Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spáir minnstu verðbólgu frá árinu 2003 Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka í janúar um 0,7% frá desembermánuði. Ef spáin gengur eftir verður verðbólgan 2,1% í mánuðinum og lækkar úr 2,5% í desember. Rætist spáin hefur verðbólgan ekki verið lægri síðan um mitt ár 2003. Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl. 9:00 þann 26. janúar næstkomandi. 14.1.2011 11:50
Vestia tapaði rúmum 400 milljónum árið 2009 Eignarhaldsfélagið Vestia tapaði 413 milljónum króna á árinu 2009, en félagið var stofnað í maí á því ári. Eigið fé þess var jákvætt um 2,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Vestiu sem var skilað inn til fyrirtækjaskrár í gær. 14.1.2011 11:01
Methagnaður hjá IKEA í fyrra Sænska verslunarkeðjan IKEA, sem rekur 283 fyrirtæki í 26 löndum, skilaði methagnaði á síðasta ári. Samtals nam hagnaðurinn 2,7 milljörðum evra eða um 400 milljörðum kr. 14.1.2011 10:45
Norðmenn kaupa Regent Street Norski olíusjóðurinn hefur keypt 25 prósent af verslunargötunni Regent Street í Lundúnum. Kaupverðið er um 85 milljarðar íslenskra króna. 14.1.2011 10:26
Mikill þrýstingur á að opna ný olíusvæði í Noregi Mikill þrýstingur er nú á norsk stjórnvöld að þau opni ný svæði til olíuleitar á norska landgrunninu. Landssamtök olíuiðnaðarins í Noregi (OLF) krefjast þess að Stórþingið taki málið á dagskrá. 14.1.2011 09:31
Útgjöld til félagsverndar 380 milljarðar á árinu 2009 Útgjöld til félagsverndar námu rúmum 380 milljörðum króna á árinu 2009 eða 25,3% af landsframleiðslu og hækkuðu verulega frá árinu 2008 er þau námu 22% af landsframleiðslu. 14.1.2011 09:11
Stækkun verksmiðju Actavis lokið Actavis á Íslandi hefur lokið við að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði og eykst framleiðslugetan við það úr einum milljarði taflna í einn og hálfan milljarð taflna á ári. Verksmiðjan verður opnuð formlega í dag, 14. janúar kl.10:30, að viðstöddum forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni. 14.1.2011 09:07
Fórnarlömb Madoffs fá 800 milljarða endurgreidda Dómari í New York hefur úrskurðað að fórnarlömb fjársvikarans Bernard Madoff eigi að fá 800 milljarða kr. endurgreidda úr dánarbúi auðmannsins Irving Picard. 14.1.2011 08:35
Lán ÍLS í desember námu 2 milljörðum Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu um 2 milljörðum króna í desember, en þar af voru rúmir 1,7 milljarðar króna vegna almennra lána. 14.1.2011 07:57
Fór langt fram úr heimildum Rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum brotum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs er lokið. Lífeyrissjóðurinn lánaði bæjaryfirvöldum í Kópavogi 600 milljónir króna í kjölfar bankahrunsins síðla hausts 2008 og námu lánin allt að fimmtungi eiginfjár sjóðsins. Hámark er tíu prósent. 14.1.2011 06:00
Greiningarfyrirtæki telur byrðina af Icesave hóflega Ef ekkert óvænt gerist ætti Icesave-samningurinn að vera hófleg byrði á ríkissjóði, gangi grunnspár eftir. Þetta er mat IFS, þjónustu- og ráðgjafarfyrirtækis á sviði fjármála og greininga. Fyrirtækið lagði mat á nýjan Icesave-samning að ósk fjárlaganefndar Alþingis. Nefndin fjallar þessa dagana um samninginn og fer yfir umsagnir sem um hann bárust. 14.1.2011 05:30
Lánasafnið kostaði Landsbankann 121 milljarð Heildarupphæðin, sem Landsbankinn borgaði til þess að kaupa lánasafnið af Landsbankanum í Lúxemborg, sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, nam um 784 milljónum evra, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 13.1.2011 15:48
Íslandsbanki eignast Jarðboranir hf. Sú breyting hefur orðið á eignarhaldi Jarðborana hf. að Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, fer nú með allt hlutafé í félaginu. Breytingin á eignarhaldi kemur til í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar Íslandsbanka á Jarðborunum en sú vinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði. 13.1.2011 15:37
Þjóðhagsvarúð sé í forgangi við fjármálaeftirlit Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um hlutverk seðlabanka í fjármálaeftirliti. Ein megin ályktunin sem dregin hefur verið af reynslu við fjármálaeftirlit undanfarin ár er að setja þurfi svokallaða þjóðhagsvarúð í forgang við hönnun nýrrar umgjarðar fyrir fjármálaeftirlit. 13.1.2011 15:17
Einkaneyslan rétti vel úr kútnum í árslok Einkaneysla virðist heldur betur hafa rétt úr kútnum undir lok síðasta árs, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans sem birtar voru í gær. Nam kreditkortavelta í desember síðastliðnum 26,5 milljörðum kr. og var það 4% meiri velta í krónum talið en í mánuðinum á undan. 13.1.2011 14:30
Alvarleg matvælakeppa í uppsiglingu í heiminum Nýjar tölur frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu um birgðastöðu landsins í korni og sojabaunum benda til að alvarleg matvælakreppa sé í uppsiglingu í heiminum. Kreppan gæti orðið verri en sú sem skall á árið 2008 og hafði í för með sér blóðug uppþot í mörgum löndum. 13.1.2011 13:41
Samherji kaupir tvö erlend útgerðarfélög Útgerðarfélagið Samherji hefur fest kaup á tveimur erlendum útgerðargélögum. Samherji á nú Pesquera Ancora á Spáni og helmingshlut í Compagnie des Peches Saint Malo í Frakklandi í gegnum dótturfélag sitt UK Fisheries. 13.1.2011 12:29
Rúmlega 80% sætanýting hjá Iceland Express Iceland Express ætlar að auka sætaframboð félagsins um rúm 20 prósent á þessu ári miðað við í fyrra enda fjölgaði farþegum félagsins á flesta áfangastaði, sem Iceland Express flýgur til. Til dæmis voru farþegar Iceland Express tæplega áttatíu þúsund í júlí síðastliðnum, sem er 35 prósenta fjölgun frá sama tíma árið áður. Þá jókst markaðshlutdeild Iceland Express á flugleiðinni milli Keflavíkur og London um 38,24 % í júlí. Hlutur félagsins á þessari flugleið hefur aldrei verið stærri í átta ára sögu þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express. 13.1.2011 12:09
Væntingar um verðbólgu ekki minni síðan 2007 Í desember síðastliðnum vænti almenningur þess að verðbólgan verði 4% eftir 12 mánuði samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerir fyrir Seðlabanka Íslands og niðurstöður voru birtar um í hagvísum bankans fyrir sama mánuð. Samkvæmt þessari könnun hafa væntingar almennings um verðbólgu ekki verið minni síðan í ágúst árið 2007. 13.1.2011 12:07
Spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í febrúar Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 2. febrúar næstkomandi. 13.1.2011 11:56
Olían ýtir undir sjálfstæðisferli Grænlendinga Markmið Grænlendinga um að öðlast fullt sjálfstæði frá Dönum nálgast óðum í takt við hækkandi olíuverð og aukinn áhuga olíufélaga á að vinna olíu við Grænland. 13.1.2011 11:19
Procar kaupir 100 bíla frá B&L og Ingvari Helgasyni Bílaleigan Procar, sem leigir að jafnaði um 200 bíla, hefur fest kaup á eitt hundrað bílum frá bílaumboðinu B&L og Ingvari Helgasyni. Var samningur þess efnis undirritaður í gær, miðvikudag. 13.1.2011 11:10
IKEA safnaði 2,4 milljónum handa Barnaheill og UNICEF Fyrsta nóvember á nýliðnu ári hóf IKEA um allan heim söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn. Á Íslandi söfnuðust tæplega 2,4 milljónir kr. og munu þær renna til Barnaheilla og UNICEF. 13.1.2011 10:17
Skotar vilja víðtækara viðskiptabann gegn Íslandi ESB mun í dag taka ákvörðun um löndunarbann á íslensk makrílveiðiskip. Skotar telja að slíkt gangi of skammt og vilja víðtækara viðskiptabann gegn Íslandi. 13.1.2011 10:10
MP Banka skipt í tvennt, Margeir á leið úr bankanum MP Banka verður skipt í tvennt og núverandi hluthafar bankans fara að mestu út úr eigendahópi hans. 13.1.2011 09:32
Eigandi IKEA er auðugasti íbúi Sviss Ingvar Kamprad eigandi IKEA er auðugasti íbúi Sviss samkvæmt nýjum lista sem tímaritið Bilanz hefur tekið saman um 300 auðugustu íbúa landsins. Samkvæmt Bilanz nemur auður Kamprad 38 milljörðum svissneskra franka eða sem svarar til tæplega 4.600 milljarða kr. 13.1.2011 09:27
Dressmann og Rolling Stones í eina sæng Norska herrafatakeðjan Dressmann og hljómsveitin Rolling Stones hafa náð samkomulagi um samstarf sín í millum. Þar að auki hefur Dressmann látið hanna nýtt lógó og ætlar að breyta innréttingum í verslunum sínum. 13.1.2011 09:04
Heildaraflinn dróst saman um 8% á liðnu ári Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 8,2% minni en í desember 2009. Árið 2010 dróst aflinn saman um 8,0% miðað við árið 2009, sé hann metinn á föstu verði. 13.1.2011 09:01
Eik Banki seldur færeysku tryggingarfélagi Eik Banki í Færeyjum verður seldur dótturfélagi Tryggingafélags Færeyja, TF Holding. Félagið var hið eina sem bauð í bankann og hljóðar tilboðið upp á 400 til 500 milljónir danskra kr. eða um 8 til 10 milljarða kr. 13.1.2011 08:20
