Varasjóðurinn stærri en heildartekjur 13. janúar 2011 05:30 Vogar. Eirný Vals, bæjarstjóri Voga, segir bæjarstjórnina telja það ábyrga fjármálastjórn að ganga ekki á höfuðstól fjárhæðarinnar sem fékkst með sölu hlutabréfa í Hitaveitu Suðurnesja.
Skuldir sveitarfélagsins Voga námu 373 prósentum af tekjum sveitarfélagsins í árslok 2009. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga segir mikilvægt að Vogar vinni markvisst að því að lækka skuldirnar á næstu árum. Heildarskuldir og -skuldbindingar Voga námu 2.256 milljónum króna í árslok 2009. Það ár voru tekjur sveitarfélagsins 605 milljónir og 98 milljóna króna mínus var á rekstrinum. Eftirlitsnefndin bendir á að Vogar hafi hins vegar þá sérstöðu að eiga háar fjárhæð í banka. Þessi fjárhæð nam 762 milljónum króna í árslok 2009 eða upphæð sem svarar til 115 prósenta af tekjum þess árs. Sveitarfélagið geti lækkað skuldir sínar. Eirný Vals, bæjarstjóri Voga, segir peningana á innlánsreikningnum stafa af því að árið 2007 seldi sveitarfélagið meirihluta hlutabréfa sinna í Hitaveitu Suðurnesja. „Framfarasjóður sveitarfélagsins er stofnaður í kjölfar þeirrar sölu, ekki hefur verið gengið á höfuðstól en vextir hafa verið notaðir meðal annars í framkvæmdir,“ segir Eirný sem kveður bæjarstjórnina telja það ábyrga fjármálastjórn að eiga varasjóð til að mæta skuldbindingum. Ræða þurfi málið tvisvar í bæjarstjórn og kynna á opnum fundi ef ganga eigi á höfuðstólinn. Eirný segir Voga eiga í rekstrarvanda. Halda þurfi grunnþjónustu við hæfi þótt tekjur lækki milli ára. „Sveitarfélagið Vogar er ekki eitt um að standa frammi fyrir þeirri þversögn að hagræðing í rekstri gerir ekki meira en að mæta lækkun tekna milli ára en vinnur ekki upp gap sem er milli skatttekna og rekstrarútgjalda,“ segir bæjarstjórinn. - gar
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira