Hver Íslendingur ver 42. 000 króna í jólainnkaup 26. nóvember 2009 09:25
Gert er ráð fyrir að jólaverslunin verði óbreytt frá síðasta ári að magni til en vegna verðhækkana verði veltan 8% meiri í krónum talið. Hver Íslendingur mun að jafnaði verja 42.000 kr. til jólainnkaupa.Þetta kemur fram í árlegri spá Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólanum á Bifröst um jólaverslunina. Í fyrra minnkaði jólaverslunin um 18,3% frá árinu áður á föstu verðlagi. Það var verulegur samdráttur því árlegur vöxtur jólaverslunarinnar hafði verið að meðaltali 7,3% í fjögur ár þar á undan.Í skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar um jólaverslunina kemur einnig fram að áætlað sé að velta í smásöluverslun sem rekja má til jólanna nemi um 13,4 milljörðum króna sem jafngildir því að hver Íslendingur verji að jafnaði næstum 42.000 kr. til jólainnkaupa. Í fyrra var þessi upphæð 38.600 kr.Í tilkynningu um málið segir að Rannsóknasetrið geri árlega könnun meðal almennings um hvernig þeir haga jólainnkaupunum. Meðal niðurstaðna í þeirri könnun kemur fram að fólk byrjar fyrr á jólainnkaupunum en áður var og dreifir þeim jafnvel á allt árið.Algengast er að hver fullorðinn verji um 25 - 75 þús. kr. til jólagjafakaupa. Mun færri en áður segjast kaupa jólagjafir fyrir meira en 100 þús. kr. Þá kemur í ljós að fleiri kaupa jólagjafir erlendis en í fyrra og fleiri versla á netinu fyrir þessi jól en áður hefur verið.Jólagjöfin í ár er: „jákvæð upplifun". Þetta er niðurstaða dómnefndar sem hafði fengið hátt á annað hundrað tillögur að „jólagjöfinni í ár". Þessi gjöf er talin falla vel að þeim tíðaranda sem nú ríkir. Í þessu vali felst að jólagjöfin veiti þeim sem fær gjöfina jákvæða upplifun og verðið rúmist innan fjárhags gefandans.Í rökstuðningi dómnefndar segir ma: „Þannig gjafir gefa þeir sem láta ímyndunaraflið ráða för og velja eftir áhugasviði þess sem fær gjöfina. Dansnámskeið fyrir afa, flúðasigling fyrir frænku, miði á leiksýningu fyrir besta vininn eða iljanudd fyrir eiginmanninn. - Möguleikarnir eru óteljandi og takmarkast bara af hugarfluginu." Jólagjöfin í ár getur þannig bæði verið vara eða þjónusta.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira