Ásgeir fær bónusinn viðurkenndan sem forgangskröfu 25. ágúst 2011 20:33 Ásgeir Jónsson.
Hæstiréttur Íslands snéri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þegar rétturinn úrskurðaði að Ásgeir Jónsson skyldi fá bónusgreiðslur sínar hjá Kaupþingi flokkaðar sem forgangskröfur. Ásgeir starfaði sem forstöðumaður greiningadeildar Kaupþings frá árinu 2006 og gerði þá samninga um bónusgreiðslur en hann lét af störfum eftir hrunið. Kaupþing neitaði að greiða Ásgeiri bónusinn, sem nemur um þrettán hundruð þúsund krónum, á þeim forsendum að ákveðnar skipulagsbreytingar hafi orðið til þess að Ásgeir lét af störfum hjá bankanum. Slíkt samræmdist ákvæðum um að greiða ekki út bónusgreiðslurnar að mati bankans. Skipulagsbreytingarnar sem Kaupþing vitnar til er reyndar bankahrunið, en skilanefnd og slitastjórn tóku bankann yfir. Í úrskurði Hæstaréttar segir: „Krafan er samkvæmt samningnum tengd starfi sóknaraðila hjá varnaraðila með þeim hætti að hún telst endurgjald fyrir vinnu hans, enda er sérstaklega kveðið á um það í samningnum að greiðsla samkvæmt honum skuli lúta „sömu meðferð og aðrar launagreiðslur". Er þrotabúinu því gert að setja kröfu Ásgeirs í forgang eins og aðrar launakröfur. Ásgeir, sem er sonur Jóns Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ekki setið auðum höndum síðan skipulagsbreytingar bundu enda á störf hans hjá Kaupþingi; meðal annars skrifaði hann bókina Why Iceland? sem fjallaði um fjármálahrunið hér á landi.
Mest lesið Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira