Væntingar um verðbólgu ekki minni síðan 2007 13. janúar 2011 12:07
Í desember síðastliðnum vænti almenningur þess að verðbólgan verði 4% eftir 12 mánuði samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerir fyrir Seðlabanka Íslands og niðurstöður voru birtar um í hagvísum bankans fyrir sama mánuð. Samkvæmt þessari könnun hafa væntingar almennings um verðbólgu ekki verið minni síðan í ágúst árið 2007. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þegar þessi könnun var framkvæmd í desember árið 2009 bjóst almenningur við því að árstaktur verðbólgu í lok ársins 2010 yrði 10%, og er ljóst að verulega hefur dregið úr væntingum almennings um verðbólgu síðasta árið. Þetta er í takti við þróunina á vísitölu neysluverðs á sama tíma, en sem kunnugt er hefur verðbólgan hjaðnað verulega á síðustu misserum og mældist verðbólgan síðast, þ.e. í desember síðastliðnum, 2,5% sem jafnframt er verðbólgumarkmið Seðlabankans. Engu að síður er ljóst að almenningur væntir þess að verðbólgan verði meiri eftir ár en hún hefur verið undanfarið, en verðbólgan hefur verið undir 4% frá því í september síðastliðnum. Jafnframt eru þessar væntingar almennings um verðbólgu nokkuð umfram það sem flestar opinberar spár hafa reiknað með að hún verði. Þetta kemur ekki á óvart enda virðast verðbólguvæntingar almennings almennt ekki mótast af verðbólguspám heldur frekar af þeirri verðbólgu sem verið hefur undangengna mánuði. Þó ætti þetta að létta Peningastefnunefnd Seðlabankans framkvæmd verðbólgumarkmiðs bankans, enda hafa væntingar um minni verðbólgu m.a. þau áhrif að það dregur úr launakröfum launþega sem augljóslega ætti að öðru óbreyttu að leiða til minni verðbólguþrýstings þegar fram í sækir. Auk þess hækka seljendur innlendrar vöru og þjónustu síður verð ef þeir búast við hóflegri almennri hækkun verðlags.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira