Baldur undirbjó viðbragðsáætlun gegn falli bankanna 19. október 2009 20:00 Baldur Guðlaugsson.
Fyrrum ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Baldur Guðlaugsson, undirbjó viðbragðsáætlun gegn falli bankanna sjö mánuðum fyrir hrun. Hann sætir nú rannsókn sérstaks saksóknara vegna gruns um innherjaviðskipti eftir að hafa selt hlutabréf í Landsbankanum mánuði fyrir fall bankanna. Baldur sat í samráðshópi ásamt ráðuneytisstjórum forsætis- og viðskiptaráðuneytis auk forstjóra Fjármálaeftirlitsins og fulltrúa Seðlabankans í mars 2008. Samráðshópurinn fékk kynningu á hugsanlegu bankahruni sjö mánuðum fyrir fall bankanna. Hópurinn kom meðal annars að undirbúningi lagasetningar sem seinna varð að neyðarlögum. Skýrsla fjármálakreppusérfræðingsins Andrew Gracie um hugsanlegt hrun í október 2008 - sem varð svo raunin - var kynnt fyrir hópnum í mars sama ár. Það var morgunblaðið sem greindi frá skýrslunni í maí síðastliðnum en þar kom fram að matið hafi verið gert af Seðlabankanum eftir að hafa fengið einn færasta fjármálakreppusérfræðing heims, Andrew Gracie, til að meta mögulegar leiðir vegna alvarlegrar stöðu bankanna. Með Gracie voru áætlanir gerðar tækist Glitni ekki að fjármagna sig fyrir stóran gjalddaga í október 2008 og færi því í þrot. Blaðið sagði að ráðuneytisstjórar helstu ráðuneyta hafi jafnframt fengið kynningu á málinu í mars, sjö mánuðum fyrir hrun. Baldur sat svo fund með viðskipta- og fjármálaráðuneytinu auk Alistair Darlings í september 2008. Þar var bág staða Landsbankans rædd. Stuttu síðar seldi Baldur hlutabréf sín í Landsbankanum en sérstakur saksóknari rannsakar þann gjörning og hvort Baldur hafi haft stöðu innherja vegna starfa sinna hjá ráðuneytinu. Baldur sendi út yfirlýsingu í gær þar sem hann sagðist hafa fengið bréf frá Fjármálaeftirlinu þar sem honum var tilkynnt um að málið hefði verið látið niður falla og sagðist ekki búast við öðru en að það stæði þar sem enginn hefði haft samband við hann af rannsóknaraðilum. Samkvæmt heimildum Vísis komu nýjar upplýsingar inn á borð til Fjármálaeftirlitsins sem varð til þess að málið var endurupptekið og svo sent áfram til sérstaks saksóknara. Baldur starfar núna sem ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytis. Katrín Jakobsdóttir sagði eftir ríkistjórnarfund á sunnudag að staða Baldurs hjá ráðuneytinu yrði skoðuð nú í vikunni. Enginn ákvörðun hefur verið tekinn um málið af hálfu menntamálaráðuneytis.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira