Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Icelandair selur 20% hlut í Travel Service í Tékklandi Icelandair Group hf. gekk í gær frá sölu á um 20% hlut í tékkneska flugfélaginu Travel Service. Eftir viðskiptin á Icelandair Group um 30% hlut í Travel Service. Kaupandinn er Canaria Travel sem er eigu í sömu aðila og hafa verið meðeigendur Icelandair Group í Travel Service. 26.11.2009 10:25
Landsbankinn setur Toyota umboðið í sölumeðferð Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. hefur ákveðið að setja hlutabréf Toyota á Íslandi hf. í sölumeðferð en félagið flytur Toyota og Lexus-bíla inn til Íslands. Það er Nýi Landsbankinn (NBI) sem sér um söluna. 26.11.2009 09:35
Hver Íslendingur ver 42. 000 króna í jólainnkaup Gert er ráð fyrir að jólaverslunin verði óbreytt frá síðasta ári að magni til en vegna verðhækkana verði veltan 8% meiri í krónum talið. Hver Íslendingur mun að jafnaði verja 42.000 kr. til jólainnkaupa. 26.11.2009 09:25
Forstjóri Byrs tekur leyfi Ragnar Z Guðjónsson hefur ákveðið að láta tímabundið af störfum sem sparisjóðsstjóri Byrs. Eins og kunnugt er fóru fulltrúar embættis sérstaks saksóknara inn í höfuðstöðvar Byrs og óskuðu eftir aðgangi að gögnum vegna rannsóknar á lánaveitingum Byrs til Exeter Holdings og tengdra fjármálagerninga. Þá var Ragnar kallaður til skýrslutöku. 26.11.2009 09:07
Ársverðbólgan mælist 8,6% Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2009 er 356,2 stig og hækkaði um 0,74% frá fyrra mánuði. Ársverðbólgan mælist því 8,6% en hún var 9,7% í síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 335,7 stig og hækkaði hún um 0,96% frá október. 26.11.2009 09:06
Viðskiptum með krónur á aflandsmarkaði fækkar Frá nýliðnu sumri hefur þeim dögum fækkað sem ekki hefur verið lagt fram annað hvort kaup- eða sölutilboð. Breytingar á genginu hafa í kjölfarið orðið minni og sömuleiðis hefur verðbilið dregist saman. 26.11.2009 08:32
Ríkissjóður með 200 milljarða kröfu í Sparisjóðabankann Slitastjórn Sparisjóðabankans hefur að svo stöddu hafnað 200 milljarða kr. kröfu ríkissjóðs í þrotabú bankans. Krafa ríkissjóðs er tilkomin vegna svokallaðra „ástarbréfa" eða endurhverfra viðskipta Sparisjóðabankans við Seðlabankann en bankinn var hvað stórtækastur í þeim viðskiptum af öllum íslensku bönkunum fyrir hrun. 26.11.2009 08:26
Brúttóhagnaður Bakkavarar 9 milljarðar á 3. ársfjórðungi Brúttóhagnaður (EBITDA) Bakkavarar jókst um 45% á þriðja ársfjórðungi og varð 9 milljarðar kr. samanborið við 6,2 milljarða kr. á sama ársfjórðungi 2008. 26.11.2009 08:10
Vill rifta sölunni á bréfum í Baugi Skiptastjóri Baugs hefur krafist riftunar á kaupum Baugs á eigin bréfum fyrir 15 milljarða króna í júlí 2008. Seljendur bréfanna voru eignarhaldsfélög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Pálmadóttur og Hreins Loftssonar. 26.11.2009 07:36
Kröfum ríkisins í Sparisjóðabankann ekki hafnað Kröfur í þrotabú Sparisjóðabankans, áður Icebank, nema samtals 368 milljörðum króna. Þær eru 242 talsins. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Kröfur upp á 81 milljarð hafa verið samþykktar. 26.11.2009 05:00
Síminn ódýrastur Ný úttekt Póst og fjarskiptastofnunnar á verðskrám farsímafyrirtækjanna leiðir í ljós að ódýrast er að vera í áskrift hjá Símanum. 25.11.2009 19:15
Úrvalsvísitalan hækkar Bakkavör hækkaði í dag um 12,50 prósent eftir að hafa fallið talsvert í síðustu viku en Icelandair Group hf., lækkaði hinsvegar um 1,28 prósent. Úrvalsvísitalan (OMX16) hækkaði um 0,42 prósent og var 784,27 stig við lokun kauphallarinnar. 25.11.2009 17:06
Heildarvelta á skuldabréfamarkaði 3,5 milljarðir króna Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 3,52 milljörðum króna. Þar af var 2,11 milljarður í óverðtryggðum ríkisbréfum en 1,4 milljarðar í verðtryggðum íbúðabréfum. 25.11.2009 16:56
Áætla að meira en helmingur af virði eigna endurheimtist Slitanefnd Frjáls fjárfestingarbankans áætlar að 50 til 65% endurheimtist af virði eigna bankans sem var tekinn til slita samkvæmt ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur í júní þegar eigið fé hans var uppurið. Helstu þættir sem hafa áhrif á endurheimturnar eru þróun á fasteignamarkaði, gengi gjaldmiðla, hagvöxtur og atvinnu- og launaþróun, að fram kemur í tilkynningu. 25.11.2009 16:41
Gera ráð fyrir að 65% fáist upp í almennar kröfur í Frjálsa Slitastjórn Frjálsa fjárfestingabankans gerir ráð fyrir að hægt verði að greiða allt að 65% upp í almennar kröfur í bankann. 25.11.2009 15:06
Saga Capital lýkur sölu skuldabréfa fyrir Kópavogsbæ Saga Capital hefur lokið við sölu verðtryggðra skuldabréfa fyrir Kópavogsbæ í útboði til fagfjárfesta á innlendum verðbréfamarkaði. Seld voru skuldabréf fyrir 2,8 milljarða króna með 5% verðtryggðum vöxtum. 25.11.2009 14:31
Misskilningur hjá starfsmanni Danske Bank Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi Landsbankans segir að frétt á forsíðu Vísis um yfirfærslu gjaldeyris úr Danske Bank til Landsbanka er byggð á misskilningi. 25.11.2009 13:24
Finnur Sveinbjörnsson: 90 prósent lítilla fyrirtækja í góðu lagi Níutíu prósent lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru í viðskiptum við Arion banka eru í góðu lagi. Þetta kom fram í máli Finns Sveinbjörnssonar, forstjóra Arion á hádegisverðarfundi Félags Viðskipta- og hagfræðinga sem haldinn var á Grand Hótel í dag. 25.11.2009 13:18
Greining gagnrýnir hringlandahátt Seðlabankans „Væri ekki úr vegi að bankinn útskýrði betur slík frávik frá yfirlýstri stefnu sinni, þar sem slíkar fyrirvaralausar og óútskýrðar breytingar á framkvæmd peningastefnunnar eru ekki til þess fallnar að auka gagnsæi peningastefnunnar eða trúverðugleika bankans." 25.11.2009 13:13
Dregið á hluta norrænu lánanna fyrir jól Seðlabankinn stefnir að því að draga á hluta þeirra lánalína sem nú hafa opnast frá Norðurlöndunum fyrir jól. Þetta kom fram í máli Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, á hádegisverðarfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga á Grand Hótel í dag. 25.11.2009 12:36
Allur tekjuskattur 150.000 einstaklinga í vaxtagreiðslur Allur tekjuskattur ríflega hundrað og fimmtíu þúsund landsmanna á næsta ári mun að öllum líkindum jafngilda því sem ríkissjóður þarf að greiða í vexti af lánum, þótt ekki sé byrjað að greiða af Icesave. 25.11.2009 12:32
Skattabyrðin jókst mest á Íslandi af OECD ríkjum 1995-2007 Á síðustu árum hefur hlutfall skatta af landsframleiðslu á Íslandi verið töluvert yfir meðaltalinu í öðrum ríkjum OECD enda jókst skattbyrðin meira hér á landi en í nokkru öðru ríki á tímabilinu 1995 til 2007, eða úr 31,2% í 40,9%. 25.11.2009 12:15
Danske Bank neitar að millifæra fé til Landsbankans Sigurður Jónsson þriggja barna fjölskyldufaðir lenti í því nýlega að geta ekki fengið lítilisháttar séreignasparnað sinn og konu sinnar millifærðan frá Danmörku inn á reikning sinn í Landsbankanum. Danske Bank neitaði að millifæra upphæðina og fékk Sigurður þau skilaboð frá starfsmanni Danske Bank að slíkt væri algerlega óheimilt þar sem Landsbankinn ætti í hlut. 25.11.2009 11:06
ÍLS heldur óbreyttum vöxtum á yfirteknum skuldabréfum Stjórn Íbúðalánasjóðs (ÍLS) hefur nú samþykkt að réttur til að breyta vöxtum skuldabréfa sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum skuli ekki nýttur í fyrsta sinn sem slíkur réttur myndast. 25.11.2009 10:52
Samkomulag um áframhaldandi rekstur Fosshótels Baron Nýlega var undirritaður samningur milli Fosshótela ehf. og Neskjara ehf. um áframhaldandi samstarf aðila. Ágreiningur sá er upp kom aðila í millum hefur þar með verið leystur. 25.11.2009 10:35
Aðsgerðaráætlun um Einfaldara Ísland siglir í strand Haustið 2006 samþykkti þáverandi ríkisstjórn aðgerðaáætlun um „Einfaldara Ísland" og í kjölfarið var skipaður samráðshópur ráðuneyta, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins sem var forsætisráðherra til aðstoðar við að framfylgja henni. Þessari áætlun hefur verið siglt í strand að mati Hannesar G. Sigurðssonar aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins (SA) og í staðinn kominn þveröfug stefna hjá núverandi ríkisstjórn. 25.11.2009 10:09
Dráttarvextir lækka um eitt prósentustig Dráttarvextir lækka og fara úr 19% niður í 18% fyrir tímabilið 1. desember til 31. desember 2009. Þetta kemur fram í mánaðarlegri tilkynningu Seðlabankans um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. 25.11.2009 09:25
Þjónustujöfnuður jákvæður um 20,8 milljarða Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi var samkvæmt bráðabirgðatölum 92,3 milljarðar kr. en innflutningur á þjónustu 71,5 milljarðar kr.. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 20,8 milljarða króna. 25.11.2009 09:03
Segist ekki hafa vitað um fyrri eigendur stofnfjárbréfa í Byr Fyrrum stjórnarmaður Exeter Holdings, sem sætir rannsókn sérstaks saksóknara, Ágúst Sindri Karlsson, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að honum hafi ekki verið kunnugt um fyrri eigendur stofnfjárbréfa í BYR. 24.11.2009 19:41
Fyrsta dómsmálið vegna neyðarlaganna þingfest í héraði Þýski bankinn DekaBank hyggst höfða skaðabótamál á á hendur íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna og er þegar komið til meðferðar hjá íslenskum dómstólum samkvæmt seinni fréttum RÚV í kvöld. 24.11.2009 23:14
Starfsfólki og stjórn Byrs létt vegna rannsóknar Stjórn Byrs hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna húsleitar sérstaks saksóknara í höfuðstöðvum bankans í dag. Þar kemur fram að tilefni húsleitarinnar er málefni Exeter Holdings, einkahlutafélags sem keypti stofnbréf í Byr með láni frá sparisjóðnum. 24.11.2009 18:02
iPhone í verslanir Síminn hefur fengið fyrstu sendinguna af iPhone símum og verða þeir seldir í versluninni í Kringlunni. Sala símanna hófst í dag kl 17:00 og eru þeir ólæstir og tilbúnir til notkunar. 24.11.2009 17:47
Velta á skuldabréfamarkaði nam tæpum 8 milljörðum króna Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í dag nam 7,98 milljörðum króna. Þar af var 6,35 milljarðar í óverðtryggðum ríkisbréfum en 1,63 milljarðar í verðtryggðum íbúðabréfum. 24.11.2009 16:50
Skeljungur og tengd félög í opið söluferli Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á 49% hlut í Skeljungi hf. og tengdum félögum. Félögin sem umræðir eru S fasteignir ehf., Ö fasteignir og Birgðastöðin Miðsandur ehf. en öll eru þau í dag í eigu Miðengis ehf., dótturfélags Íslandsbanka. 24.11.2009 16:33
Dómstóll í Delaware staðfestir greiðslustöðvun deCODE Dómstóll í Delaware staðfesti í dag beiðni deCODE um greiðslustöðvun samkvæmt 11. Kafla í bandarísku gjaldþrotalöggjöfinni. 24.11.2009 15:44
Gjörningar gömlu bankanna riftanlegir tvö ár aftur í tímann Fjármálagjörningar gömlu bankanna þriggja og annarra fjármálafyrirtækja sem tengjast bankahruninu fyrir ári síðan verða riftanlegir 2 ár aftur í tímann nái frumvarp Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra um málið fram að ganga. 24.11.2009 15:30
Húsleitir bæði hjá MP banka og Byr Í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á kaupum félagsins Exiter ehf á stofnbréfum í BYR sparisjóði haustið 2008 fóru fram húsleitir á í MP banka og Byr í dag að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. 24.11.2009 15:08
Sérstakur saksóknari aflaði gagna í húsleit hjá Byr Menn á vegum Ólafs Haukssonar sérstaks saksóknara öfluðu gagna í húsleit í Byr í dag í framhaldi af rannsókn þeirri sem Fjármálaeftirlitið vísaði til sérstaks saksóknara varðandi eignarhaldsfélagið Exeter Holdings. 24.11.2009 14:55
Gengi krónu á aflandsmarkaði lækkar töluvert Gengi krónunnar á aflandsmarkaðinum hefur lækkað töluvert undanfarnar tvær vikur eða síðan Moody´s lækkaði lánshæfismat sitt á ríkissjóði. Sölugengið stendur nú í 232 krónum fyrir evruna samkvæmt viðskiptavefsíðunni keldan.is 24.11.2009 13:50
Greining: Spáir 4% verðlagshækkun næstu 6 mánuði Þótt verðbólga muni sennilega lækka niður fyrir 8% fyrir árslok mun hún taka tímabundinn kipp í upphafi næsta árs vegna hækkana hins opinbera á sköttum og gjöldum að mati greiningardeildar Arion banka. Spáir greiningin því að verðlag muni hækka um 4% á næstu sex mánuðum. 24.11.2009 13:08
Verulega dregur úr aukningu peningamagns í umferð Mjög hefur hægt á aukningu peningamagns í umferð undanfarna mánuði, enda má segja að framboð lausafjár í fjármálakerfinu hafi oftast verið meira en eftirspurn það sem af er ári. Samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans var grunnfé í lok septembermánaðar alls tæpir 161 milljarðar kr. Þar af voru seðlar og mynt í umferð röskir 25 milljarðar kr. en innstæður innlánsstofnana 136 milljarðar kr. 24.11.2009 12:34
Svartsýni neytenda færist í vöxt að nýju Eftir samfellda hækkun undanfarna þrjá mánuði lækkaði Væntingavísitala Gallup á milli október og nóvember, úr 47,9 stigum í 44,3 stig. Þetta bendir til þess að svartsýnin í garð efnahags- og atvinnuástandsins sé að aukast og nokkuð ríkjandi meðal íslenskra neytenda. 24.11.2009 12:20
Óheppilegt að bankafólk í þröngri fjárhagsstöðu ráðgefi um fjármál Það hafa alltaf gilt mjög strangar reglur um fjárhagsstöðu bankastarfsfólks segir bankastjóri Arion og það er óheppilegt að fólk í þröngri fjárhagsstöðu sé að ráðleggja viðskiptavinum um fjármál. 24.11.2009 12:04
Saga Capital lýkur endurskipulagningu sinni Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur lokið við endurskipulagningu á efnahagsreikningi bankans. Í því felst að eignasafni Saga Capital er skipt upp þannig að þær eigur sem tilheyra bankastarfsemi verða áfram innan hans en aðrar eigur eru seldar, m.a. eigur sem draga kunna úr rekstrarhæfi og eiginfjárstyrkleika. 24.11.2009 11:54
Nafni Rekstrarfélags Kaupþings breytt í Stefnir hf. Á hluthafafundi Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem haldinn var í dag, var tekin ákvörðun um að breyta nafni félagsins í Stefnir hf. 24.11.2009 10:29