Svartsýni neytenda færist í vöxt að nýju 24. nóvember 2009 12:20
Eftir samfellda hækkun undanfarna þrjá mánuði lækkaði Væntingavísitala Gallup á milli október og nóvember, úr 47,9 stigum í 44,3 stig. Þetta bendir til þess að svartsýnin í garð efnahags- og atvinnuástandsins sé að aukast og nokkuð ríkjandi meðal íslenskra neytenda.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þrátt fyrir þessa lækkun mælist gildi vísitölunnar nú töluvert hærra en það var á sama tíma fyrir ári, auk þess hærra en það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna. Í nóvember í fyrra mældist vísitalan 23,2 stig og frá hruni bankanna hefur hún að meðaltali verið um 31 stig.Er því ljóst að íslenskir neytendur telja ástandið nú ekki jafn slæmt og fyrir ári og aðeins bjartara en það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna. Það var Capacent Gallup sem birti þessar niðurstöður könnunnar sinnar nú í morgun.Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar lækkuðu á milli október og nóvember síðastliðinn sem bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði eru minni nú en fyrir mánuði síðan. Ætla má að væntingar neytenda um skattahækkanir hafi haft áhrif á þessa mælingu í október.Mat á núverandi ástandi lækkar um rúmt stig og mælist 8,5 stig en væntingar til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði lækka um rúmlega 5 stig og mælast 68,1 stig. Um 76% svarenda telja að efnahagsástandið sé slæmt um þessar mundir og um helmingur þeirra telja að atvinnumöguleikar séu litlir.Þá telja ríflega 38% svarenda að efnahagsástandið verði verra eftir 6 mánuði og 25% að atvinnumöguleikarnir verði minni eftir þann tíma. Einnig telja 41% þeirra að heildartekjur þeirra muni lækka á næstu sex mánuðum.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Sjá meira