Fleiri fréttir

Viðskipti með atvinnuhúsnæði 11 milljarðar í apríl

Í apríl s.l. var 55 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 38 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var rétt rúmlega 11 milljarðar króna en 787 milljónir króna utan þess.

Nóbelsverðlaunahafi segir það rétt að gera hlé á ESB viðræðum

Edmund Phelps Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði segir að það sé rétt ákvörðun hjá Íslendingum að gera hlé á aðildarviðræðunum að Evrópusambandinu. Phelps segir að sú ákvörðun muni verja Ísland gegn mörgum áhættum sem ESB stendur nú frammi fyrir.

Stofna félag um byggingu hafnar á Dysnesi

Félagið Dysnes Þróunarfélag ehf. verður stofnað í dag til uppbyggingar, markaðsstarfs og kynningar á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðar hafnarsvæði vegna þjónustu við námu og olíuvinnslu fyrir norðan Ísland.

Telja fyrirheit stjórnarsáttmálans um samráð lofa góðu

Aðilar vinnumarkaðarins segja fyrirheit stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um aukið samráð lofa góðu fyrir komandi kjaraviðræður. Helst séu það fyrirheit um aukið samráð varðandi hagsmunamál atvinnulífsins og launþega. Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, segir í samtali við Fréttablaðið að sambandið sé reiðubúið til að eiga samstarf við ríkisstjórnina um þessi mál.

Svartsýnir á brátt afnám hafta

Forsvarsmenn stærstu lífeyrissjóða landsins eru svartsýnir á að það takist að afnema gjaldeyrishöftin á næstu árum. Einungis um tólf prósent forsvarsmanna lífeyrissjóða telja að þeir fái á ný heimild til erlendra fjárfestinga á næstu fimm árum.

Niðurstaða ESA um gengislánin kemur ekki á óvart

Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að rökstutt álit ESA (Eftirlitsstofnunnar EFTA) um gengislán komi ekki á óvart. Það hafi verið viðbúið að slíkt álit kæmi fram í ljósi ákvæða um frjálst flæði fjármagns í EES samningunum.

Capacent fær vottun hjá IBM

Bandaríska fyrirtækið IBM, sem er leiðandi á sviði viðskiptahugbúnaðar, hefur gefið Capacent vottun sem IBM Premium Business Partner, en það er æðsta vottun sem samstarfsaðilar IBM geta hlotið.

Engar líkur á heimild til erlendra fjárfestinga næstu 5 árin

Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna meta nær engar líkur á því að þeim verði veitt heimild til erlendra nýfjárfestinga á næstu fimm árum. Þeir eru aðeins bjartsýnni á að heimildin verði veitt á næstu tíu árum en meta þó innan við helmingslíkur til þess.

ESA: Algert bann við gengislánum er brot á EES samningum

Ísland hefur gerst brotlegt við EES samninginn með því að leggja algert bann við veitingu gengistryggðra lána í íslenskum krónum. Þetta er niðurstaða rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá því í dag.

Erlendir ferðamenn sækja í íslensk sumarhús

Mikil aukning hefur orðið á bókunum sumarhúsa hjá erlendum ferðamönnum. 60% viðskiptavina sprotafyrirtækisins Búngaló, sem aðstoðar íslenskar fjölskyldur við að leigja út sumarhús sín, eru erlendir.

Ekki orð um Íbúðalánasjóð

Ekki er minnst einu orði á Íbúðalánasjóð í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem kynntur var fyrir hádegi. Í ritinu fjármálastöðugleiki, sem Seðlabankinn gefur út tvisvar á ári, er hins vegar vikið að þessum málaflokki. Fyrra rit ársins kom út þann 30 apríl, daginn sem Sigmundur Davíð fékk stjórnarmyndar.

Þúsund milljarða viðskipti

Actavis hefur keypt bandaríska lyfjaframleiðandann Warner Chilcott Plc á 8,5 milljarða Bandaríkjadala, eða 1.045 milljarða íslenskra króna.

FÍB: Álagning á bensíni hefur aukist

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Álagning á bensínlítrann er orðin þremur krónum hærri frá áramótum, en á sama tímabili í fyrra, að mati FÍB.

Yfir 15.000 Íslendingar með Alfreð

Alfreð appið fór í loftið 31. janúar sl. og hefur slegið í gegn hjá snjallsímanotendum því núna í maí hafa rúmlega 15 þúsund Íslendingar sótt sér appið og yfir 100 fyrirtæki nýtt sér þessa nýju leið í leit að starfsfólki.

Ferðaþjónustan fagnar stækkun á svæði fyrir hvalaskoðun

Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun atvinnu- og nýsköpunarráðherra að stækka það svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin hafa til umráða á Faxaflóa en samtökin hafa lagt mikla áherslu á að banna allar hvalveiðar í Faxaflóa og innan 30 sjómílna frá öllum hvalaskoðunarsvæðum. Þrátt fyrir að ráðherra hafi ekki orðið við þeirri ósk þá er þetta skref mikilvægt.

Aflaverðmætið stóð nær í stað milli ára í apríl

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,2 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2013 samanborið við 30,3 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 111 milljónir króna eða 0,4% á milli ára.

Hagstofan mælir 6,6% atvinnuleysi í apríl

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í apríl 2013 að jafnaði 186.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 174.400 starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,3%, hlutfall starfandi 76,9% og atvinnuleysi var 6,6%.

IFS spáir því að verðbólgan standi í stað

Verðbólguspá IFS greiningar fyrir maí hljóðar upp á 0,1% lækkun verðlags frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir helst tólf mánaða verðbólga óbreytt 3,3%. Verðbólga undanfarna þrjá mánuði á ársgrundvelli lækkar úr 8,4% í 1,2%.

Björgólfur Thor hefur grætt 18 milljarða á Actavis

Ekkert lát er á hækkunum á gengi hluta í Actavis á markaðinum vestan hafs. Gengið hækkaði um 2,4% í gærkvöldi og er komið yfir 130 dollara á hlut. Þetta þýðir að gengishagnaður Björgólfs Thors Björgólfssonar af hlutum sínum í Actavis er um 18 milljarðar kr. frá 1. apríl s.l.

Vextir verða óbreyttir

Vextir verða óbreyttir út næsta mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Seðlabankans.

Óútskýrðar olíu- og bensínhækkanir

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Hækkun nemur rúmum 2%.

Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða

Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008.

Mikið fjör á fasteignamarkaði borgarinnar

Alls var þinglýst 133 kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þetta er töluvert meiri fjöldi en nemur vikumeðaltalinu undanfarna þrjá mánuði sem er 105 samningar.

Spá því að verðbólgan haldist óbreytt í 3,3% í maí

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,1% í maí frá mánuðinum á undan. Gengi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga verða óbreytt í 3,3%, en minni hefur verðbólga ekki verið í tvö ár.

VÍB styrkir sýninguna Dansar í Eldborg

VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og 25. maí á Listahátíð í Reykjavík.

90 milljónir fóru aftur til Stoða

Nokkur fjöldi þeirra sem gerðu tilboð í hluti í TM í hlutafjárútboði félagsins stóð að lokum ekki við tilboð sitt.

Hagnaður VÍS nam 711 milljónum

Hagnaður af rekstri Vátryggingafélags Íslands á fyrsta ársfjórðungi nam 711 milljónum króna, samanborið við 589 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Iðgjöld tímabilsins námu 4.024 milljónum króna og hækka um 6,7% frá sama tímabili í fyrra.

Atorka þarf að greiða Glitni þrjá milljarða

Atorka Group hefur verið dæmd til að greiða slitastjórn Glitnis þrjá milljarða króna vegna fimm afleiðusamninga sem gerðir voru í aðdraganda hrunsins. Um var að ræða tvo gjaldmiðlaskiptasamninga og þrjá samninga um gjaldmiðlaviðskipti og framvirk gjaldmiðlaviðskipti. Atorka krafðist sýknunar, meðal annars á forsendum þess að samningar hafi fallið niður fyrir riftun og að forsendur samninganna hafi brostið. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þau rök.

Leiguverð lækkar í borginni

Leiguverð íbúða í borginni hefur lækkað. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 121,5 stig í apríl og lækkar um 0,8% frá fyrra mánuði.

Marel fagnar 30 ára afmæli sínu

Marel hf. fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir. Marel er stærsta almenningshlutafélag landsins og það félag sem lengst hefur verið á íslenska hlutabréfamarkaðnum.

Skuldatryggingaálag Íslands aftur niður í 140 punkta

Skuldatryggingaálag Íslands er aftur komið niður í 140 punkta samkvæmt upplýsingum frá CMA gagnaveitunni. Það var síðast í 140 punktum í mars s.l. en hækkaði í 150 punkta eftir það þar til nú. Hefur álagið ekki verið lægra síðan í lok ársins 2007.

Sjá næstu 50 fréttir