Fleiri fréttir

Bílaleigum afhentir 250 nýir Hyundai bílar

Hyundai er fyrst bílaumboða þetta vorið að afhenda nýja bíla til bílaleiga en þær hafa nú fest kaup á u.þ.b. 250 nýjum Hyundai bílum af gerðunum i30 og i20 sem verða afhentir á næstu vikum.

Arnór: Hrapaleg mistök að slíta samstarfinu við AGS

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri segir að það væru hrapaleg mistök að slíta samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS). Það myndi kosta lægra gengi en ella og ekki yrði ráðlegt að leysa gjaldeyrishöftin á sama tíma.

LÍÚ segir þörf á 100 milljarða afskriftum í sjávarútvegi

Afskrifa þarf allt að tuttugu prósent af skuldum sjávarútvegsfyrirtækja eða um hundrað milljarða króna til að þau geti starfað eðlilega og ráðið við sínar skuldbindingar. Þetta segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri Landssambands Íslenskra útvegsmanna (LÍÚ).

Hotel D´Angleterre í hendur skilanefndar Landsbankans

Skilanefnd Landsbankans (LBI) hefur leyst til sín allar eignir Nordic Partners. Stjórnendateymi í Lettlandi undir forystu Daumants Vitols eignast 51% hlutafjár í NP Limited. Aðrar eignir sem LBI leysir til sín frá Nordis Partners eru 5 Dornier þotur og þrjú hótel í Kaupmannahöfn, þar á meðal Hotel D´Angleterre.

Gengi krónunnar veikist, vísitalan í 230 stig

Gengi krónunnar hefur veikst nokkuð það sem af er degi eða um 0,66%. Gengisvísitalan er nú aftur komin í 230 stig eftir að hafa verið undir því gildi að undanförnu.

Greining: Verðbólgan hefur náð hámarki

Greining Íslandsbanka telur að verðbólgan hafi nú náð hámarki og að draga fari úr verðbólgu að nýju í næsta mánuði. Spáir greiningin nú 0,9% hækkun vísitölunnar á öðrum ársfjórðungi ársins, og á seinni helmingi ársins telur greiningin að hækkun vísitölunnar muni nema aðeins 1,1% gangi spáin eftir.

Auður Capital tapaði 88 milljónum í fyrra

Tap Auðar Capital nam 88 milljónum króna í fyrra. Fjárhagsstaða félagsins er mjög traust, fyrirtækið er skuldlaust og eigið fé nemur rúmum 1,1 milljarði króna.

Íslandsbanki frestar vaxtahækkunum á húsnæðislán

Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun um að fresta vaxtaendurskoðun verðtryggðra og erlendra húsnæðislána bankans sem eru á vaxtaendurskoðun á þessu ári, til ársins 2013 Er þetta gert til að koma til móts við þá viðskiptavini bankans sem eru með húsnæðislán og hafa þurft að takast á við hækkandi greiðslubyrði í kjölfarið á veikingu íslensku krónunnar og aukinni verðbólgu.

Markaðurinn gerir ráð fyrir 35% endurheimtum hjá Straumi

Verð á skuldabréfum í Straumi er nú komið í 35% af nafnverði þeirra að því er kemur fram á vefsíðunni Keldan. Samkvæmt þessu gerir markaðurinn ráð fyrir að þetta hlutfall muni endurheimtast upp í kröfur þrotabúsins.

Verðbólgan 8,5 prósent

Verðbólgan mælist nú 8,5 prósent. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 362,9 stig og hækkaði hún um 0,55% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,0 stig og hækkaði hún um 1,05% frá febrúar. Þetta kemur fram í frétt frá Haqstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs því hækkað um 8,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,0%. Verðbólgan var 7,3% við síðustu mælingu í febrúar.

Hagnaður N1 nam 277 milljónum í fyrra

Hagnaður N1 hf. árið 2009 er 277,4 milljónir kr. eftir skatta. Veltufé frá rekstri nam 1,8 milljarður kr. en var 1,2 milljarður kr. árið áður. Eigið fé félagsins er rúmlega 6,6 milljarðar kr. í árslok 2009.

Fimmta hver króna ríkissjóðs fer í vaxtagreiðslur

Í fyrra voru heildarvaxtagjöld ríkissjóðs 90 milljarðar kr eða 19,5% af tekjum ríkissjóðs og samkvæmt fjárlögum 2010 verða vaxtagjöld í ár 94,3 milljarða kr eða rúm 20% af heildartekjum. Fimmta hver króna sem greidd er í ríkissjóð fer því í vaxtagreiðslur af skuldum ríkissins.

Styrkja vernd minnihluta

Ríkisstjórn samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tveimur frumvörpum Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis. Þau eru frumvarp um breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög sem fjallar um vernd minnihluta hluthafa og frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila, sem leggur til að ráðherra verði heimilt að að hleypa af stokkunum víðtækri rannsókn á fjárhagsstöðu heimila og áhrifum úrræða í skuldamálum.

Hlutabréf Century Aluminum hækkaði um 6,25 prósent

Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags álversins á Grundartanga, hækkaði um 6,25 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi hlutabréfa Icelandair Group, sem hækkaði um 3,45 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa Bakkavarar Group um 3,33 prósent, Eik Banka um 1,81 prósent og Marels um 1,3 prósent.

Daufur dagur á skuldabréfamarkaðinum

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í litlum viðskiptum 2,5 milljarða kr. Bæði GAMMAi: Verðtryggt og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkuðu lítillega.

Sjávarútvegurinn skuldar þrotabúum 300 milljarða

Reikna má út að sjávarútvegurinn, það er útgerð og fiskvinnsla, skuldi nú þrotabúum stóru bankanna þriggja um 300 milljarða kr. af heildarskuldum sínum sem nema hátt í 600 milljörðum kr. í dag.

Mikill hallarekstur á ríkissjóði í janúar

Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 13 milljarða kr., sem er tæplega 29 milljarða kr. lakari útkoma en árið 2009. Tekjur reyndust 27,6 milljörðum kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um tæpa 3,8 milljarða kr.

Hlutabréf Haga rafrænt skráð í júní

Stjórn Haga hefur ákveðið að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands þann 23. júní n.k. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag.

Íslendingar langt í frá einir að glíma við vaxandi skuldir

Heildarskuldir hins opinbera í lok síðasta árs námu 1.176 milljörðum kr. sem jafngildir 78% af landsframleiðslu. Þetta er auðvitað slæm staða en ekki má þó gleyma því að Ísland er langt því frá eina ríkið sem glímir við vaxandi skuldir um þessar mundir.

Íslandsbanki með ráðleggingar í skattamálum

Þar sem stutt er í skil á skattframtölum einstaklinga, eða 26. mars nk. stendur Íslandsbanki fyrir fundi um skattamál einstaklinga í dag, þriðjudaginn 23. mars kl. 17.00 í útibúi bankans við Gullinbrú.

Leikhúsgestum fækkaði um 14% milli ára

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var tæplega 356 þúsund á síðasta leikári. Það samsvarar því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fækkaði um 56 þúsund frá því á leikárinu þar á undan. Það jafngildir fækkun gesta um 14 af hundraði.

Skuggastjórnendur ekki sóttir til saka

Rannsóknir sérstaks saksóknara hafa leitt í ljós að hér á Íslandi var lítil sem engin fjarlægð mynduð við eigendur hlutafélaga, ólíkt því sem tíðkaðist erlendis. Hér á landi voru eigendur miklu stærri þátttakendur í stjórnun bankanna. Þeir munu að öllum líkindum sleppa, þar sem refsiábyrgðin var hjá stjórn og forstjóra.

Tap Skipta nam 10 milljörðum króna

Hagnaður Skipta, móðurfélags Símans, á árinu 2009 fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 8,7 milljörðum króna. Sala jókst um 2% frá fyrra ári, nam 39,7 milljörðum króna samanborið við 39 milljarða árið áður, að fram í kemur í tilkynningu fyrir fyrirtækinu.

Alex Jurshevski: Ætlum ekki að græða á vanda Íslands

Alex Jurshevski, sérfræðingur í skuldavanda fullvalda ríkja og einn eigenda ráðgjafarfyrirtækisins Recovery Partners, segir að fyrirtækið leitist ekki við að hagnast á kostnað fyrirtækja eða þjóða í vanda. Auk þess ráðleggi fyrirtækið ekki ríkisstjórnum um útgjaldastefnu eða einkavæðingu.

Héraðsdómur skilgreinir hagnað sem launatekjur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur tekið undir með yfirskattanefnd og úrskurðað að hagnað af viðskiptum með eignarhluti í fyrirtækjum beri að skilgreina sem launatekjur en ekki fjármagnstekjuskatt.

Nefndin samþykkir fjárfestingu Magma

Nefnd um erlendar fjárfestingar sest á fund klukkan þrjú í dag til að taka ákvörðun um hvort fjárfesting kanadíska félagsins Magma Energy í HS orku, standist ákvæði íslenskra laga. Búist er við því að fundurinn standi í tvær klukkustundir. Fundurinn er framhald af fundi nefndarinnar frá því á föstudag. Þá var búist við því að niðurstaða fengist í málið.

Fiskimjöl skráð sem hvalamjöl vegna mistaka

Vegna fréttar um ólöglegan útflutning á hvalaafurðum til Danmerkur hefur sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytið sent frá sér tilkynningu þar sem segir að um mistök í tollskráningu hafi verið að ræða.

Kaupsamningum um íbúðarhúsnæði fer fjölgandi

Nokkuð fleiri kaupsamningum um íbúðarhúsnæði hefur verið þinglýst það sem af er þessu ári en á sama tímabili í fyrra. Þannig hafa að meðaltali verið gerðir um 44 samningar á viku hverri frá áramótum en á sama tíma í fyrra voru gerðir um 32 samningar og jafngildir þetta aukningu upp á ríflega þriðjung.

Kauphöllin íhugar að kæra Bakkavör til FME

Komi til þess að Bakkavör Group hf. verði breytt úr hlutafélagi í einkahlutafélag, án þess að hlutabréf þess hafi áður verið tekin úr viðskiptum í kauphöll samkvæmt þeim lögum sem um það gilda, lítur Kauphöllin svo á að um sé að ræða brot á samningi félagsins við Kauphöllina.

Dönsk svín fóðruð með ólöglegu íslensku hvalkjöti

Dýraverndunarsamtökin WDCS, sem stuðla að verndun hvala og höfrunga, hafa ákært Dani fyrir að nota ólöglegt íslenskt hvalkjöt í svínafóður. Þetta kemur fram í skýrslu samtakanna um verslun Íslendinga með hvalaafurðir árin 2009 og 2010.

Kaupmáttur launa heldur áfram að lækka

Vísitala kaupmáttar launa í febrúar 2010 er 104,8 stig og lækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,4%.

Mikil hlutafjárauking áformuð hjá Atlantic Petroleum

Aðalfundur Atlantic Petroleum samþykkti heimild til stjórnar félagsins um að auka hlutafé þess um allt að 200 milljónir danskra kr. eða 4,6 milljarða kr. að nafnverði. Heimildin gildir til ársloka 2014.

Sala Sjóvar frestast líklega

Sölu Sjóvár verður að öllum líkindum frestað þar sem verðhugmyndir fjárfesta ríma ekki við væntingar ríkissjóðs og skilanefndar Glitnis. Fjármálaráðherra segir að fyrirtækið verði ekki selt á undirverði.

Sjá næstu 50 fréttir