Meiri undirtektir en búist var við Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. ágúst 2011 12:07 Skuldabréfaútboðið gekk vel.
Undirtektir í skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar í fyrradag voru mun meiri en í útboðinu á undan, segir Greining Íslandsbanka. Borgin getur vel unað við niðurstöðuna að mati Greiningar. Í boði var helsti skuldabréfaflokkur borgarinnar, RVK 09 1, og bárust alls tilboð að nafnvirði 2,9 ma.kr. í flokkinn á kröfubilinu 3,89% - 4,07%. Tilboðum að nafnvirði 1,4 ma.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,9%. Flokkurinn er 13,2 milljarðar króna að stærð eftir útboðið, en stærð hans var 9,3 milljarðar í byrjun ársins. Það sem af er ári hefur Reykjavíkurborg því selt RVK09-bréf fyrir 3,9 milljarða króna en áætlað er að gefa út bréf fyrir 6,3 milljarða á árinu í heild. Enn vantar því 2,4 milljarða króna upp á útgáfu ársins og áformar borgin að halda útboð á flokknum í mánuði hverjum það sem eftir lifir árs. Miðað við undirtektirnar í fyrradag ætti ofangreint markmið að nást nokkuð auðveldlega, enda er ávöxtunarkrafa RVK-bréfanna enn töluvert yfir 3,5% viðmiði lífeyrissjóðanna og fátt um aðra vænlega fjárfestingarkosti af svipuðu tagi á innlendum markaði þessa dagana. Greining segir að af útboðsniðurstöðunni á miðvikudag megi ráða að fjárfestar telji skuldabréf borgarinnar nokkuð ákjósanlegan kost og að óvissa tengd rekstri borgarinnar, og sér í lagi mögulegum búsifjum hennar vegna OR, hafi minnkað frá vordögum
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira