Fleiri fréttir

Ríkisskattstjóri skoðar hvort kvótahagnaði hafi verið skotið undan

Ríkisskattstjóri skoðar nú hvort kvótahagnaði hafi verið komið fyrir í aflandsfélögum og notaður til fjárfestinga hér á landi. Þannig hafi fyrrum kvótaeigendur geta komist hjá því að greiða fjármagnstekjuskatt. Í þeim félögum sem um ræðir skipta lægstu upphæðirnar tvö til þrjú hundruð milljónum króna.

Hátt í 70% fyrirtækja tæknilega gjaldþrota

Allt að 65 prósent fyrirtækja á Íslandi eru tæknilega gjaldþrota og geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þetta fullyrtu stjórnendur Landsbankans við kröfuhafa í júní.

Lítil velta á hlutabréfamarkaði

Lítil velta var á hlutabréfamarkaðinum í dag eða aðeins nokkrar milljónir kr. Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega eða um 0,14%.

Síldarkvóti HB Granda að komast í höfn

Nú styttist í að veiðum skipa HB Granda á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum ljúki á þessu sumri. Veiðarnar hafa verið stundaðar innan íslensku lögsögunnar og hafa þær gengið vonum framar.

FÍS fundar með bankastjórum um skuldavanda fyrirtækja

Undanfarið hefur stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) fundað með bankastjórum stóru viðskiptabankanna og helstu stjórnendum þeirra um skuldavanda fyrirtækja. Fundir með Kaupþingi og Íslandsbanka hafa þegar farið fram en fundur með Landsbanka verður á miðvikudag.

Dell kaupir Perot Systems fyrir 500 milljarða

Bandaríski tölvurisinn Dell hefur fest kaup á Perot Systems fyrir 3,9 milljarða dollara eða tæplega 500 milljarða kr. Stjórnir beggja fyrirtækjanna hafa lagt blessun sína yfir kaupin að því er segir í tilkynningu frá Dell.

Tíu mál gegn þrotabúi Straums þingfest

Tíu mál gegn þrotabúi Straums-Burðaráss voru þingfest í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í flestum tilfellum er um lífeyrissjóði að ræða og snúast málin um ágreining um hvort kröfur sjóðanna séu forgangskröfur eða almennar kröfur.

Segir lánadrottna taka vel í tilboð Mjólku

Ólafur M. Magnússon framkvæmdarstjóri Mjólku segir að samningar við lánadrottna gangi vel. Allir stærstu lánadrottnar félagsins sem og viðskiptabanki þess, hafi gengið að tilboði sem félagið bauð þeim. Ólafur er þakklátur fyrir það góða samstarf og mikla skilning sem félaginu hefur verið sýnt á þessum erfiðu tímum. Nú standi yfir viðræður við að fá nýja fjárfesta inn í félagið en í þeim hópi eru bæði innlendir og erlendir aðilar.

Íslandshrun leiðir til breytinga í fjármálum breskra sveitarfélaga

Hið gífurlega tap bæjar- og sveitarfélaga á hruni íslenska bankakerfisins s.l. haust hefur leitt til grundvallarbreytinga í stjórn á fjármálum þessara félaga. Fulltrúar þeirra eiga nú í viðræðum við forstjóra sjóða í The City, fjármálahverfi Lundúna, um stofnun nýrra sjóða sem sjái sérstaklega um að ávaxta fjármuni bæjar- og sveitarfélaganna.

Mjólka á barmi gjaldþrots - reyna að semja við kröfuhafa

Mjólka ehf. stendur frammi fyrir miklum skuldavanda og er fyrirséð að félagið geti ekki staðið undir þeim skuldbindingum sem á því hvíla ef marka má bréf sem Ólafur Magnússon framkvæmdarstjóri sendir lánadrottnum. Skuldir félagsins eru umtalsverðar og eigið fé neikvætt. Nú er leitað leiða til þess að semja við kröfuhafa og eru tvær leiðir í boði.

Uppgjörstími verðbréfa breytist í dag

Líkt og áður hefur verið tilkynnt færist uppgjörstími verðbréfa hjá Verðbréfaskráningu Íslands (VS) frá klukkan 9 árdegis til klukkan 12 á hádegi frá og með deginum í dag 21. september.. Þessi færsla hefur í för með sér breytingu á meðhöndlun réttinda skuldabréfa.

Nýr framkvæmdastjóri Landsvaka

Björn Þór Guðmundsson hefur tímabundið verið ráðinn framkvæmdastjóri Landsvaka hf. til loka maí 2010 og tekur hann til starfa í dag.

Hertar bankareglur G-20 munu draga úr hagnaði banka

Leiðtogar G-20 ríkjanna hittast í vikunni og á fundi þeirra verður reynt að herða reglur um starfsemi banka. Í frétt á Bloomberg fréttaveitunni segir að um umfangsmestu uppstokkun á þessum reglum verði að ræða síðan upp úr 1930. Talið er að reglurnar muni draga úr hagnaði bankanna og á þeim bæjum eru menn ekki sáttir.

