Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spurning hvort gjaldeyrishöftin haldi aftur af krónunni Greining Íslandsbanka veltir vöngum yfir því hvort þróun krónu hefði orðið í ætt við það sem orðið hefur í ungversku forintunni, hefði gjaldeyrishöftum verið aflétt fljótlega eftir að áætlun stjórnvalda og AGS var ýtt af stokkunum. 20.10.2009 12:27
Hagnaður NIB eykst verulega milli ára Hagnaður Norræna fjárfestingarbankans (NIB) nam 231 milljónum evra, eða rúmum 42,5 milljörðum kr., á tímabilinu janúar til ágúst í ár. Til samanburðar nam hagnaður bankans 30 milljónum evra á sama tímabili í fyrra. 20.10.2009 12:08
Landsvaki: AFL ætlar að stefna röngum aðila Landsvaki segir að Afl Starfsgreinafélag hafi aldrei gert samning um eignastýringu við Landsvaka. Félagið var hins vegar með samning um eignastýringu við Landsbanka Íslands hf. Sjóðstjórar Landsvaka önnuðust því ekki á neinum tímapunkti upplýsingagjöf til Afls eða fóru með fjármuni félagsins. 20.10.2009 11:42
Vextir lækkaðir þegar endurskoðun AGS er í höfn Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans muni ákveða að lækka vexti bankans í næsta mánuði ef endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður í höfn. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 5. nóvember næstkomandi. 20.10.2009 11:26
Kaupþing tapar dómsmáli gegn breska fjármálaeftirlitinu Dómstóll í Bretlandi (High Court of Justice) kvað í dag upp dóm í máli Kaupþings banka gegn breska fjármálaráðuneytinu. Dómstóllinn dæmir fjármálaráðuneytinu í hag í málinu sem snérist um lögmæti þess að flytja innistæður af Edge reikningum í hendur þriðja aðila. 20.10.2009 11:10
Hollenskum banka slátrað í beinni útsendingu „Ef þið erum óánægð með órökstudd yfirverð DSB bankans á íbúðalánum sínum skulið þið taka peninga ykkar út úr bankanum í mótmælaskyni." Þetta er nokkurn veginn inntak orða hins virta hollenska hagfræðings, Pieter Lakeman, í beinni útsendingu á besta tíma í hollenska sjónvarpinu í byrjun mánaðarins. Orð Lakeman ollu áhlaupi á DSB sem varð að lýsa yfir gjaldþroti sínu 11 dögum síðar. 20.10.2009 10:21
Landic Property selur danskar fasteignir fyrir 50 milljarða Fasteignafélagið Landic Property hf. hefur skrifað undir samning um sölu á Atlas I fasteignasafninu (Landic Property Denmark A/S) til danska fasteignafélagsins Jeudan A/S. Söluverðið er um 2 milljarðar danskra kr. eða tæplega 50 milljarðar kr., sem samsvarar bókfærðu verði fasteignanna. 20.10.2009 09:53
AGS hefur í hótunum við sænska banka Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur nú í hótunum við sænska banka sem starfa í Eystrasaltsríkjunum. AGS hefur komið þeim skilaboðum á framfæri í nýrri skýrslu að ef sænsku bankarnir standi ekki við lánaskuldbindingar sínar í þessum ríkjum muni sjóðurinn ekki standa gegn því að gengi gjaldmiðla þessara ríkja verði fellt. 20.10.2009 09:32
Tæplega 20.000 manns eru á vanskilaskrá Tæplega 20.000 manns, eða 7% þeirra sem eru fjárráða, eru á vanskilaskrá og 60% þeirra stefna í gjaldþrot. Fjórðungur þeirra sem flust hafa til Noregs eru með vanskil í löginnheimtuferli og 11% barna eiga foreldra í vanskilum. 20.10.2009 09:19
Vísitala bygginarkostnaðar hækkar um 0,34% Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október 2009 er 497,0 stig sem er hækkun um 0,34% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í nóvember 2009. 20.10.2009 09:06
Heimsmarkaðsverð á olíu rauf 80 dollara múrinn Í nótt rauf heimsmarkaðsverð á olíu 80 dollara múrinn á mörkuðum í Bandaríkjunum. Bandaríska léttolían, til afhendingar í desember, fór þá í 80,79 dollara tunnan. 20.10.2009 08:32
Bresk stjórnvöld ánægð með Icesave samkomulagið Ian Pearson yfirmaður hagdeildar breska fjármálaráðuneytisins segir að Icesave samkomulagið sem nú liggur fyrir sé góðar fréttir fyrir breska og hollenska skattgreiðendur. „Það greiði leiðina fyrir fullum endurborgunum á lánum til Íslands svo landið geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart innistæðureikningum á Icesave," segir Pearson. 20.10.2009 08:10
Lausn Landsbankans liggur hjá seðlabanka Evrópu Hugsanlegt er að heimtur úr búi gamla Landsbankans verði meiri en fram kom í samkomulagi á milli gamla og nýja bankans um síðustu helgi. Ekki er útilokað að endurheimtur kunni að vera á milli 93 til 97 prósent sem að mestu fara upp í Icesave-skuldbindinguna. 20.10.2009 00:01
Vonast eftir vaxtalækkun og afnámi hafta hið fyrsta Forsvarsmenn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnurekanda (SA) fagna því að niðurstaða sé fengin í samningum Breta og Hollendinga vegna Icesave-málsins. „Það skiptir okkur verulegu máli að okkur hafi tekist að ná samkomulagi við þessar þjóðir, því öll önnur mál hafa verið á bið hér. 20.10.2009 00:01
Baldur undirbjó viðbragðsáætlun gegn falli bankanna Fyrrum ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Baldur Guðlaugsson, undirbjó viðbragðsáætlun gegn falli bankanna sjö mánuðum fyrir hrun. Hann sætir nú rannsókn sérstaks saksóknara vegna gruns um innherjaviðskipti eftir að hafa selt hlutabréf í Landsbankanum mánuði fyrir fall bankanna. 19.10.2009 20:00
Exista slær Íslandsmet í tapi Exista hefur slegið öll met í verstu afkomu íslensks fyrirtækis á einu ári, en félagið tapaði rúmum tvö hundruð milljörðum á síðasta ári. Launakostnaður nam fjórum milljörðum. 19.10.2009 19:18
Hagar ljúka endurfjármögnun Hagar hafa lokið endurfjármögnun félagsins í samstarfi við Landsbankann og Kaupþing samvkæmt tilkynningu sem þeir sendu frá sér. Þar kemur ennfremur fram að Hagar hafi greitt greitt að fullu skuldabréfaflokk félagsins, upphaflega 7 milljarða króna en gjalddaginn var 19. október 2007. 19.10.2009 17:17
Skuldabréfaveltan sló ársmetið í dag Skuldabréfaveltan sló ársmetið í dag í kauphöllinni en hún nam 21,3 milljarði kr. Fyrra met í veltunni í ár nam rúmum 18 milljörðum kr. 19.10.2009 15:48
Útrásin lifir: Íslendingar stofna flugfélag í Litháen Hópur íslenskra fjárfesta er nú að stofna flugfélag í Vilnius, höfuðborg Litháen. Flugfélagið á að heita Lithuania Express og á að byggja á Iceland Express eins og það var í upphafi þegar það var stofnað árið 2003. 19.10.2009 15:38
Hátt í 1.200 umsóknir um 50 flugfreyjustörf Mikil ásókn og gífurlegur áhugi er fyrir störfum flugfreyja og -þjóna hjá Iceland Express. Hátt í 1.200 umsóknir hafa borist í þau 50 störf sem í boði eru. 19.10.2009 14:13
Akureyrarbær bjóði út leigu til líkamsræktarstöðvar „Samkeppniseftirlitið beinir þeim fyrirmælum til Akureyrarbæjar með vísan til ... samkeppnislaga ... að boðin verði út leiga í kjallara Íþróttahallarinnar við Skólastíg þegar núgildandi leigutímabili lýkur, 31. desember 2010, eða fyrr verði leigusamningi sagt upp. Þá skal Akureyrarbær upplýsa Samkeppniseftirlitið um framkvæmd og niðurstöðu slíks útboðs." 19.10.2009 14:06
Gull á yfir 1.000 dollara er ódýrt í sögulegu samhengi Heimsmarkaðsverð á gulli hefur hækkað um 19% í ár og er fyrir nokkru komið yfir 1.000 dollara á únsuna. Verð á gulli er samt mjög ódýrt í sögulegu samhengi. Ef tekið er tillit til verðbólguþróunnar á síðustu áratugum er gullverðið langt frá því að slá met. 19.10.2009 13:36
Icesave hleypir auknu lífi í skuldabréfamarkaðinn Lífleg viðskipti hafa verið á skuldabréfamarkaði það sem af er morgni, og virðast tíðindi af Icesave hafa lagst vel í skuldabréfafjárfesta. Langmest eru viðskiptin með lengri flokka ríkisbréfanna. Tók krafa þeirra myndarlegan kipp niður á við fyrst eftir opnun í morgun, en sú hreyfing hefur að hluta til gengið til baka síðan. 19.10.2009 12:12
Greining: Fjölmargt hvílir á samþykkt Icesave Fjölmargir þættir í uppbyggingu efnahagslífisins hvíla á samþykkt Icesave samkomulagsins. Má þar nefna greiðslu á öðrum hluta láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og greiðslu lána frá hinum Norðurlöndunum ásamt láni frá Póllandi. Einnig hvílir fyrsti áfangi í afnámi gjaldeyrishafta á þessari samþykkt sem og lánshæfi íslenskra ríkisins. 19.10.2009 12:01
Þráinn ráðinn fjármálastjóri Iceland Travel Þráinn Vigfússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Iceland Travel og VITA. Þráinn hefur langa og víðtæka reynslu af störfum innan ferðaþjónustunnar, meðal annars sem fjármálastjóri og síðar framkvæmdastjóri hjá Kynnisferðum. 19.10.2009 11:54
Bylgja af handtökum í vændum á Wall Street Lögreglan í Bandaríkjunum undirbýr nú fjölda af nýjum handtökum meðal toppanna á Wall Street vegna ólöglegra innherjaviðskipta. 19.10.2009 11:13
Launakostnaður Exista nam 5,4 milljörðum í fyrra Launakostnaður Exista nam 29,2 milljónum evra eða um 5,4 milljörðum kr. á síðasta ári. Af þessari upphæð voru laun 25 milljónir evra og launatengd gjöld rúmlega 4 milljónir evra. 19.10.2009 10:45
Exista tapaði 206 milljörðum á síðasta ári Tap Exista á síðasta ári eftir skatta nemur um 1,6 milljarði evra eða 206 milljarða kr. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. 19.10.2009 10:13
ConocoPhillips hefur áhuga á Jan Mayen svæðinu Bandaríski olíurisinn ConocoPhillips hefur áhuga á olíuleit og vinnslu á Jan Mayen svæðinu. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðunni offshore.no þar sem greint er frá árlegri ráðstefnu Samtaka norska olíuiðnaðarins (OLF) sem haldin var í síðustu viku. 19.10.2009 10:06
Velferðarútgjöld hafa aukist verulega frá 1980 Heildarútgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr tæplega 5,7% af landsframleiðslu árið 1980 í ríflega 8,9% af landsframleiðslu 2008, en það samsvarar 132 milljörðum króna á því ári. 19.10.2009 09:31
Economist: Togarasjómenn spila á gjaldeyrismarkaðinn Hið virta hagfræðitímarit The Economist hefur birt grein undir fyrirsögninni „Togarasjómenn spila á gjaldeyrismarkaðinn". Þar er greint frá því að íslenskir sjómenn hafi í einhverjum mæli sent fisk á aðra markaði í Evrópu en Bretland þar sem pundið hefur gefið verulega eftir gagnvart evrunni á síðustu vikum og mánuðum. 19.10.2009 09:20
Tæplega 10.000 sóttu um 220 störf hjá Ikea Forstjóri Ikea í Óðinsvéum í Danmörku varð að lokum að gefast upp á að lesa yfir umsóknir um störf í nýtt vöruhús Ikea þar í borg. Tæplega 10.000 umsóknir bárust um þau 220 störf sem voru í boði. 19.10.2009 08:54
Eignarhlutur Kaupþings í Storebrand fjórfaldast í verði Eignarhlutur Kaupþings í norska tryggingarfélaginu Storebrand hefur fjórfaldast í verði frá haustinu 2008. Þá var 5,5% hlutur bankans metinn á 29 milljónir evra en í dag er verðmæti hlutarins kominn í 112 milljónir evra eða tæplega 21 milljarðar kr. 19.10.2009 08:09
Ríflega 70% brottfluttra eru íslenskir ríkisborgarar Alls fluttu 2.694 manns af landi brott umfram aðflutta á fyrstu 9 mánuðum ársins og skiptist þeir þannig að ríflega 70% þeirra voru íslenskir ríkisborgarar, eða tæplega 2.000 manns og ríflega 700 erlendir ríkisborgarar. 19.10.2009 07:55
Sterkara gengi um að kenna Útflutningur frá evrusvæðinu dróst saman um 5,8 prósent á milli mánaða í ágúst, segir í upplýsingum frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tölurnar komu á óvart enda jókst vöruútflutningur um 4,7 prósent á milli mánaða í júlí. 19.10.2009 02:00
IFS spáir lægri stýrivöxtum Verðbólga mælist níu prósent í þessum mánuði gangi spá IFS Greiningar um verðbólguhorfur eftir. Verði það raunin hefur verðbólga ekki verið lægri síðan í fyrravor 2008. 19.10.2009 00:01
Hugsanlega munu 216 milljarðar af Icesave falla á þjóðarbúið Ef mið er tekið af gengisforsendum Seðlabanka Íslands og ummælum skilanefndar Landsbankans, um að 90 prósent af eignum bankans muni ganga upp í skuldir Icesave, þá falla 216,2 milljarðar á þjóðabúið þegar uppi er staðið. 18.10.2009 20:48
Breska efnhagsbrotadeildin skoðar Landsbankann og Kaupþing Efnahagsbrotadeild Bretlands (SFO) skoðar hugsanleg lögbrot hjá Kaupþingi og Landsbankanum samvkæmt The Daily Telegraph. Um er að ræða þrjú hugsanleg sakamál gegn Kaupþingi og eitt gegn Landsbankanum. 18.10.2009 19:34
Ríkisskattstjóri hótar lögmönnum vegna eiganda aflandsfélaga Ríkisskattstjóri hefur hótað tug lögmanna málssókn veiti þeir ekki upplýsingar um hverjir eru raunverulegir eigendur aflandsfélaga sem þeir stofnuðu fyrir viðskiptavini sína í skattaparadísum. 18.10.2009 19:17
Alþjóðlegur hópur fjárfesta íhugar að bjóða 100 milljónir punda í West Ham Alþjóðlegur hópur fjárfesta sem er leiddur af Bandaríkjamanninum Jim Bowe hefur staðið í samningaviðræðum um kaup á West Ham síðan á föstudaginn. Fótboltafélagið var í eigu Björgólfs Guðmundssonar áður en hann varð gjaldþrota. CB Holdings, félag í eigu Straums, tók félagið yfir og rekur það í dag. 18.10.2009 13:08
Fyrrum forstjóri JJB Sports: Skuldar Kaupþingi 30 milljarða Eignarhaldsfélag í eigu Chris Ronnie, fyrrum forstjóra JJB Sports, skuldaði Kaupþingi á Íslandi tæpa 30 milljarða þegar það fór á hausinn í janúar síðastliðnum. 18.10.2009 11:26
50 milljarða símalán hugsanlega gjaldfellt næstu daga Það kemur í ljós á næstu dögum hvort að fimmtíu milljarða króna lán fimm banka til Skipta, móðurfélags Símans, verði gjaldfellt. Verði það niðurstaðan er ljóst að félagið þarf að endurfjármagna sig en það gæti reynst erfitt miðað við stöðu á alþjóðlegum lánamörkuðum. 17.10.2009 18:29
Hvítflibbakrimmi rannsakaður eins og mafíuforingi Milljarðafjárfestirinn Raj Rajaratnam, fyrrum forstjóri Bear Steams, IBM, Intel and Mckinsey var ákærður á föstudaginn fyrir innherjasvik tengdum vogunarsjóði. Bandaríski saksóknarinn segir þetta stærsta svikamál sem upp hefur komið og tengist vogunarsjóði. Fimm aðrir hafa verið ákærðir í málinu. 17.10.2009 14:28
Kaupþing sakað um allsherjarmarkaðsmisnotkun Fjármálaeftirlitið hefur sent mál er varðar allsherjarmarkaðsmisnotkun Kaupþings til sérstaks saksóknara. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. 17.10.2009 09:57
Hundrað manns gætu misst vinnuna á Suðurnesjum Hundrað manns munu missa vinnuna við byggingu gagnavers á Suðurnesjum ef ekki tekst að ljúka samningum við ríkið um meðal annars skattamál fyrir næstu mánaðarmót. 16.10.2009 18:35
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent