Fréttaskýring: Davíð Oddsson skaðar hagsmuni þjóðarinnar Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 9. febrúar 2009 12:21
Svo virðist sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri skilji ekki nauðsyn þess að endurvekja traust og trúnað á íslenska fjármálakerfinu meðal erlendra ríkisstjórna, bankastofnanna og fjárfesta. Ef hann skildi það myndi hann láta verki sínu lokið nú þegar í stað þess að efna til deilu um afsögn sína á versta mögulega tíma fyrir íslenskan þjóðarhag. Ákvörðun Davíðs um að sitja áfram hefur skiljanlega vakið mikla athygli erlendra fjölmiðla og ekki hvað síst erlendra fjármálasérfræðinga. Sem stendur eru hinir erlendu sérfræðingar á einu máli um að áframhaldandi seta Davíðs sé „neyðarleg" og síst til þess sköpuð að efla traust á íslenska fjármálakerfinu. Það er augljóst að traust og trúverðugleiki á íslenska fjármálakerfið er við frostmarkið, ef ekki beinfrosið. Og því fyrr sem þjóðinni tekst að endurbyggja þetta traust, því fyrr mun þjóðin losna úr þeirri alvarlegu kreppu sem við blasir. Hver dagur sem Davíð situr í stól seðlabankastjóra lengir í hengingaról kreppunnar. Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securites í nýmörkuðum og miðlari að stórum hluta þeirra krónubréfa sem enn eru útistandandi á Íslandi segir að mjög opinber slagsmál Davíðs Oddssonar við nýja ríkisstjórn gerir augljóslega ekkert til að vekja traust fjárfesta. Siegenthaler segir að ákvörðun Davíðs um að sitja áfram sé enn einn dapurlegur snúningur í harmleik íslenskra efnahagsmála og telur að það segi sig sjálft að gjaldeyrishöftunum verði ekki létt og að fjármálamarkaðurinn komist ekki í eðlilegt horf fyrr en þetta deilumál hefur verið til lykta leitt. Lars Christensen forstöðumaður greiningardeildar Danske Bank segir það „neyðarlegt" að Davíð Oddsson seðlabankastjóri skuli neita að láta af starfi sínu. „Það er augljóst að ríkisstjórnin á ekki að blanda sér í það hvernig Seðlabankanum er stjórnað," segir Christensen. „En í ljósi þeirra mistaka sem gerð hafa verið ætti stjórn bankans þegar að hafa sagt af sér." Thomas Haugaard hagfræðingur Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn segir að það sé skynsamlegt að hreinsa til í kerfinu. „Seðlabankinn bar ábyrgð á umsjón með fjármálakerfinu. Þeir hefðu átt að átta sig á því hve alvarleg þróunin var," segir Haugaard. Þarna eru þrír sérfræðingar að tjá sig um ákvörðun Davíðs og eru ummælin öll á einn veg. Ef Davíð gæti sett þjóðarhagsmuni ofar eigin hagsmunum í þessu máli ætti hann að láta strax af þessum sandkassaleik sínum við hina nýju stjórn og sjá sóma sinn í að víkja nú þegar úr stóli seðlabankastjóra.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira