Fleiri fréttir

Vonast til að færeyska olíuævintýrið sé að byrja

Dýrasta og viðamesta olíuborun til þessa á landgrunni Færeyja er fyrirhuguð í sumar. Hún gæti jafnframt reynst lykillinn að olíuleit við Ísland. Þetta kemur fram í umfjöllun norskra og færeyskra fjölmiðla um Brugdan 2, en svo nefnist brunnurinn sem olíurisarnir Statoil og Exxon, ásamt færeyska olíufélaginu Atlantic Petroleum, ætla að bora saman við austanverðar eyjarnar. Þetta verður áttunda holan sem olíufélög bora við Færeyjar á tíu árum, en sjö fyrri holurnar hafa til þessar einungist skilað óverulegu magni af gasi. Færeyingar gera sér þó meiri vonir nú en áður enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú.

Gengi Össurar hækkaði skarplega

Gengi hlutabréfa í Össuri hækkað um tæplega 3 prósent í dag, eftir að tilkynnt var um boð stærsta hluthafa Össurar, danska fjárfestingafélagsins William Demant, í félagið í heild. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að tilboðið sé gert af tæknilegum ástæðum vegna yfirtökuskyldu. WDI hafi engin áform um að taka yfir fyrirtækið.

Bjóðast til að kaupa allt hlutafé í Össuri

William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til þess að kaupa öll hlutabréf í stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Um er að ræða stærsta hluthafann í félaginu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að tilboðið sé gert af tæknilegum ástæðum vegna yfirtökuskyldu. WDI hafi engin áform um að taka yfir fyrirtækið. WDI hafi engin áform um að taka fyrirtækið yfir og aðrir hluthafar verði hvorki hvattir né neyddir til þess að selja hlutafé sitt.

"Kómískt“ að sjá nefnd snillinga verðleggja fjármuni

Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun að fjármálakerfum vera lífsnauðsynlega svo að markaðir geti orðið skilvirkir, og virkni þeirra eðlileg. Þar sé langsamlega mikilvægast að afnema með öllu ríkisábyrgð á fjármálastarfsemi, þar ekki síst hlutverk seðlabanka við lána til þrautavara.

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðunum og undirbýr nú málaferli. Vegið er að lífeyrissjóðskerfinu með skattheimtu og ágengni stjórnmálamanna segir fyrrverandi forseti sambandsins.

Dyr að opnast inn á stærsta farsímamarkað heims

Markaðurinn fyrir smáforrit (App) í snjallsíma hefur stækkað ógnarhratt síðustu misseri, ekki síst í Asíu. Í Kína eru um einn milljarður farsímanotenda og er hlutdeild snjallsíma sífellt að stækka. Þetta gefur framleiðendum smáforrita mikil tækifæri á því að komast inn á markað sem annars er þekktur fyrir að vera með margvíslegar hindranir fyrir hugbúnaðarframleiðendur.

OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu

Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekki verður gripið til nauðsynlegra aðgerða til þess að minnka opinberar skuldir þjóðríkja. Samkvæmt nýrri spá OECD, sem Wall Street Journal vitnar til í morgun, mun landsframleiðsla í Evrópu dragast saman um 0,1 prósent á þessu ári. Til þess að hún aukist þurfa ríkisstjórnir að grípa til víðtækra aðgerða, til þess að auka hagvöxt en fyrri spá stofnunarinnar gerði ráð fyrir hagvexti upp á 0,2 prósent.

Launavísitalan lækkar um 0,1 prósent

Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,9%, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag.

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands í dag.

Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum

Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðskilja hann algjörlega frá opinberum sjóðum. Bretar hefðu getað lært mikið af framtíðarhugsjón Norðmanna, segir í myndbandsumfjöllun sem aðgengileg er á viðskiptavef Vísis, þar sem samanburður á stöðu Norðmanna og Breta, þegar kemur að sjóðum fyrir komandi kynslóðir, er til umfjöllunar.

Arionbanki hækkar vexti

Arion banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum. Vaxtahækkunin kemur í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands þann 16. maí síðastliðinn. Óverðtryggðir vextir inn- og útlána hækka um allt að 0,5%.

Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley

Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Facebook, en markaðsvirði Facebook hefur verið í frjálsu falli í dag. "Skráningarverðið hefði átt að vera helmingurinn af því sem það var,“ segir Michael Pachter, greinandi hjá fyrirtækinu Wedbush Securites, í viðtali við Wall Street Journal.

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentum, samkvæmt markaðsvakt Wall Street Journal.

Tölvur og linsur á Suðurskautinu

Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önnur heimsókn á vinnustað sem birtist á Vísi, en fyrsti vinnustaðurinn sem var heimsóttur var tölvuleikjaframleiðandinn CCP. Þá heimsókn má sjá hér.

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, er stór hluthafi, seldi 680 þúsund hluti í Marel í dag á genginu 153, eða fyrir sem nemur um 100 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu um viðskiptin til Kauphallar Íslands. Eftir viðskiptin eru um 4,7 milljónir hluta í Marel tengdir Helga í gegnum ýmis félög, en markaðsvirði þeirra er um 700 milljónir í dag.

