Þarf að afskrifa 800 milljónir króna 13. janúar 2011 04:30 Sparisjóðsstjóri Nýja SpKef segir alla taka á sig skell vegna stofnfjáraukningar fyrir rúmum þremur árum.
Nýi SpKef hefur ákveðið að bjóða upp á breytingar á skilmálum lána sem voru tekin til kaupa á stofnfjárbréfum Sparisjóðsins í Keflavík í desember árið 2007. Breytingin felur í sér að lánum, hvort heldur er í íslenskum krónum eða erlendri mynt, verður breytt í krónulán til 25 ára á 3,75 prósenta vöxtum. Lánin verða færð niður að upphaflegum höfuðstól og miðast vextir við útgáfudag. Einar Hannesson sparisjóðsstjóri segir alla taka á sig skell í málinu, ekki síst nýi sparisjóðurinn sem hafi fengið eignir úr gamla sparisjóðnum á fullu bókfærðu verði. „Munur á stöðu lánanna eins og þau eru í dag miðað við verð- og gengistryggingu og eins og þau verða miðað við skilmálabreytingu er um 800 milljónir króna,“ segir hann og þarf sparisjóðurinn að afskrifa upphæðina. Boðið nær til um 260 einstaklinga sem sitji uppi með verðlaus stofnfjárbréf í gamla sparisjóðnum. Ríkið tók sparisjóðinn yfir í fyrravor og færðust lán stofnfjáreigenda yfir í nýjan sparisjóð. Meðalupphæð lána er á bilinu þrjár til fimm milljónir króna. Mörg eru undir einni milljón króna en önnur talsvert hærri. Aðgerðin nær hvorki til þeirra sem hæstu lánin tóku og settu inn í einkahlutafélög né sveitarfélaga sem keyptu stofnfjárbréf í sparisjóðnum á sínum tíma. - jab
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira