Viðskipti innlent

Segja 80% fyrirtækja á Íslandi tæknilega gjaldþrota

ESBA, Samtök smærri fyrirtækja innan ESB/EES, segja að 80% fyrirtækja á Íslandi vera tæknilega gjaldþrota.

Í yfirlýsingu sem ESBA hefur sent frá sér eru bresk stjórnvöld hundskömmuð fyrir framkomu sína í garð Íslendinga með beitingu hryðjuverkalöggjafar landsins gegn íslensku bönkunum s.l. haust.

Fram kemur að aðeins tveimur dögum eftir að eigur Landsbankans voru frystar í Bretlandi hafi tvö af stærstu lánafyrirtækjum heimsins, Euler Hermses og Atradium lokað fyrir öll lán til íslenskra fyrirtækja óháð viðskiptasögu þeirra hjá fyrirtækjunum eða lánshæfi.

Þetta hafi leitt til þess að um 80% íslenskra fyrirtækja séu tæknilega gjaldþrota og að fjöldi fyrirtækja sem hefur hætt starfsemi sinni hefur aukist um 200%.

Beiting hryðjuverkalaganna veki upp spurningar um misnotkun valds og eineltishegðun gegn meðlimi EES. Lögin hafi gert það að verkum að útilokað er fyrir Ísland að ná aftur trausti og trúverðugleika meðal fjárfesta og ríkisstjórna, Svo muni vera meðan Ísland er „persona non grata" í efnahagslegum skilningi.

Tina Sommer forseti ESBA segir að meðlimir samtaka hennar séu gáttaðir á því hvernig efnahagserfiðleikar Íslands hafi verið meðhöndlaðir. Samtökin krefjast þess að bresk og íslensk stjórnvöld leysi deilu sína strax og sýni í verki stuðning sinn við smærri fyrirtæki sem séu hryggjarstykkið í atvinnulífi beggja landanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×