Kanna hvort yfirtökuskylda hafi myndast í Icelandair 13. janúar 2011 07:25
Verið er að kanna hvort lífeyrissjóðirnir séu nú komnir með skyldu til að kaupa allt hlutafé í Icelandair og eignast þannig flugfélagið að fullu Í vikunni var því flaggað í kauphöllinni í tengslum við hlutafjárútboð Icelandair að Framtakssjóður Íslands ætti nú 29% í Icelandair. Því var einnig flaggað að Lífeyrissjóður verslunarmanna ætti orðið tæplega 10% í félaginu og eiga þeir því samanlagt tæp 40% af hlutaféinu. Yfirtökuskylda myndast við 33% eignarhlut. Hér er um að ræða tengda aðila í þeim skilningi að Lífeyrissjóður verslunarmanna er stærsti einstaki eigandi Framtakssjóðsins með tæplega 20% hlut. Sökum þessa sendi fréttastofan fyrirspurn um málið til Fjármálaeftirlitsins. Í svari eftirlitsins segir meðal annars að ávallt sé til skoðunar hvort aðilar teljist yfirtökuskyldir samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti þ.e. einstakir aðilar sem og hvort aðilar teljist í samstarfi og því yfirtökuskyldir. Fjármálaeftirlitið er bundið af skilgreiningu laga um það hvort aðilar teljist í samstarfi. Hinsvegar geti Fjármálaeftirlitið ekki tjáð sig um það einstaka tilvik sem nefnt er í fyrirspurninni annað en eftirlitið er með slík mál til skoðunar nú sem endranær. Tekið skal fram að á síðasta ári veitti Fjármálaeftirlitið Framtakssjóðnum undanþágu til að fara með eignarhlut í Icelandair umfram yfirtökuskylduna. Sú undanþága var hinsvegar tímabundin og skilyrt.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira