Fleiri fréttir

Össur hífði upp úrvalsvísitöluna

Eina félagið í úrvalsvísitölunni sem hreyfðist í dag var Össur. Hækkaði Össur um 1,6% sem hafði þau áhrif að úrvalsvísitalan OMX16 hækkaði um 0,7%. Vísitalan stendur í 817 stigum eftir daginn.

Fjárfestar veðja á hækkandi verðbólgu vegna synjunar

Heildarvelta skuldabréfa nam tæpum 20 milljörðum króna í dag GAMMA. Greinilegt er að fjárfestar eru í miklu mæli að reyna að losa sig við óverðtryggð skuldabréf sem þýðir að þeir reikni með að verðbólga hækki verulega á næstunni. Þessa veltu má rekja beint til ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.

Skuldabréf Landsbankans hækkuðu um tæp 40%

Skuldabréf Landsbankans hækkuðu um tæp 40% í verði í gærdag skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti um ákvörðun sína í Icesave málinu.

Áfengissalan í fyrra 1,4% minni en árið 2008

Á árinu 2009 voru seldir rúmlega 20 milljón lítrar af áfengi. Í lítrum var salan 1,4% minni en árið 2008. Sala rauðvíns dróst saman um 2,5% en sala hvítvíns var ein fárra tegunda sem meira var selt af á árinu en salan þar var 5,1% meiri en árið áður.

Business.dk: Frá kamikaza fjármálum til bananalýðveldis

„Nú hrynur þetta alveg fyrir hið íslenska frændfólk okkar. Frá kamikaza fjármálum til bananalýðsveldis." Þannig hefst grein dálkahöfundarins Jens Chr. Hansen á vefsíðunni business.dk en Hansen er sérfræðingur Berlingske Tidende í efnahagsmálum og handhafi Calving verðlaunana dönsku.

Framkvæmdir við gagnaver Verne Holding stöðvaðar

Framkvæmdum við gagnaver Verne Holding hafa verið stöðvaðar. Tugir iðnaðarmanna sem hafa verið við störf við mikla uppbyggingu húsnæðis fyrirtækisins fengu bréf um að leggja verkfærunum þangað til annað kæmi í ljós.

Yfirlýsingar Breta um eignir Landsbankans eru endaleysa

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptarápherra, sagði í samtali við fréttastofu að yfirlýsingar Breta um að ganga að eftirstandandi eignum Landsbankans séu einhver misskilningur og lagaleg endaleysa.

Lækkun lánshæfiseinkunnar S&P mun alvarlegri en Fitch

Lækki Standard & Poors (S&P) lánshæfiseinkunn Íslands niður úr fjárfestingarflokki eru það töluvert alvarlegri tíðindi en lækkun á einkunn Fitch Ratings, þar sem fyrrnefnda fyrirtækið metur ekki einungis lánshæfi ríkissjóðs heldur einnig lánshæfi Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs.

Gylfi: Ekki hægt að sameina Arion banka og Íslandsbanka

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir að það sé ekki hægt að sameina Arion banka og Íslandsbanka eins og staðan er í dag. Sem kunnugt er af frétt hér á síðunni í morgun segir Finnur Sveinbjörnsson fráfarandi bankastjóri Arion banka að óformlegar viðræður hafi átt sér stað um slíka sameiningu.

Gert er ráð fyrir 653 milljóna tapi hjá Reykjanesbæ í ár

Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Reykjanesbæjar verði jákvæð um 47 milljónir kr. en samstæðan sem inniheldur framkvæmdir Reykjaneshafnar og félagslegar íbúðir verði neikvæð um 653 milljónir kr. á næsta ári. Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 7.924 milljónir kr. en útgjöld 7.877 milljónir kr.

Innflutningur bíla í fyrra aðeins 16,7% af 10 ára meðaltali

Innflutningur bíla hrapaði í fyrra og nam aðeins 16,7% af meðaltali síðustu 10 ára þar á undan. Í fyrra voru nýskráningar bíla samtals 2.211 talsins. Á tímabilinu 1999 til 2008 námu nýskráningar hinsvegar rúmlega 12.500 að meðaltali á hverju ári.

Skuldatryggingaálag ríkissjóðs orðið hærra en hjá Dubai

Ekkert lát hefur verið á hækkunum á skuldatrygginaálagi ríkissjóðs síðan um hádegisbilið í gærdag. Samkvæmt Credit Market Analysis er álagið komið í rúma 458 punkta og er orðið hærra en álagið hjá Dubai sem stendur í 432 punktum.

Vöruskiptin í nóvember hagstæð um 6,2 milljarða

Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,3 milljarða króna og inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 6,2 milljarða króna. Í nóvember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 2,6 milljarða króna á sama gengi.

75 fyrirtæki á hausinn í nóvember

Í nóvember 2009 voru 75 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 73 fyrirtæki í nóvember 2008, sem jafngildir tæplega 3% fjölgun milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar en eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 26 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 11 gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun og fyrirtækjum sem sinna viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.

Norðmenn veita Íslandi ekki lán fyrr en eftir þjóðaratkvæði

Sigbjörn Johnsen fjármálaráðherra Noregs segir að norsk stjórnvöld muni ekki taka afstöðu til þess hvort þau láni Íslandi í tengslum við áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en eftir að þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave er lokið. Þar með er ljóst að önnur endurskoðun á áætlun AGS sem átti að fara fram í lok þessa mánaðar mun frestast.

Ekkert lát á verðhækkunum á áli á markaðinum í London

Ekkert lát er á verðhækkunum á áli á markaðinum í London. Í morgun var verðið komið í 2.280 dollara fyrir tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verð á áli því hækkað um tæpa 40 dollara á tonnið frá áramótum.

Bretar telja sig geta lagt hald á eignir Landsbankans

Breska fjármálaráðuneytið telur að það geti lagt hald á eftirstandandi eignir Landsbankans í Bretlandi. Þetta kemur fram á vefsíðu breska blaðsins The Times en Icesave málið er aðalmál síðunnar í upphafi dagsins.

Standard & Poors ætlar líka með lánshæfismatið í ruslflokk

Matsfyrirtækið Standard & Poors hefur aftur sett lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á neikvæðar horfur og segir jafnframt að töfin sem verður á Icesave málinu muni valda því að einkunnin verði lækkuð um einn til tvo flokka innan mánaðar. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans.

Venjulegt segir Seðlabankinn

„Ég hef ekki orðið var við neitt sérstakt,“ sagði Stefán Jóhann Stefánsson, upplýsingafulltrúi Seðlabankans, spurður í gær um gjaldeyrisviðskipti eftir að forseti Íslands kynnti synjun sína í Icesave-málinu.

Vísaði gróusögum á bug um áramót

Saga Capital hefur ekki fellt niður skuldir starfsmanna sinna líkt og Kaupþing og þá hafa engir fjármunir farið frá ríkinu til Saga Capital. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, forstjóra bankans, til hluthafa á gamlársdag.

Decode vísað burt af Nasdaq

Decode, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, hefur verið tekið úr skráningu á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í New York í Bandaríkjunum. Þetta gildir frá og með deginum í dag. Eins og kunnugt er óskaði Decode eftir greiðslustöðvun seint á síðasta ári, erlenda starfsemin var farin í þrot og tilboða leitað í reksturinn á innlendri starfsemi fyrirtækisins. Að því er fram kemur í tilkynningu frá Decode er mögulegt að viðskipti verði með hlutabréf félagsins á svokölluðum „Pink sheet“ millimarkaði vestanhafs. Það er hins vegar sagt óvíst þar sem ekki sé gefið að einhver miðlari vilji skrá bréfin.

Ísland í ruslflokk og í einangrun

Lánshæfiseinkunn Íslands er komin í ruslflokk samkvæmt mati sem breska matsfyrirtækið Fitch Ratings gaf út síðdegis í gær í kjölfar þess að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði að staðfesta lög frá Alþingi vegna Icesave-saminga við Breta og Hollendinga.

Nýr við stýrið hjá Hagfræðistofnun

„Þetta verður með hefðbundnu sniði, ámóta og það hefur verið undanfarin ár,“ segir Sveinn Agnarsson hagfræðingur sem um áramótin tók við starfi forstöðumanns Hagfræðistofnunar háskólans af Gunnari Haraldssyni. Ekki var vatnið sótt langt yfir lækinn en Sveinn hefur unnið sem fræðimaður hjá stofnuninni í áratug.

Fækkar um 17% milli ára

Farþegum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fækkaði um 16,7 prósent milli síðasta árs og ársins 2008. Alls fóru tæplega 1,7 milljónir ferðamanna um völlinn á nýliðnu ári, um 4.500 á dag, samanborið við um 5.500 árið áður, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu.

Fyrirtækin verða til á servíettum

Hugmyndasamkeppni Gulleggsins, sem frumkvöðlasetrið Innovit heldur í samstarfi við fjóra háskóla, er í fullum gangi en lokafrestur til að taka þátt í henni og skila inn viðskiptahugmyndum rennur út 20. janúar næstkomandi. Keppnin hefur verið haldin í tvö ár. Í fyrra bárust 120 hugmyndir í keppnina og urðu fimmtíu að fullmótuðum viðskiptahugmyndum. Á meðal fyrirtækja sem litið hafa dagsins ljós úr henni eru sprotafyrirtækið Clara, Eff², sem þróar tækni og búnað til að greina myndefni sem dreift er ólöglega um Netið, og fjármálafyrirtækið Meniga. Alls hafa tuttugu fyrirtæki og hundrað störf orðið til í tengslum við keppnina.

Síðasta haldreipið í myrkrinu

Sjaldan ef nokkru sinni hefur verið farsælt að lenda í ruslbréfaflokki alþjóðlegu matsfyrirtækjanna. Þó er glæta í myrkr­inu sem skall á í gær í hugum sumra eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti synjaði staðfestingu á lögum um ríkisábyrgð á Icesave-samningunum og setti málið í hendur þjóðarinnar. Glætan felst nefnilega í tækifærunum sem felast í kaupum á skuldabréfum í ruslbréfaflokki. Þetta er vissulega gífurleg áhætta en líkt og matsfyrirtækið Standard & Poor‘s benti á í gær hefur ávöxtun fjárfesta sem keyptu bandarísk skuldabréf með einkunnina CCC eða minna skilað 124 prósenta ávöxtun frá í mars í fyrra.

Ríkissjóður Íslands kominn í ruslflokk

Fitch lánshæfismatsfyrirtækið hefur lækkað lánshæfismat Íslands niður í ruslflokk í kjölfar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja Icesave lögunum staðfestingar. Þetta kemur fram á fjármálavefnum Marketwathc.

Velta skuldabréfa nam 15,83 milljörðum í dag

Heildarvelta skuldabréfa á markaði í dag nam 15,83 milljörðum króna. Þar af var velta með verðtryggð íbúðabréf 2,01 milljarður og velta með óverðtryggð ríkisbréf nam 13,82 milljarða króna.

FT: Ólíklegt að Bretar semji um betri kjör á Icesave skuldum

Viðskiptablaðið Financial Times segir að það sé lítill áhugi á því innan bresku stjórnarinnar að semja við Íslendinga um betri kjör á Icesave skuldinni. Kjörin séu þegar nægilega örlát í garð Íslendinga og gefi þjóðinni sjö ára frið til að endurbyggja efnahag sinn.

Tilkynnt um 5 hópuppsagnir í desember

Vinnumálastofnun bárust 5 hópuppsagnir í desembermánuði þar sem sagt var upp 167 manns. Um er að ræða fyrirtæki í fiskvinnslu, iðnaði, verslun, flutningastarfsemi og upplýsinga- og útgáfustarfsemi.

Dagens Industri: Norrænu lánunum gæti seinkað

Sænski viðskiptavefurinn Dagens Industri hefur það eftir ónafngreindum embættismanni í finnska fjármálaráðuneytinu að ákvörðun forsetans í Icesave málinu gæti seinkað lánunum frá hinum Norðurlöndunum til Íslands.

Skuldatrygginarálag ríkissjóðs hækkaði strax

Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hækkaði strax eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti ákvörðun sína í Icesave málinu. Álagið stóð í 411 punktum við lok markaða í gærdag en er nú komið í rúma 428 punkta og er á uppleið.

Evrugengi Microsoft heldur áfram, hefur sparað 1,5 milljarð

Viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning munu verða gerð á evrugenginu 145 krónum fram til 31. mars. Sérstakt Microsoft-gengi hefur verið notað hér á landi í rúmt ár en það var innleitt í byrjun desember 2008 til að bregðast við algjöru frosti á hugbúnaðarmarkaðnum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar. Sparnaður af genginu hefur sparað 1,5 milljarð kr.

Álverð heldur áfram að hækka í London

Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka á markaðinum í London á fyrstu dögum þessa árs. Í morgun stóð verðið í 2.258 dollurum fyrir tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Hafði hækkað um 16 dollara frá því í gærdag.

Sjá næstu 50 fréttir