Fleiri fréttir

Straumur hækkar um 14,43 prósent

Gengi hlutabréfa í Straumi rauk upp um 14,43 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, um 4,29 prósent og í Bakkavör um 1,49 prósent.

Segir fjármálaráðherra hafa vitað af ráðningu Ásmundar

Haukur Halldórsson varaformaður bankaráðs Landsbankans segir að ráðning Ásmundar Stefánssonar í stól bankastjóra hafi verið gerð í samráði við fjármálaráðherra. Hann segir ákvörðunina hafa verið bankaráðs og Ásmundur hafi ekki sóst eftir embættinu. Ljóst sé að staða bankastjóra verði auglýst þegar efnahagsreikningur bankans liggi fyrir og vonast Haukur til að svo geti orðið seint í apríl. Hann segir bankaráð hafa talið meira gagnrýnisvert að ráða einn af framkvæmdarstjórum bankans frekar en formann bankaráðsins.

Viðskiptaráðherra leiðréttir Davíð Oddsson

Vegna ummæla formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stjórn Fjármálaeftirlitsins, í bréfi sínu til forsætisráðherra 8. febrúar 2009, vill viðskiptaráðuneytið taka eftirfarandi fram:

Fréttaskýring: Davíð Oddsson skaðar hagsmuni þjóðarinnar

Svo virðist sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri skilji ekki nauðsyn þess að endurvekja traust og trúnað á íslenska fjármálakerfinu meðal erlendra ríkisstjórna, bankastofnanna og fjárfesta. Ef hann skildi það myndi hann láta verki sínu lokið nú þegar í stað þess að efna til deilu um afsögn sína á versta mögulega tíma fyrir íslenskan þjóðarhag.

Velta á húsnæðismarkaði hefur minnkað um 65%

Mikið hefur dregið úr veltu á húsnæðismarkaði undanfarið eða um 65% í janúar m.v. sama mánuð í fyrra. Alls voru gerðir 117 kaupsamningar um íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í janúarmánuði.

Aðalfundur Nýherja féll frá 20% arðgreiðslu fyrir síðasta ár

Fyrir aðalfund Nýherja s.l. föstudag lá tillaga um 20% arðgreiðslu. Í máli stjórnarformanns kom fram að í viðræðum við lánardrottna félagsins hafi komið fram tilmæli um að ekki yrði greiddur út arður í ljósi þeirra alvarlegu aðstæðna sem nú ríkja.

Ákvörðun Davíðs Oddssonar dregur úr trausti erlendra fjárfesta

"Það leikur lítill vafi á því að Oddsson muni víkja að lokum en mjög opinber slagsmál hans við nýja ríkisstjórn gerir augljóslega ekkert til að vekja traust fjárfesta," segir Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securites í nýmörkuðum og miðlari að stórum hluta þeirra krónubréfa sem enn eru útistandandi á Íslandi.

Straumur kominn yfir túkall á hlut

Gengi hlutabréfa í Straumi hækkaði um 4,12 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins og fór það yfir tvær krónur á hlut og hefur ekki verið hærra síðan skömmu eftir miðjan desember í fyrra.

Veltumesti mánuðurinn í kauphöllinni með skuldabréf

Heildarviðskipti með hlutabréf námu 3,0 milljörðum kr. eða 149 milljónum kr. á dag að meðaltali í janúar. Þetta kemur fram í yfirliti frá kauphöllinni. Þar segir að janúar hafi verið veltumesti mánuðurinn í kauphöllinni hvað skuldabréf varðar frá bankahruninu í október.

Eignirnar duga fyrir einum sjötta skulda

„Ég er með tuttugu þúsund pund á ári fyrir stjórnarsetu í Iceland en ekki með aðgang að bíl og þyrlu. Annað er þvæla,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs.

Segist fá 3,3 milljónir í laun á ári

Jón Ásgeir Jóhannesson situr áfram í stjórnum tveggja breskra félaga þrátt fyrir að þau hafi verið sett í greiðslustöðvun og skilanefnd Landsbankans hafi gengið að veðum í þeim. Fyrir stjórnarsetuna segist hann fá þrjú hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun.

Stjórnendur Baugs sitja áfram í stjórnum helstu fyrirtækjanna

Skilanefnd Landsbankans samdi við Jón Ásgeir Jóhannesson og Gunnar Sigurðsson, stjórnarformann og forstjóra Baugs, um að þeir haldi stjórnarsætum sínum í verslunarkeðjunum House of Fraser, Iceland, Aurum og Hamleys. Samkomulagið var gert á fimmtudagskvöld, eftir því sem vefurinn This is Money greinir frá.

Hriktir í stoðum Gaums

Það hriktir í stoðum Gaums sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu. Gaumur rekur meðal annars Hagkaup og Bónus og fer með stærsta eignarhlutann í Baugi. Með greiðslustöðvun BG Holding og yfirvofandi gjaldþroti Stoða má ætla að rúmlega 80 prósent af eignum félagsins hafi þurrkast út.

Felldu ekki gengið

Kaupþing og Exista reyndu ekki að fella gengi krónunnar á síðasta ári, þrátt fyrir kaup á tvö þúsund milljónum evra á nokkrum mánuðum. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, sem kannaði málið að beiðni Seðlabankans.

Gengi Straums og Eimskips tók stökkið í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í Straumi rauk upp um 19,75 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Eimskipafélaginu, sem hækkaði um 17,65 prósent. Þá hækkaði gengi Færeyjabanka um 1,29 prósent og Century Aluminum um 0,62 prósent.

Segir KHB að liðast í sundur og komast í þrot

Samkvæmt frétt á vefsíðunni Austurglugginn er Kaupfélag Héraðsbúa (KHB) að liðast í sundur og komast í þrot. Fjárhagsstaðan sé slík að ógjörningur sé að fleyta rekstrinum áfram.

Ákvörðun um greiðslustöðvun Baugs frestað í héraðsdómi

Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur ákvað að fresta því að taka afstöðu til óskar Baugs Group hf. um að félagið og önnur fyrirtæki því tengd fái greiðslustöðvun. Hjá dómara kom fram að honum þætti málið óljóst og enn óljósara væri hvað Baugsmenn hyggðust fyrir með fyrirtækið í framtíðinni.

Greiðslustöðvun afturkölluð til að lágmarka tjón

Ákvörðun um að afturkalla beiðni um greiðslustöðvun hjá BG Holding hér á landi var tekin til að lágmarka tjón í rekstri fyrirtækja í eignasafni Baugs. Ákvörðunin um afturköllun beiðni BG Holding mun engin áhrif hafa á aðrar umsóknir Baugs eða dótturfélaga þess.

Skilanefnd Kaupþings stefnir Tchenguiz

Skilanefnd Kaupþings hefur stefnt eignarhaldsfélagi í eigu Robert Tchenguiz vegna vangoldinnar yfirdráttarheimildar upp á rúma 107 milljarða íslenskra króna.

Seðlabankinn gat ekki komið í veg fyrir Icesave klúðrið

Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir að Seðlabanki Íslands hafi ekki getað komið í veg fyrir Icesave klúðrið. Þetta kemur fram í erindi sem Ingimundur átti að flytja í málstofu hjá finnska seðlabankanum í dag.

Búnir að missa Baug

Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson hafa misst Baug. „Ég held að það þurfi mjög mikið til að svo verði ekki," sagði Jóhannes sem var gestur Björns Inga í Markaðnum nú undir kvöld.

Landsbankinn hefur gengið að veðum í BG Holding

Landsbanki Íslands hf. hefur gengið að veðum í BG Holding ehf. sem er gert í beinu framhaldi af beiðni um greiðslustöðvun sem send var enskum dómstóli í gær. Þetta kemur fram í skilanefnd frá Landsbankanum.

Jóhannes í Markaðnum

Jóhannes Jónsson i Bónus verður gestur Björns Inga Hrafnssonar í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld. Þar mun Jóhannes svara því hvort Baugsævintýrið sé á enda nú þegar að félagið hefur óskað eftir greiðslustöðvun

Eimskip rauk upp um tæp 55 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu rauk upp um 54,55 prósent í Kauphöllinni í dag. Aðeins tvö viðskipti standa á bak við hækkunina en gengi bréfa skipaflutningafélagsins standa nú í 85 aurum á hlut.

Óskar í fjögurra manna hópi Árvakurs

Óskar Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi forstjóri Tryggingarmiðstöðvarinnar staðfestir í samtali við Vísi að hann fari fyrir hópi sem gert hefur tilboð í Árvakur, Útgáfufélag Morgunblaðsins. Óskar hefur ekki viljað gefa upp hverjir það eru sem standa að baki tilboðinu með sér en nú fær hópurinn aðgang að frekari gögnum frá Nýja Glitni sem er stærsti lánadrottinn útgáfufélagsins. Opnað verður fyrir þau gögn á morgun.

Ráðgjafar fjármálaráðuneytis Bretlands vissu um aðgerðina

Lárus Finnbogason formaður skilanefndar Landsbankans furðar sig á fréttum um að bresk stjórnvöld séu æf af reiði vegna beiðni um greiðslustöðvun hjá BG Holding ehf. „Ráðgjafar breska fjármálaráðuneytisins vissu af því sem til stóð og að við ætluðum í þessa aðgerð," segir Lárus.

Íslenskt vinnuafl orðið með því ódýrasta í V-Evrópu

Raungengi íslensku krónunnar er nú afar lágt, hvort sem miðað er við verðlag eða launakostnað. Hefur hlutfallslegur launakostnaður fallið enn hraðar en verðlag undanfarið og má segja að íslenskt vinnuafl sé orðið með því ódýrasta í Vestur-Evrópu í kjölfar gengishruns krónu á síðasta ári.

Breytingar á stjórn Seðlabankans auka trúverðugleika bankans

Greining Glitnis telur að breytingar á stjórn Seðlabankans séu til þess fallnar að auka trúverðugleika Seðlabankans innan lands sem utan, en aukinn trúverðugleiki á íslensku fjármálakerfi er afar mikil vægur þáttur í endurreisn efnahagslífsins á komandi misserum.

Nokkuð fæst upp í kröfur hjá Kaupþingi

Skilanefnd Kaupþings hefur birt mat á eignum bankans. Matið er framkvæmt af nefndinni og sérfræðingum innan bankans sem hafa þekkingu á eignunum. Niðurstaðan er sú að eignirnar eru metnar á ríflega 618 milljarða kr. og eru að mestu lán til viðskiptavina að fjárhæð 250 milljarða kr.

Sjá næstu 50 fréttir