Velta debetkorta jókst um 1,4% milli ára í desember Heildarvelta debetkorta í desember síðastliðnum var 40,2 milljarðar kr. og er þetta 1,4% aukning miðað við desember árið áður en 31,1% aukning miðað við nóvember síðastliðnum. 13.1.2011 07:57
Gjaldeyrisforðinn jókst um 124 milljarða í desember Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 667 milljarða kr. í lok desember og hækkaði um 124,5 milljarða kr. milli mánaða. 13.1.2011 07:53
GAMMA: Kostnaður við Icesave 26 til 233 milljarðar Fjármálafyrirtækið GAMMA hefur sent til Alþingis umsögn um nýja Icesave samninginn þar sem mat er lagt á kostnaðinn af honum miðað við ólíkar forsendur. Samkvæmt GAMMA getur kostnaðurinn orðið minnst 26 milljarðar kr. en mest 233 milljarðar kr. 13.1.2011 07:48
Kanna hvort yfirtökuskylda hafi myndast í Icelandair Verið er að kanna hvort lífeyrissjóðirnir séu nú komnir með skyldu til að kaupa allt hlutafé í Icelandair og eignast þannig flugfélagið að fullu 13.1.2011 07:25
Norrænn markaður styður vöxtinn Útflutningur frá Eistlandi nam 860 milljónum evra (132,4 milljörðum króna) í nóvember síðastliðnum samkvæmt bráðabirgðatölum eistnesku hagstofunnar. Aukning frá fyrra ári nemur 48 prósentum að því er fram kemur í umfjöllun Baltic Business News. 13.1.2011 07:00
Sveitarfélög verðlögðu lóðir of hátt Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í góðærinu af fullum krafti í aðdraganda efnahagshrunsins. Lóðaverðið miðaðist við fjölda íbúða sem átti að vera í fasteignum á lóðinni og eru dæmi um að fjölbýlishúsalóð hafi verið seld með þessum hætti í nýju hverfi á um 400 milljónir króna. 13.1.2011 07:00
Kröfur í makríldeilu frá annarri plánetu Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, segir kröfur Íslendinga í deilum um makrílveiðar vera „frá annarri plánetu“. Berg-Hansen lét þessi ummæli falla í norskum fjölmiðlum í tilefni af gagnrýni þarlendra samtaka Evrópuandstæðinga, Nei til EU. Samtökin segja hana ekki hafa gagnrýnt fiskveiðistefnu Evrópusambandsins (ESB) nægjanlega, en hafi hins vegar sýnt Íslendingum og Færeyingum of mikla hörku. 13.1.2011 05:45
Varasjóðurinn stærri en heildartekjur Skuldir sveitarfélagsins Voga námu 373 prósentum af tekjum sveitarfélagsins í árslok 2009. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga segir mikilvægt að Vogar vinni markvisst að því að lækka skuldirnar á næstu árum. 13.1.2011 05:30
Forstjórinn bjartsýnn Stofnendur bílaumboðsins Öskju hafa í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar keypt 35 prósenta hlut Landsbankans í fyrirtækinu. Kaupverð er trúnaðarmál. Auk Landsbankans var samið við Íslandsbanka, Lýsingu og SP Fjármögnun. 13.1.2011 05:30
Þarf að afskrifa 800 milljónir króna Nýi SpKef hefur ákveðið að bjóða upp á breytingar á skilmálum lána sem voru tekin til kaupa á stofnfjárbréfum Sparisjóðsins í Keflavík í desember árið 2007. 13.1.2011 04:30
Meiri fiskur fer á fiskmarkaði Hlutfall þorsks, ýsu, steinbíts og ufsa sem selt er á fiskmörkuðum hefur vaxið á síðustu þremur fiskveiðiárum. Frá þessu er greint á vef Landsambands íslenskra smábátaeigenda. 13.1.2011 04:00
Sterk rök fyrir því að ljúka Icesave málinu Seðlabankinn telur sterk rök vera fyrir því að ljúka Icesave-deilunni með samningum við bresk og hollensk stjórnvöld. Bankinn segir nýja Icesave-samninginn töluvert hagstæðari en fyrri samningsdrög. Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Seðlabankans um Icesave til fjárlaganefndar Alþingis. 12.1.2011 18:11
Tæplega 14 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 13,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,5% í 4,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 8 ma. viðskiptum. 12.1.2011 16:13
Spkef býður breytingar á lánum til stofnfjárkaupa Ákveðið hefur verið að bjóða upp á breytingar á skilmálum lána þeirra einstaklinga sem keyptu stofnfjárbréf í sparisjóðum með láni frá Spkef sparisjóði. 12.1.2011 14:58
SA krefjast prósentustigs lækkunnar á tryggingagjaldi Samtök atvinnulífsins (SA) krefjast þess að atvinnutryggingagjald verði lækkað um eitt prósentustig. Gjaldið sé of hátt miðað við áætlað atvinnuleysi í ár og því beri fjármálaráðherra að flytja frumvarp á Alþingi um lækkun þess. Það hafi hann ekki gert. 12.1.2011 14:48
Mikil sala raftækja fyrir jólin Sala á raftækjum í desember jókst um 18,5% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 6,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum lækkaði um 10,5% frá desember 2009. 12.1.2011 13:55