Einkaneyslan rétti vel úr kútnum í árslok 13. janúar 2011 14:30
Einkaneysla virðist heldur betur hafa rétt úr kútnum undir lok síðasta árs, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans sem birtar voru í gær. Nam kreditkortavelta í desember síðastliðnum 26,5 milljörðum kr. og var það 4% meiri velta í krónum talið en í mánuðinum á undan. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar jókst kreditkortavelta að raungildi um 12,7% milli ára. Þetta er mun meiri raunaukning en sést hefur á milli ára síðan í janúar 2008, en kortavelta dróst mikið saman í kjölfar hrunsins. Þessi mikla aukning í desember er fyrst og fremst tilkomin vegna mikillar raunaukningar í erlendri kortaveltu á milli ára, en erlend kortavelta jókst um ríflega 47% að raungildi og á sama tíma jókst innlend kreditkortavelta um 7,4%. Þróun debetkortaveltu bendir í sömu átt. Þannig nam debetkortavelta í innlendum verslunum í desember 25,2 milljörðum kr. og jókst að raungildi um 2,4% frá sama mánuði árið 2009. Samanlagt gefur raunbreyting kreditkortaveltu og debetkortaveltu í innlendum verslunum góða mynd af þróun einkaneyslu hérlendis. Á þann kvarða jókst kortavelta um 7,5% að raungildi í desember frá sama mánuði árið áður. Er það fimmti mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti. Þá er þetta mesti vöxtur sem sést hefur á þennan mælikvarða síðan í desember 2007. Kortaveltutölur Seðlabankans voru ekki einu vísbendingarnar sem bárust um þróun einkaneyslu í gær, því þá birti Rannsóknarsetur Verslunarinnar einnig tölur um veltu í smásöluverslun fyrir desembermánuð. Samkvæmt þeim tölum jókst velta í dagvöruverslunum um 1,2% frá sama mánuði fyrra árs á föstu verðlagi, en velta í dagvöruverslunum á þennan mælikvarða hefur nú aukist undanfarna tvo mánuði og sýnir því batamerki. Þá er velta í verslun með raftæki einnig að aukast frá sama tíma fyrra árs, en velta í raftækjaverslunum var í desember síðastliðnum 18,5% meiri en í sama mánuði árið 2009. Velta í raftækjaverslun hefur nú aukist á þennan mælikvarða samfellt undanfarna 7 mánuði og hefur frá því í apríl síðastliðnum rúmlega tvöfaldast.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira