Icesave hleypir auknu lífi í skuldabréfamarkaðinn 19. október 2009 12:12
Lífleg viðskipti hafa verið á skuldabréfamarkaði það sem af er morgni, og virðast tíðindi af Icesave hafa lagst vel í skuldabréfafjárfesta. Langmest eru viðskiptin með lengri flokka ríkisbréfanna. Tók krafa þeirra myndarlegan kipp niður á við fyrst eftir opnun í morgun, en sú hreyfing hefur að hluta til gengið til baka síðan. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þegar þetta er ritað (kl.11:45) er krafa lengsta ríkisbréfaflokksins, RIKB25, 8,12% og hefur lækkað um 20 punkta frá opnun markaða. Krafa RIKB19 er 7,98% eftir 22 punkta lækkun en krafan á RIKB13 er 7,34% eftir 12 punkta lækkun. Hefur vaxtaferill ríkisbréfa allur hliðrast niður á við, að stysta flokknum undanteknum þar sem engin viðskipti hafa orðið. Alls nemur velta með helstu skuldabréfaflokka rúmum 12 milljörðum kr. það sem af er degi, og þar af er velta með ríkisbréf ríflega 10 milljarðar kr. Engar breytingar hafa hins vegar orðið á gengi evru gagnvart krónu það sem af er degi, enda engin viðskipti verið á millibankamarkaði með gjaldeyri. Enn eru heldur engar breytingar merkjanlegar á aflandsmarkaði með krónur. Skuldatryggingarálag til 5 ára á ríkissjóð hefur lækkað lítillega í dag og er nú 392,5 punktar. Álagið er þó enn nokkru hærra en það hefur farið lægst á þessu ári. Í lok september stóð það í 356 punktum en hækkaði nokkuð snarpt viku seinna í takti við almenna þróun á evrópskum mörkuðum.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira