Exista tapaði 206 milljörðum á síðasta ári 19. október 2009 10:13
Tap Exista á síðasta ári eftir skatta nemur um 1,6 milljarði evra eða 206 milljarða kr. Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Bókfært eigið fé nam 200 milljónum evra eða 34 milljarðar kr. og lækkaði um rúm 90% á árinu. Heildareignir námu 2,3 milljörðum evra, eða 391 milljarði kr. og lækkuðu um rúm 70%. Í tilkynningunni segir að heildarskuldir lækkuðu um 3,5 milljarða evra, 602 milljarða kr. eða um 63% Fall Kaupþings banka hf. og sala eignarhluta Exista í Sampo Group hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu á árinu 2008. Exista brást við ytri áföllum á fjórða ársfjórðungi með sölu eigna, meðal annars í Sampo og Storebrand. Söluandvirði eigna notað til að greiða niður skuldir Exista á í viðræðum við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu og framtíð félagsins. Exista bíður niðurstöðu í dómsmálum um uppgjör gjaldmiðlasaminga við Kaupþing banka og Glitni banka. Niðurstöður þeirra mála munu skipta verulegu máli varðandi afkomu félagsins og eigið fé. Í uppgjörinu segir að frá falli íslenska bankakerfisins í október 2008 hefur Exista átt í samningaviðræðum við lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Eins og tilkynnt var um þann 1. mars 2009 mun Exista ekki greiða vexti og afborganir af skuldbindingum sínum meðan á viðræðum við lánveitendur stendur. Þann 17. september síðastliðinn réð félagið til sín breska ráðgjafafyrirtækið Talbot Hughes McKillop LLP sem leiðir vinnu við fjárhagslegu endurskipulagninguna og samningaviðræður við innlenda sem erlenda lánveitendur félagsins. Þessar viðræður eru á viðkvæmu stigi og óvíst hver niðurstaða þeirra verður. Í viðræðum við helstu lánveitendur hefur komið fram að vænt endurgreiðsluhlutfall krafna þeirra við hugsanlegt gjaldþrot gæti orðið á bilinu 2-7%. Núvirt sjóðsstreymismat miðað við áframhaldandi rekstur samtæðu bendir til að endurheimtuhlutfall krafna lánveitenda verði á bilinu 17-26% miðað við að eignir félagsins verði seldar. Jafnframt hefur komið fram að endurgreiðsluhlutfall krafna þeirra geti orðið allt að 64-95%, greitt í peningum til ársins 2023, gangi fjárhagsleg endurskipulagning Exista eftir og eignir verði áfram í samstæðu. Þetta er þó sett fram með fyrirvara og geta breyttar forsendur útreikninga haft nokkur áhrif á endurgreiðsluhlutfallið. Til að hámarka verðmæti lánveitenda hefur komið fram í viðræðum við þá að farsælast sé að komast hjá því að félagið verði leyst upp og að endurskipulagning þess verði frekar byggð á áframhaldandi rekstri í breyttri mynd í takt við minnkandi umsvif félagsins. Framhaldsaðalfundur Exista í dag staðfesti ársreikning ársins 2008 og samþykkti samhljóða tillögu félagsstjórnar um að greiða ekki út arð.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira