Fleiri fréttir

Adobe og Advania halda daginn hátíðlegan

"Við ætlum að gera þennan dag dálítið eftirminnilegan fyrir hinar skapandi stéttir. Þess vegna er ekki bara ráðstefnugestum heldur einnig öllum öðrum tónlistaráhugamönnum boðið í lok dags á tónleika með Jónasi Sigurðssyni & hljómsveit í nýrri verslun okkar við Guðrúnartún. Tónleikana höldum við í samstarfi við Sónar-tónleikahátíðina," segir Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania.

Náði bestum árangri í janúar í Ávöxtunarleiknum

Stefán Jónsson ávaxtaði eignasafn sitt í Ávöxtunarleiknum best allra í janúar og fékk að launum i pad frá epli.is. Stefán ávaxtaði eignasafn sitt í spilapeningum um ríflega 75 prósent, en miklar hækkanir á hlutabréfum einkenndu íslenska markaðinn í mánuðinum.

Eimskip siglir til Portland í Maine

Eimskip hefur ákveðið að sigla til Portland í Maine í stað Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum frá og með síðari hluta marsmánaðar.

Loðnukvótinn aukinn um 120 þúsund tonn

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunar ákveðið að heimila veiðar á 120 þúsund tonnum af loðnu í viðbót við áður útgefnar aflaheimildir.

Sjómönnum fækkar en landvinnslufólki fjölgar

HB Grandi hefur ákveðið að leggja einum frystitogara sínum og breyta öðrum í ísfisktogara. Ástæðan er betri afkoma landvinnslunnar og skerðing á aflaheimildum. Á næsta fiskveiðiári mun félagið því gera út þrjá frystitogara í stað fimm en fjóra ísfisktogara í stað þriggja. Auk togaranna gerir HB Grandi út þrjú uppsjávarskip.

Tómas Hrafn í eigandahóp Málflutningsstofu Reykjavíkur

Tómas Hrafn Sveinsson héraðsdómslögmaður hefur gengið í eigendahóp Málflutningsstofu Reykjavíkur. Hann hefur undanfarin ár starfað hjá Landslögum - lögfræðistofu. Tómas útskrifaðist með cand. juris gráðu frá Háskóla Íslands með 1. einkunn árið 2006, fékk málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2007.

Skuldir Aurum Holding niðurfærðar fyrir sölu

Ákæra á hendur Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og tveimur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis í svokölluðu Aurum Holding máli var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Róttækar aðgerðir þarf til að hindra annað hrun á Íslandi

Í frétt á Bloomberg fréttaveitunni segir að annað hrun sé óumflýjanlegt fyrir Ísland, nema komi til róttækra aðgerða við afnám gjaldeyrishaftanna. Núverandi fyrirkomulag gjaldeyrisuppboða Seðlabankans feli í raun í sér endurlífgun vaxtamunaviðskiptanna, sem leiddu til aflandskrónuvandans. Sá vandi nemur yfir 400 milljörðum króna í dag.

Þorbjörn Guðmundsson: Málið dregur úr trúverðugleika lífeyrissjóðakerfisins

Dómsmál á hendur fyrrverandi starfsmanni Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem hagnaðist um 600 milljónir á gjaldeyrisviðskiptum samhliða störfum sínum fyrir sjóðfélaga, er ekki einsdæmi, en embætti sérstaks saksóknara hefur fleiri sambærileg mál til rannsóknar. Þorbjörn Guðmundsson, formaður Samiðnar og stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða, segir að máli dragi úr trúverðugleika lífeyriskerfisins, en breytingar á verklagsreglum eftir hrun eigi að koma í veg fyrir að starfsmenn lífeyrissjóða stundi stórfelld viðskipti á markaði meðfram störfum sínum fyrir sjóðfélaga.

Mikil tækifæri í ferðaþjónustu á Norðurlandi

Ferðamönnum á Norðurlandi hefur fjölgað mikið milli ára, en í desember 2012 voru gistnætur á hótelum í landshlutanum 60 prósent fleiri en árið á undan. Hótelstjóri Icelandair hotel Akureyri, segir mikil tækifæri í því fólgin að efla ferðaþjónustu yfir vetrartímann á Norðurlandi.

Hilmar Veigar hlaut UT verðlaun Ský 2013

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, hlaut í dag UT verðlaun Ský 2013. "Hilmar er einn þeirra sem hefur komið að og hvatt til hugmyndaauðgi í sprotastarfsemi og þannig tekið þátt í vexti tölvuleikjaiðnaðar á Íslandi og aðstoðað þar sem þeir hafa getað," segir í rökstuðningi valnefndar.

Sigurður bætir við eign sína í Icelandair

Sigurður Helgason, stjórnarformaður Icelandair Group, jók í dag við hlutafjáreign sína í Icelandair er hann keypti bréf í félaginu fyrir 42,2 milljónir króna. Í flöggun til Nasdaq OMX Kauphallar Íslands segir að Sigurður hafi keypt fjórar milljónir hluta á genginu 10,55 og á eftir kaupin um 14 milljónir hluta í Icelandair.

Gengi bréfa Icelandair Group búið að fjórfaldast

Gengi bréfa Icelandair Group er komið yfir 10 eftir að það hækkaði um 2,52 prósent í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa félagsins hefur því ríflega fjórfaldast á ríflega tveimur árum, en þegar Icelandair var endurskráð á markað, árið 2010, var skráningargengið 2,5. Gengi bréfa Icelandair er nú 10,57.

Kaupþing og Al Thani ná samkomulagi

Kaupþing og Sheikh Mohammed Bin Khalifa Bin Hamad Al Thani og tengdir aðilar hafa náð samkomulagi um uppgjör sín á milli. Bankinn mun því hætta öllum málarekstri gegn Al Thani.

Fullyrða að sjóðurinn hafi ekki komið nálægt brotunum

Forsvarsmenn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fullyrða að sjóðurinn, stjórnendur hans eða aðrir starfsmenn eigi enga aðild að máli þar sem fyrrverandi starfsmaður sjóðsins hefur verið ákærður fyrir stórfellt skattalagabrot. Umræddur maður er grunaður um að hafa svikist um greiðslu á 60 milljónum króna í skatt. Ákæra sérstaks saksóknara var þingfest í dag.

Launin „út úr korti“ - málaferli beinast aðeins að Glitni

Stjórnarmaður í Samtökum landssamtaka lífeyrissjóðanna segist telja laun slitastjórnarmanna í þrotabúum föllnu bankanna út úr öllu korti, en lífeyrissjóðir sem eru kröfuhafar í bú Glitnis teldu að slitastjórn Glitnis hefði ofgreitt sér ríflega 400 milljónir króna í laun fyrir störf sín og sinna fyrirtækja fyrir þrotabú bankans.

Kópavogur semur um endurfjármögnun á erlendu láni

Kópavogsbær hefur gert samkomulag við Lánasjóð sveitarfélaga um 5 milljarða kr. lán til að endurfjármagna lán við Dexia Local Crédit upp á 35 milljónir evra sem er á gjalddaga í maí 2013.

Gengisfall krónunnar bætir hag lífeyrissjóðanna

Gengisfall krónunnar er meðal þeirra þátta sem gerðu það að verkum að eignir lífeyrissjóðanna jukust um rúma 53 milljarða króna í desember. Þetta er mesta aukning eignanna í einum mánuði á síðustu tveimur árum.

Seðlabankinn lækkar fjárhæðir í útboðum sínum

Í ljósi reynslu af framkvæmd gjaldeyrisútboða Seðlabankans og með tilliti til opinberrar umræðu að undanförnu um lágmarksfjárhæðir í útboðunum hefur verið ákveðið að lækka fjárhæðirnar í næstu útboðum sem verða í mars.

Jón Ásgeir fagnar endalokum Baugsmálsins

"Ég get ekki annað en fagnað í dag þegar Baugsmálinu lýkur loks eftir 11 ára málaferli. Það er í sjálfu sér ákveðinn sigur fyrir okkur. Stórglæpurinn fannst ekki og enginn fer í fangelsi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson sem var aðaleigandi Baugs.

Jón Ásgeir greiðir 62 milljóna króna sekt

Jón Ásgeir Jóhannesson var í Hæstarétti í dag dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot tengt Baugsmálinu. Hann var líka dæmdur til að greiða 62ja milljóna króna sekt í ríkissjóð vegna málsins. Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 32ja milljóna króna sektar. Kristín Jóhannesdóttir, systir Jóns Ásgeirs, var dæmd i þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Bankarnir herða sultarólina

Talsmenn stóru bankanna þriggja segja ljóst að ná þurfi rekstrarkostnaði þeirra niður, en samkvæmt nýútkominni skýrslu Samkeppniseftirlitsins jókst kostnaðurinn um ellefu milljarða króna á milli áranna 2011 og 2012.

Afnema sjálfvirk áhrif verðbólgu

Meðal kosta nýja húsnæðislánakerfisins sem ASÍ kynnti í dag er að sjálfvirk áhrif verðbólgu á höfuðstól eftirstöðva lánsins verða afnumin og áhættunni af lántökunni er deilt milli fjármagnseigenda og lántaka með sanngjarnari hætti en nú er. ASÍ kynnti kerfið á blaðamannafundi klukkan eitt í dag. Eins og greint var frá á Vísi byggir kerfið að danskri fyrirmynd.

Mál Hannesar gegn slitastjórn tekið fyrir í dag

Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, hefur stefnt slitastjórn Glitnis vegna málsóknar slitastjórnarinnar á hendur Hannesi, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Ingibjörgu Pálmadóttur, Lárusi Welding og fleirum fyrir dómstól í New York. Málið var höfðað vorið 2010 en dómari í New York vísaði því frá þar sem það heyrði ekki undir dóminn.

DUST 514 orrusta í Hörpu

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP efnir til orrustu í Norðurljósasal Hörpu dagana 8. til 9. febrúar. Þar gefst gestum tækifæri á að prófa nýjustu afurð fyrirtækisins, skotleikinn DUST 514, sem nýlega var gerður aðgengilegur almenningi í svokallaðri Beta prufuútgáfu.

Funda með AGS í Washington

Nefnd á vegum íslenskra stjórnvalda fundar nú með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Fulltrúar úr stjórnmálaflokkum skipa nefndina en formaður hennar er Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur.

Ísfélagið ætlar líka að taka þvagsýni

Ísfélagið í Vestmannaeyjum og fleiri atvinnuveitendur í bænum, ætlar að fara að fordæmi vinnslustöðvarinnar og taka þvagsýni af starfsmönnum til að kanna hvort þar eru leifar af fíkniefnum. Þetta kemur fram í viðtali við Elliða Vignisson bæjarstjóra í Eyjafréttum. Þá telur hann líkur á að íþróttafélög leiti sömu leiða. Hann átti nýverið fund með hópi heimafólks um þennan vanda, sem ekki er talinn meiri í Eyjum en annarsstaðar, en þar séu hinsvegar góð skilyrði til að taka á honum.-

Kynna hugmyndir að nýju húsnæðislánakerfi

Alþýðusamband Íslands ætlar að kynna hugmyndir að nýju húsnæðislánakerfi á Íslandi á blaðamannafundi í dag. Kerfið byggir á danskri fyrirmynd. Í tilkynningu frá ASÍ segir að húsnæðislánakerfið þar í landi hafi verið sett á fót fyrir rúmum 200 árum og hefur á þeim tíma staðið óhaggað af sér kreppur, styrjaldir og önnur áföll. Vísir verður á staðnum og ætlar að segja frá fundinum í sérstakri Twitter lýsingu. Það er Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sem mun kynna hugmyndirnar en þær hafa verið í mótun í um það bil ár.

Alvogen kaupir rúmenskt lyfjafyrirtæki

Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur keypt rúmenska samheitalyfjafyrirtækið Labormed. Kaupin eru mikilvægur áfangi fyrir uppbyggingu Alvogen í Mið- og Austur Evrópu en Labormed er eitt af stærstu samheitalyfjafyrirtækjum Rúmeníu. Starfsemi Alvogen nær nú til um 25 landa og starfsmenn félagsins eru 1700, þar af 400 í Rúmeníu og 20 á Íslandi. Alvogen gefur kaupverð fyrirtækisins ekki upp.

Rekstur bankanna kostar á við tvo Landspítala

Rekstrarkostnaður bankanna á föstu verði hefur aukist verulega á hverju ári frá hruni. Rekstur 14 lánastofnana árið 2011 kostaði 30% meira á föstu verði en rekstur 32 lánastofnana fyrir áratug síðan og kostnaðurinn jafnast á við tvo Landsspítala í dag.

Fjárfestingarleið Seðlabankans aðeins fyrir ríka fólkið

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að þótt lágmarksfjárhæð í svokallaðri fjárfestingarleið bankans gagnist aðeins ríku fólki hafi verið nauðsynlegt að hafa kröfur um lágmarksfjárhæð vegna þess að markmiðið hafi verið að laða háar fjárhæðir til landsins í erlendum gjaldeyri. Fjárfestingarleiðin er einn liður í áætlun bankans um afnám hafta.

Hagnaður Össurar nam tæpum 5 milljörðum

Hagnaður Össurar á nýliðnu ári nam 38 milljónum bandaríkjadala, eða um 4,8 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrirtækisins sem birt var í dag. Til samanburðar nam hagnaðurinn 35 milljónum bandaríkjadala í fyrra.

Hægari hagvöxtur en áður var talið

Nýjustu hagvísar benda til þess að hagvöxtur í fyrra hafi verið heldur minni en áður hafði verið talið. Þetta kemur fram í peningamálum Seðlabankans sem kom út í dag.

Seðlabankinn dregur verulega úr væntingum um hagvöxt

Endurskoðuð spá í Peningamálum Seðlabankans sem birt var í dag gerir því ráð fyrir að hagvöxtur í fyrra hafi verið 2,2% í stað 2,5% í nóvemberspá bankans. Horfur fyrir þetta ár hafa að sama skapi versnað og er nú spáð 2,1% hagvexti í ár í stað tæplega 3% í nóvember. Skýrast lakari horfur í ár einkum af hægari vexti fjárfestingar í orkufrekum iðnaði en einnig vegur hægari vöxtur einkaneyslu nokkuð þungt.

Sigfríð Eik ráðin framlkvæmdastjóri Heilsu

Sigfríð Eik Arnardóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Heilsu ehf. Sigfríð er með B.S. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniskóla Íslands og M.S. gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.

Vöruskiptin hagstæð um 11,6 milljarða í janúar

Vöruskiptin í janúar voru hagstæð um 11,6 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta er nokkuð betri árangur en í janúar í fyrra þegar vöruskiptin voru hagstæð um 10,1 milljarða króna.

Stýrivextir verða óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum í 6%. Þetta er í takt við spár sérfræðinga.

Sjá næstu 50 fréttir