Skemmtigarðastríð í uppsiglingu

Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk. mun Disney opna nýjan Cars-skemmtigarð í Kaliforníu sem kostar um 450 milljónir dala, eða sem nemur yfir 56,7 milljörðum króna. Forsvarsmenn Disney vonast til þess að ná að lokka fjölskyldufólk í garðinn í stórum stíl, en garðurinn verður glæsilegur í alla staði, þar sem Leiftur McQueen og félagar verða í aðalhlutverki. Disney fékk um 73 milljónir gesta í átta skemmtigarða á síðasta ári.

Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir

Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyrirtækinu Alibaba Group. Um gríðarlegar upphæðir er að ræða en Alibaba kaupir 20 prósenta hlut Yahoo á rúma sjö milljarða dollara, eða um 898 milljarða króna. Eftir viðskiptin mun Yahoo ennþá eiga 20 prósent í fyrirtækinu.

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 stig. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (áhrif á vísitölu -0,2%) en vélar, flutningur og orkunotkun hækkaði samtals um 0,9% (0,1%).

Danir auka þjónustu við BRIC-löndin

Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu, Brasilíu, Rússland, Indland og Kína, þar sem vöxtur hefur verið gríðarlega mikill undanfarin ár, á sama tíma og erfiðleikar hafa verið miklir á alþjóðavettvangi.

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evrópu, að því er greint er frá í helgarútgáfu Wall Street Journal. Þrátt fyrir að Seðlabanki Evrópu hafi lánað evrópskum bönkum ríflega þúsund milljarða evra, liðlega 166 þúsund milljarða króna, í lok síðasta árs og byrjun þessa árs, þá hefur áhyggjum fjárfesta ekki verið eytt. Lánin voru veitt á lægri vöxtum en bönkum bauðst á markaði, einkum til þess að þeir gætu endurfjármagnað skuldir ríkissjóða í Evrópu.

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert og Vincent Tchenguiz við því að rannsókn á þeirra málum gæti tekið fimm til tíu ár ef þeir myndu ekki fallast á málamiðlun sem þeim var boðin. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Daily Telegraph.

Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur"

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það heilaga með því að breyta hjúskaparstöðu sinni á áðurnefndu sköpunarverki sínu Facebook.

Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola

Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúka kaupum á farsímaframleiðandanum Motorola. Verðmiðinn er 12,5 milljarðar dala, eða sem nemur 1.587,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Kaupin voru endanlega heimiluð eftir að forsvarsmenn Google féllust á skilyrði kínverskra yfirvalda um að Android stýrikerfið standi öllum opið án kostnaðar næstu fimm árin, af því er New York Times greindi frá í dag.

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðskipti hófust með hlutabréf í Facebook. Útboðsverð bréfanna var 38 Bandaríkjadalir en verðið skaust fljótlega upp í 43 dali áður en það féll aftur niður í útboðsverðið. Við lokun markaða var verðið 38,23 dalir á hlut sem jafngildir tæpum 4.900 íslenskum krónum.

Skuldastaða evruríkjanna aðalviðfangsefnið

Búist er við því að skuldastaða evruríkjanna verði aðalviðfangsefni leiðtoga átta helstu iðnríkja, eða svokallaðra G8 ríkja, þegar þeir hittast nærri Washington í Bandaríkjunum í dag. Obama, forseti Bandaríkjanna, og Francois Hollande, nýr forseti Frakklands, munu kynna Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, áherslur sínar í efnahagsmálum. Þá er búist við því að rætt verði um mögulegt brotthvarf Grikklands úr evrusamstarfinu. Fundurinn hófst seint í gærkvöld, að því er fram kemur í fréttum BBC.

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,6 prósent og um 10,1 prósent síðasta árið.

Ergo lögmenn verða Íslenska lögfræðistofan

Lögmannsstofan Ergo lögmenn, Turninum Smáratorgi, hefur skipt um nafn og heitir nú Íslenska lögfræðistofan. Lögmannsstofan var stofnuð árið 2008 en upphaflegir eigendur hennar eru Einar Hugi Bjarnason hrl., Haukur Örn Birgisson hrl. og Jóhann Haukur Hafstein hdl. Eggert Páll Ólason héraðsdómslögmaður bættist svo í hóp eigenda fyrir skemmstu. Starfsmenn Íslensku lögfræðistofunnar eru 11 talsins, að meðtöldum eigendum.

Facebook skráð á markað

Samskiptamiðillinn Facebook hefur nú formlega verið skráður á hlutabréfamarkað. Mark Zuckerberg, meðstofnandi og stjórnarformaður Facebook, opnaði NASDAQ markaðinn frá höfuðstöðvum síðunnar í Palo Alto í Kaliforníu klukkan 13:30 að íslenskum tíma.

Galaxy S III: 9 milljón eintök seld í forpöntunum

Samsung Galaxy S III, nýjasti snjallsími Samsung, virðist ætla að slá öll met en um 9 milljón eintök af honum hafa selst í forpöntunum. Galaxy snjallsímarnir eru vinsælustu vörur Samsung en fyrirtækið er nú þegar stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar.

Verðmætið jókst um 7,8 prósent

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 256 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um 7,8% frá árinu 2010. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ritinu Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2011. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Á heimasíðu Hagstofunnar kemur einnig fram að framleiðslan mæld á föstu verði hafi aukist um 10,3%.

Jamie Dimon kallaður fyrir þingnefnd

Jamie Dimon, stjórnarformaður og forstjóri JP Morgan Chase, þarf að svara spurningum bandarískra þingamanna frammi fyrir þingnefnd vegna ótrúlegs taps bankans á viðskiptum með bandarísk fyrirtækjaskuldabréfe, í heild nam það ríflega tveimur milljörðum dala, jafnvirði yfir 250 milljarða króna. Greint er frá þessu á vef Wall Street Journal í dag.

Facebook á markað - spenna á mörkuðum

Mikill eftirvænting er meðal fjárfesta fyrir því þegar hlutir í Facebook verða teknir til viðskipta á skráðum markaði í Bandaríkjunum í dag. Á vef Wall Street Journal kemur fram að eftirvæntingin fyrir nýskráningu hafi ekki verið jafn mikil árum saman, en skráning Facebook er langsamlega stærsta skráning netfyrirtækisins í sögunni þegar horft til markaðsvirðis við skráningu. Félagið verður metið á um 104 milljarða dala, tæplega 13 þúsund milljarða, þegar það verður tekið til viðskipta, en það jafngildir um 38 dölum á hlut.

Moody's lækkar lánshæfi banka á Spáni

Matsfyrirtækið Moody's lækkaði síðdegis í gær lánshæfiseinkunn sextán spænskra banka. Þetta er enn eitt áfallið sem dunið hefur á Spánverjum undanfarin misseri en efnahagskreppan í Evrópu hefur leikið þá sérstaklega grátt. Ákvörðun Moody's kemur í kjölfar þess að hlutabréfaverð í bankanum Bankia féll um fjórtán prósent á markaði í gær og hefur verðmæti bankans minnkað um helming á tæpum mánuði.

Facebook á markað á morgun

Viðskipti með hlutabréf í Facebook munu hefjast á morgun. Sjaldan eða aldrei hefur verið beðið eftir nokkru hlutafjárútboði með eins mikilli eftirvæntingu. Búist er við því að eftirspurnin verði mikil og því mun verða seldur 25% stærri hlutur en áður hafði verið áformað að selja. Búist er við því að samkvæmt niðurstöðu útboðsins verði markaðsvirði fyrirtækisins 100 milljarðar dala, eða jafngildi 12600 milljarða íslenskra króna. Hins vegar hafa vaknað efasemdir um það hversu miklum hagnaði fyrirtækið getur skilað.

Titringur í Evrópu vegna efnahagsáfalls á Spáni

Markaðir í Evrópu hafa allir verið á niðurleið í dag vegna frétta frá Spáni um að skuldabréfaútboð hafi mistekist hrapallega. Samkvæmt niðurstöðum útboðsins er lánsfjárkostnaður tvöfalt hærri en þegar ríkið gaf síðast út skuldabréf. Búist er við því að matsfyrirtækið Moodys muni lækka mat á 21 spænskum banka í kjölfar niðurstöðunnar. Staðan er svo viðkvæm að spænska ríkisstjórnin hefur þurft að gefa út yfirlýsingu um að bankakerfið hafi ekki orðið fyrir áhlaupi.

Arnarlax fékk rekstrarleyfi fyrir 200 tonna eldi

Arnarlax fékk í gær rekstrarleyfi frá Fiskistofu fyrir 200 tonna eldi á tveimur stöðum í Arnarfirði, eftir því sem fram kemur á vefnum Arnfirðingur.is. Félagið áformar uppbyggingu á þrjúþúsund tonna eldi með fullvinnslu afurðanna á Bíldudal. Í framhaldi af leyfisveitingunum mun fyrirtækið fara af stað með tilraunaeldi nú í vor og í framhaldi uppbygging eldisins sem áætlað er að verði á þremur stöðum. Áætlanir fyrirtækisins eru að starfsemi vinnslunnar geti hafist haustið 2014.

Frakkar munu ekki samþykkja áætlanir ESB að óbreyttu

Nýr fjármálaráðherra Frakklands ítrekaði í sjónvarpsviðtali í gær að ný sósíalistastjórn Frakklands myndi ekki staðfesta fjárhagsáætlanir Evrópusambandsins óbreyttar. Ráðherrann, Pierre Moscovici, segir að áætlanirnar verði að miða að því að auka hagvöxt til að Frakkar geti staðfest hann. Fjárhagsáætlunin felur hins vegar aðallega í sér niðurskurð á fjárlögum aðildarríkja. Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, lagði mikla áherslu á það í aðdraganda forsetakosninganna að niðurskurður myndi einn og sér ekki bæta efnahagsástandið á evrusvæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir