Viðskipti innlent

Skuldir Aurum Holding niðurfærðar fyrir sölu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, flytur málið fyrir hönd ákæruvaldsins.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, flytur málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Mynd/ Stefán.
Ákæra á hendur Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og tveimur fyrrverandi starfsmönnum Glitnis í svokölluðu Aurum Holding máli var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Sérstakur saksóknari lagði meðal annars fram gögn um að hlutafé fyrirtækisins hefði verð fært niður í núll á árunum 2009/2010. Á sama tíma hafi skuldir félagsins einnig verið niðurfærðar verulega, en Vísir er ekki með upplýsingar að hve miklu leyti þær voru niðurfærðar. Þessar upplýsingar voru lagðar fram vegna bréfs Jóns Ásgeirs Jóhannessonar til sérstaks saksóknara um að Aurum Holding hafi verið selt bandaríska fjárfestingasjóðnum Apollo í fyrra fyrir því sem nemur 36 milljörðum íslenskra króna.

Ákæran í Aurum málinu lýtur að sex milljarða króna láni Glitnis til félagsins FS38 til kaupa á 26% hlut í Aurum Holding, en sérstakur saksóknari telur að hluturinn hafi verið keyptur á yfirverði og áhættunni af láninu hafi allri verið velt yfir á Glitni banka.

Sagt hefur verið frá því, meðal annars hér á Vísi að, í bréfi Jóns Ásgeirs til Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, kemur fram að slitastjórn Landsbankans hafi nýverið selt Aurum, en kaupandinn er bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Apollo. Jón Ásgeir bendir á að söluverð hlutafjárins hafi verið u.þ.b. 107,5 milljónir breskra punda og vaxtaberandi skuldir eru u.þ.b. 67,5 milljónir breskra punda, samtals u.þ.b. 175 milljónir breskra punda. Það eru um 36 milljarðar íslenskra króna. „Söluverði er því ívið hærra, en vænt söluverð félagsins til austurlenska skartgripafyrirtækisins Damas á árinu 2008, sem viðskipti milli FS38/Fons og Glitnis banka hf. voru byggð á og sæta nú að því er virðist enn rannsókn embættisins.

Næsta fyrirtaka í Aurum málinu verður þann 3. apríl næstkomandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×