Óheppilegt að bankafólk í þröngri fjárhagsstöðu ráðgefi um fjármál Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 24. nóvember 2009 12:04
Það hafa alltaf gilt mjög strangar reglur um fjárhagsstöðu bankastarfsfólks segir bankastjóri Arion og það er óheppilegt að fólk í þröngri fjárhagsstöðu sé að ráðleggja viðskiptavinum um fjármál. Allir starfsmenn bankans fengu í gær bréf þar sem fram kom að þeir sem nýti sér greiðsluaðlögun vegna fjárhagserfiðleika verði fluttir til í starfi eða sagt upp störfum. Í bréfinu kom fram að tilflutningi í starfi eða uppsögn verði ekki beitt í þeim tilvikum þegar starfsfólk nýtir sér greiðslujöfnun, skuldaaðlögun eða þaðan af vægari skuldaúrræði. Þurfi starfsmaður hinsvegar að nýta sér róttækari leiðir líkt og greiðsluaðlögun verður viðkomandi fluttur til í starfi eða sagt upp. Um innri reglur bankans er að ræða en þær hafa verið við lýði frá árinu 2004. Stjórn bankans hefur nú samþykkt að ofangreind útfærsla af þeim gildi til ársloka 2010. Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arions, sagði í samtali við fréttastofu að það hefðu alltaf gilt mjög strangar reglur um fjárhagsstöðu bankastarfsfólks. Með greiðsluaðlögun sé nánast verið að svipta fólk fjárræði þó það sé ekki gjaldþrota. Það sé óheppileg staða að starfsmenn í þröngri fjárhagsstöðu séu að ráðleggja viðskiptavinum um fjármál. Finnur segir ennfremur að starfsmenn hafi að undanförnu kallað eftir upplýsingum um hvaða leiðir bankinn hyggist fara í þessum efnum. Hann efast um að margir starfsmenn bankans þurfi að nýta sér róttækari úrræði líkt og greiðsluaðlögun og því snerti þetta ekki marga innan bankans.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Sjá meira