SA krefjast prósentustigs lækkunnar á tryggingagjaldi 12. janúar 2011 14:48
Samtök atvinnulífsins (SA) krefjast þess að atvinnutryggingagjald verði lækkað um eitt prósentustig. Gjaldið sé of hátt miðað við áætlað atvinnuleysi í ár og því beri fjármálaráðherra að flytja frumvarp á Alþingi um lækkun þess. Það hafi hann ekki gert. SA hefur sent bréf til fjármálaráðherra um málið. Það hljóðar svo í heild sinni: „Samkvæmt 2. gr. laga um tryggingagjald skal Atvinnuleysistryggingasjóður gefa fjármálaráðherra skýrslu um fjárhagslega stöðu sjóðsins þar sem gerð sé grein fyrir fyrirsjáanlegum útgjöldum á næsta fjárhagsári með hliðsjón af horfum um atvinnuleysi og öðrum atriðum sem áhrif hafa á fjárhagslega stöðu sjóðsins. Ef niðurstaða skýrslunnar gefur tilefni til að breyta hundraðshluta atvinnutryggingagjalds skal fjármálaráðherra flytja frumvarp þar að lútandi á Alþingi. Atvinnutryggingagjald er nú 3,81%. Á grundvelli þjóðhagsspár Hagstofunnar frá því í nóvember eru tekjur af atvinnutryggingagjaldi áætlaðar 30.594 milljónir kr. árið 2011. Atvinnuleysi er áætlað 7,3% og gjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs 23.057 milljónum kr. Tekjur af atvinnutryggingagjaldi eru því 7.538 milljónir kr. hærri en áætluð útgjöld sjóðsins eða sem svarar til 0,94% af gjaldstofni. Atvinnutryggingagjaldið ætti því að lækka í 2,87% og tryggingagjöld í heild úr 8,65% í 7,71%. Fjármálaráðherra hefur ekki flutt frumvarp um lækkun atvinnutryggingagjalds eins og 2. gr. laga um tryggingagjald kveður á um. Samtök atvinnulífsins krefjast þess að gjaldið verði lækkað í 2,87% og tryggingagjöld í heild í 7,71%."
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira