Fleiri fréttir

Krugman: Evran var mistök

Paul Krugman, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og pistlahöfundur New York Times, segir að evrusamstarfið hafi verið mistök. Evran sem slík og gallar á myntsamstarfinu hafi skapað þann vanda sem ríkin á svæðinu séu nú að glíma við.

Tekjur Google vaxa um 8,5 milljarða dala milli ára

Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Google átti góðu gengi að fagna á síðasta ári en tekjur fyrirtækisins uxu um ríflega 8,5 milljarða dala frá árinu 2010, eða sem nemur ríflega þúsund milljörðum króna. Heildartekjur voru 37,9 milljarðar dala í fyrra en árið 2010 námu þær 29,3 milljörðum dala.

Tim Cook afþakkaði 75 milljónir dollara

Tim Cook, stjórnarformaður Apple, afþakkaði 75 milljón dollara eða um 9.8 milljarða króna arðgreiðslu á dögunum. Þetta gerði hann ásamt öðrum starfsmönnum Apple sem eiga hlutbréf í fyrirtækinu.

Sparisjóðsskýrsla kemur með haustinu

Rannsóknarnefnd um starfsemi sparisjóðanna fyrir hrun hefur nú tekið skýrslur af sparissjóðsstjórum flestra sparisjóðanna. Skýrsla nefndarinnar, sem verður svipað upp byggð og skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, kemur ekki út fyrir 1. júní eins og að var stefnt heldur með haustinu.

Lagarde harðorð í garð Grikkja

Ljóst er að ekki er tekið út með sældinni að búa í Grikklandi um þessar mundir. Ríkið þiggur neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum með nokkuð ströngum skilyrðum.

Óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar sé raunhæf

Greining Arion banka segir óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2013-2015 sé raunhæf. Í Markaðspunktum sínum í dag bendir Greining á að áætlunin eigi ekki að ganga á ríkisfjármálin heldur styðja við þau en gert sé ráð fyrir að fjárfestingar í áætluninni séu fjármagnaðar annars vegar með yfirvofandi hækkun veiðigjalds og hins vegar með arði og sölu eigna ríkisins.

Facebook með nýtt myndaforrit

Facebook hefur ákveðið að fara af stað með nýtt myndaforrit fyrir snjallsíma sem kallast Camera. Forritið gerir notendum kleyft að taka myndir og deila þeim strax án þess að þurfa að hlaða upp einni mynd á hverjum tíma. Þessi nýi hugbúnaður þykir koma nokkuð á óvart því að forritið býður upp á svipaða möguleika og Instagram sem Facebook hefur ákveðið að kaupa á einn milljarð bandaríkjadala. Í fyrstu verður einungis hægt að nota Camera á Apple snjallsíma og spjaldtölvur. Í fréttatilkynningu frá Facebook er ekki tekið fram hvenær svoleiðis forrit mun fást fyrir Android eða önnur kerfi.

Landsbankinn selur hlut sinn í Hampiðjunni

Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni hf. eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Markaðsviðskipti Landsbankans munu annast sölu hlutanna í opnu útboði byggt á undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar í samræmi lög um verðbréfaviðskipti.

Stöðva viðskipti með bréf í Bankia

Viðskipti með bréf í spænska bankanum Bankia hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Madríd. Talið er að forsvarsmenn bankans ætli að fara fram á aðstoð frá spænskum stjórnvöldum upp á 15 milljarða evra að loknum stjórnarfundi í bankanum sem haldinn verður síðar í dag. Bankia er fjórði stærsti banki landsins og að hluta í eigu ríkisins eftir að lánum var breytt í hlutafé fyrir nokkrum misserum.

Hráefnið skiptir öllu máli

Pitsustaðurinn Eldofninn í Grímsbæ við Bústaðaveg er vel falið leyndarmál í miðju íbúðahverfi sem býður upp á vinalegt andrúmsloft og eldbakaðar pitsur í hæsta gæðaflokki. Mikið er lagt upp úr persónulegri og góðri þjónustu.

Rannsökuðu gjaldþol Milestone

Rannsóknir lögreglumannanna tveggja sem kærðir hafa verið ríkissaksóknara, fyrir brot á þagnarskyldu, tóku til margvíslegra þátta í starfsemi Milestone. Brot á þagnarskyldu getur varðað allt að þriggja ára fangelsi.

Landsbankinn ræðst í niðurskurð - lokar útibúum

Landsbankinn mun ráðast í mikinn niðurskurð, sem felur meðal annars í sér lokun útibúa, á næstunni. Samkvæmt heimildum Vísis verður útibúum víða um land lokað. Ekki hafa fengist nákvæmari upplýsingar um þetta. Þegar óskað var eftir upplýsingum frá Kristjáni Kristjánssyni, upplýsingafulltrúa Landsbankans, um málið sagði hann að tilkynningar frá bankanum væri að vænta.

Telur að hann hafi átt að fá aðgang að gögnunum

Skiptastjóri þrotabús Milestone segir að öll þau gögn sem afhent voru á grundvelli rannsóknarinnar hafi annaðhvort verið í eigu þrotabúsins eða þrotabúinu heimilt að fá aðgang að þeim á grundvelli gjaldþrotalaga. Þetta segir í yfirlýsingu sem Grímur Sigurðsson skiptastjóri þrotabúsins sendi frá sér í dag.

OR semur um breytingar á afborgunum lána

Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Dexia Crédit Local bankann um breytingar á afborgunum lána, meðal annars seinkun gjalddaga árið 2013. Afborganirnar, sem samningurinn nær til, nema um 5,4 milljörðum króna. Samningurinn styrkir framkvæmd aðgerðaáætlunar OR og eigenda hennar sem samþykkt var vorið 2011 og unnið hefur verið eftir síðan. Jafnframt dregur úr þörf OR fyrir erlendan gjaldeyri næstu misserin.

Samherji kærir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar

Samherji hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, frá því í síðustu viku, til Hæstaréttar Íslands. Málið snýst um húsleit og haldlagningu gagna sem Seðlabanki Íslands framkvæmdi hjá Samherja í lok mars sl. Krafa Samherja í málinu lýtur að því að fá þær aðgerðir dæmdar ólögmætar og að Seðlabankanum verði gert að skila aftur haldlögðum gögnum. Héraðsdómur úrskurðaði í málinu 15. maí og hafnaði kröfu Samherja.

Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni

Gengi hlutabréfa hjá félögum sem skráð eru á markað í Kauphöll Íslands hafa lækkað nokkuð í dag. Þannig hefur gengi bréfa í Össuri lækkað um tæplega 2 prósent og er nú 209. Gengi bréfa í Marel hefur lækkað um 0,32 prósent og er nú 156. Þá hefur gengi bréfa í Högum lækkað um 0,26 prósent og er nú 18,85.

Unnu skýrslu um gjaldþol Milestone - sinna rekstri á sviði rannsókna

Lögreglumennirnir tveir sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, Guðmundur Haukur Gunnarsson lögfræðingur og Jón Óttar Ólafsson, doktor í afbrotafræðum, reka fyrirtækið Pars Per Pars, sem sérhæfir sig í ýmis konar rannsóknum og vinnu fyrir þrotabú fjármálafyrirtækja og fjárfestingafélaga, auk annarra rannsóknarverkefna. Jón Óttar hefur m.a. sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands á sínu fagsviði.

Framtíð Lýsingar í húfi

Hæstiréttur kveður í dag upp dóm í máli fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar gegn Smákrönum. Málið snýst um það hvort gengistrygging svokallaðra fjármögnunarleigusamninga hafi verið lögleg eða ekki. Smákranar héldu því fram að gengistrygging lánssamningsins væri ólögleg og stefndi því Lýsingu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómur þar féll Smákrönum í hag en Lýsing undi ekki dómsniðurstöðunni og áfrýjaði því málinu til Hæstaréttar.

Jónas Fr: RNA hafði rangt fyrir sér

"Hæstiréttur staðfesti nýlega dóm fjölskipaðs héraðsdóms þar sem felld var úr gildi stjórnvaldssekt Fjármálaeftirlitsins á hendur EA fjárfestingafélagi (áður MP banka hf.) fyrir brot á reglum um stórar áhættuskuldbindingar (mál 593/2011). Dómurinn er athyglisverður því hann sýnir að Rannsóknarnefnd Alþingis (RNA) var á villigötum í umfjöllun sinni um stórar áhættuskuldbindingar.“

Lögreglumennirnir mættu í dómsal í máli Lárusar og Guðmundar

Tveir fyrrum lögreglumenn sem störfuðu fyrir embætti sérstaks saksóknara hafa verið kærðir til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu í starfi. Þeim er gefið að sök að hafa selt upplýsingar úr rannsókn embættisins til þriðja aðila.

Hewlett Packard rekur 27 þúsund starfsmenn

Tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Hewlett Packard hyggst segja upp 27 þúsund starfsmönnum, eða um 8 prósent af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins á heimsvísu. Aðgerðirnar eiga að spara árlega um 3,5 milljarða dala, eða sem nemur ríflega 440 milljörðum króna.

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing sýknað af kröfum Smákrana

Hæstiréttur sýknaði í dag fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu af kröfum Smákrana vegna fjármögnunarleigusamnings sem gerður var fyrir bankahrun. Smákranar héldu því fram að gengistrygging lánssamningsins væri ólögleg og stefndi því Lýsingu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómur þar féll Smákrönum í hag en Lýsing undi ekki dómsniðurstöðunni og áfrýjaði því málinu til Hæstaréttar.

Bætt þjónusta í Glerborg

Glerborg hefur fengið nýjan liðsmann í þjónustudeild sína. Stefán Geir Stefánsson hefur áratuga reynslu úr byggingariðnaðinum.

Vekur upp spurningar um framtíð fjármálakerfisins

Gríðarlegt tap sem bandaríski bankarisinn JPMorgan Chase tilkynnti nýverið um hefur sett umræðuna um hvað sé hæfilegt regluverk fyrir alþjóðlega fjármálakerfið á fullt aftur í Bandaríkjunum.

Reykjanesbær búinn að veita samþykki

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti fjárhagslega endurskipulagingu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFF) á fundi sínum í síðustu viku. Sveitarfélagið verður langstærsti einstaki hluthafi félagsins eftir hana með 56,04 prósenta hlut.

179 umsóknir til að komast í tíu teymi

Alls bárust 179 umsóknir frá yfir 400 einstaklingum um þátttöku í Startup Reykjavík, örfjárfestingaverkefni Arion banka. Í næstu viku verður tilkynnt um hvaða tíu viðskiptateymi frumkvöðla munu verða valin til þátttöku í verkefninu.

Risafjárfesting í fiskeldi sem nýtir kælivatn virkjunar

Milljarða uppbygging fiskeldisstöðvar er hafin á Reykjanesi, sem nýta mun kælivatn virkjunar til að rækta hlýsjávarfisk undir þaki. Þetta er ein stærsta erlenda fjárfestingin sem ráðist hefur verið í hérlendis eftir hrun. Þarna rennur heilt fljót af 37 stiga heitum sjó til hafs, en það voru norskir aðilar, Stolt Sea Farm, sem gripu tækifærið að nýta þetta affallsvatn Reykjanesvirkjunar til verðmætasköpunar.

Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum

Landsbankinn hefur hækkað vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum sínum. Óverðtryggðir vextir sem eru fastir í þrjú til fimm ár eru nú 7,0 til 7,3 prósent. Þeir voru 6,4 til 6,6 prósent þegar lánin voru kynnt síðastliðið haust. Breytilegir óverðtryggðir vextir á húsnæðislánum bankans eru nú 6,5 prósent en voru 5,9 prósent þegar þeir voru sem lægstir. Hækkanirnar eru afleiðing af stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands sem hafa hækkað um 0,75 prósentustig á skömmum tíma. Þeir eru nú 5,5 prósent.

Yfirhönnuður Apple sleginn til riddara

Jonathan Ive, yfirhönnuður Apple, má frá og með deginum í dag kalla sig Sir Jonathan Ive, en hann var sleginn til riddara í Buckinghamhöll fyrr í dag við hátíðlega athöfn. Hann byrjaði störf sín hjá Apple árið 1992 eftir að hafa unnið hjá sjálfstæðri hönnunarstofu. Ive var mjög góður vinur og samstarfsfélagi Steve Jobs sáluga samkvæmt frétt á vef breska ríkisútvarpsins BBC.

Stoðir vilja 22 milljarða frá Glitni

Stoðir lýstu riftunarkröfu á hendur Glitni banka á árinu 2009 vegna veðréttatilfærslna og eignasölu sem félagið telur sig hafa tapað miklu á. Krafa þess í því máli hljóðar upp á 22 milljarða króna.

Tíu sóttu um stöðu forstjóra FME

Tíu manns sóttu um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem auglýst var laust til umsóknar fljótlega eftir að Gunnar Andersen lét af starfi. Á meðal umsækjenda eru Unnur Gunnarsdóttir settur forstjóri og Vilhjálmur Bjarnason lektor í viðskiptafræði. Listann yfir umsækjendur má sjá hér að neðan.

Mikil starfsemi hjá málsvörum atvinnulífs

Velta þeirra hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á annan milljarð á ári. Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög þeirra fá samanlagt nærri milljarð í árgjöld frá aðildarfyrirtækjum.

Vöxtur sjávarútvegsins á nýjum stöðum

Töluverð tækifæri liggja í því að nýta betur fisk sem veiddur er íslenskri lögsögu, að því er athugun Íslenska sjávarklasans hefur leitt í ljós. Það eru ekki síst tækifæri í heilbrigðisgeiranum þar sem vaxtamöguleikarnir eru.

Glitnir vill fá fjórtán milljarða frá Stoðum

Slitastjórn Glitnis hefur stefnt Stoðum, sem áður hétu FL Group, til að greiða sér fjórtán milljarða króna auk dráttarvaxta. Auk þess vill slitastjórnin að ráðstöfun Stoða á fyrsta veðrétti í hollenska félaginu Ferskur Holding 1 BV, sem á meðal annars hlut í Refresco, frá því í maí 2008 verði rift. Þá var veðréttur Glitnis í félaginu gefinn eftir til að Stoðir gætu veðsett Landsbanka Íslands fyrir frekari lántökum. Slitastjórnin vill meina að umrædd aðgerð hafi verið svokallaður örlætisgerningur.

Papademos: Fyrir alla muni haldið ykkur við áætlunina!

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, segir að Grikkir verði, fyrir alla muni, að halda sig við áætlunina í ríkisfjármálum sem samþykkt var af Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðum, stjórnvöldum í Grikklandi og kröfuhöfum landsins. Einhver önnur leið muni dýpka vandamál landsins til muna og valda stórkostlegu víðtæku efnahagstjóni í Evrópu.

Ljósmyndara vísað á dyr á aðalfundi Bakkavarar

Ágúst Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör, ákvað upp á sitt einsdæmi að vísa ljósmyndara Fréttablaðsins á dyr þegar hann mætti á aðalfund félagsins sem hófst á Hótel Sögu í morgun. Hann gaf engar skýringar aðrar en þær að fundurinn væri lokaður. Ágúst meinaði ljósmyndaranum líka að taka myndir fyrir utan fundarsalinn. Bakkavör var stofnað af bræðrunum Ágústi og Lýði Guðmundssyni. Fyrirtækið er nú nánast að öllu leyti undir stjórn lífeyrissjóða og banka. Helstu kröfuhafarnir eru Arion banki, skilanefnd Glitnis, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyrissjóður.

Hætta mögulega Tchenguiz-rannsókn

Hugsanlegt er að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, á máli Vincent Tchenguiz verði látin niður falla. Málið snýst sem kunnugt er, um viðskipti Vincents og Roberts bróður hans við Kaupþing banka. Þeir voru á meðal stærstu skuldara bankans þegar hann féll. Í bréfi sem David Green, yfirmaður Serious Fraud Office, sendi frá sér í gær heitir hann því að rannsóknin verði tekin til skoðunar. Serious Fraud Office hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir húsleitir og handtökur við rannsókn á máli Tchenguizbræðranna.

Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér

Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins um tæplega 11 prósent. Þetta hrun á markaðsvirði félagsins hefur nú kallað fram sterk viðbrögð hjá fjárfestum sem hafa tapað á fjárfestingunni í Facebook, og er þar ekki síst horft til þess hvernig skráningin var kynnt fyrir þeim sem keyptu bréf strax við skráningu. Þar beinast spjótin að bankanum sem hafði umsjón með skráningarferlinu fyrir hönd Facebook, Morgan Stanley.

Fer frá Össuri til Háskóla Íslands

Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf., tekur við starfi forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands frá 1. júlí næstkomandi. Hilmar Bragi hefur í 20 ár verið í forystu rannsókna- og þróunarstarfs Össurar, sem er eitt framsæknasta fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og annað af tveimur stærstu fyrirtækjum í heimi á sínu sviði.

Húsdraumar lifna við í snjallsíma

Sunnudagsbíltúrinn er orðinn miklum mun líflegri með tilkomu fasteignaleitar Mikluborgar í snjallsíma. Áhugasamir húsleitendur geta nú með einföldum smelli á m.miklaborg.is strax séð hvaða eignir eru til sölu á hverjum stað í leit að draumahúsnæðinu.

Stærsta fasteignasala Reykjavíkur

Einkunnarorð Fasteignasölunnar Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptum.

Sjá næstu 50 fréttir