefur sett miðjumanninn John Obi Mikel hjá Chelsea í bann frá öllum keppnum með landsliðinu eftir að hann mætti ekki í leik liðsins gegn Úganda fyrir þremur vikum. Mikel bar við meiðslum sem síðar voru staðfest af enska félaginu, en forráðamenn landsliðsins eru æfir og hafa beðið hann að éta það sem úti frýs. Enski boltinn 21. júní 2007 14:22