Fjármálaspekingur: Alheimsgjaldmiðill árið 2024

Kínverski fjármálaspekingurinn og rithöfundurinn Song Hongbing segir í nýrri bók sinni, Gjaldeyrisstríðin, annar hluti (The Currency Wars Two) að dularfull en geysiöflug alþjóðleg samtök muni árið 2024 losa sig við dollara og aðra helstu gjaldmiðla heimsins og taka upp einn sameiginlegan alheimsgjaldmiðil.

Karen Millen langar að kaupa Karen Millen af Kaupþingi

Tískudrottningin Karen Millen hefur áhuga á því að kaupa tískuverslanakeðjuna Karen Millen af skilanefnd Kaupþings. Millen stofnaði keðjuna árið 1981 og var þá aðeins með 100 pund milli handanna.

AGS selur 400 tonn af gulli fyrir 1.600 milljarða

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur ákveðið að selja yfir 400 tonn af gullforða sínum. Verðmæti þessa gulls er um 13 milljarðar dollara, eða rúmlega 1.600 milljarðar kr.

Landstjóri Guernsey fagnar málshöfðun gegn neyðarlögunum

Lyndon Trott landstjóri á Guernsey segir að hann fagni fyrirhuguðu dómsmáli innistæðueigenda í útibúi Landsbankans á eyjunni. Ennfremur muni stjórnvöld á eyjunni styðja við bakið á innistæðieigendunum fari mál þeirra fyrir íslenska dómstóla.

Kæra stjórnendur lífeyrissjóða vegna venslatengsla

Tveir stjórnarmenn í VR kæra á morgun stjórn og stjórnendur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna til Fjármálaeftirlitsins vegna brota á samþykktum sjóðsins og lögum um lífeyrissjóði samkvæmt kvöldfréttum RÚV.

Ástþór Magnússon: Vill kaupa gullforða Seðlabanka Íslands

„Við erum í þeim bissniss að kaupa gull af fólki,“ segir Ástþór Magnússon, eigandi Goldbank á Spáni en hann sendi seðlabankastjóranum Má Guðmundssyni bréf í dag þar sem hann býðst til þess að kaupa gullforða bankans. Um er að ræða tvö tonn af gulli sem íslenski Seðlabankinn á.

Íslendingar treysta RÚV best

Um 75% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en segjast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (37,2%).

Gríðarlegar afskriftir skulda eignarhaldsfélaga

Mánuði fyrir hrun höfðu bankarnir lánað eignarhaldsfélögum upp undir þrisvar sinnum meira en þeir höfðu lánað fólki í landinu í húsnæðislán. Allt er á huldu með veð og tryggingar fyrir lánum félaganna en á síðustu vikum hafa borist fregnir af afskriftum skulda þeirra upp á nærri 85 milljarða króna.

Almenni lífeyrissjóðurinn: Það var slæm hugmynd að fjárfesta í Baugi

Almenni lífeyrissjóðurinn, sem rekinn var af Glitni, stóð fyrir rúmum þriðjungi af heildarlánum lífeyrissjóða til Baugs. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að með hliðsjón af því hversu illa fyrirtækin í landinu standi sé ljóst að skuldabréfakaup í Baugi hafi ekki verið góður kostur.

Hafnfirðingar tapa milljörðum vegna lóða

Hundrað fyrirtæki hafa skilað inn lóðum sínum í Hafnarfirði. Kostnaður bæjarins vegna lóðaskila undanfarna mánuði og uppbyggingar á ónýttum svæðum nemur um 10 milljörðum.

Icelandair: Á þriðja tug uppsagna dregnar til baka

„Við vorum búnir að gera áætlun fyrir veturinn en svo kemur í ljós að það horfir betur við en við töldum,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair en flugfélagið ákvað að draga uppsagnir 24 flugmanna til baka nú á dögunum.

Norskur fjárfestir kaupir hlut í MP Banka

Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans.

Milljarða lán Milestone til Wernersbræðra einskis virði

Sex milljarða króna lán Milestone til Karls og Steingríms Wernerssona, fyrrverandi eigenda félagsins, er einskis virði í bókum þess. Lánið var veitt til félags í eigu bræðranna og var meðal annars notað til að kaupa systur þeirra út úr Milestone.

Seðlabankinn styrkir eftirlit með gjaldeyrisreglum

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að endurskipuleggja og efla starfsemi gjaldeyriseftirlits innan bankans. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að markmiðið með þeim breytingum sé að styrkja eftirlit með gildandi gjaldeyrishöftum. Gjaldeyriseftirlitið verður hér eftir sjálfstæð eining innan Seðlabankans og heyrir beint undir seðlabankastjóra.

Milestone úrskurðað gjaldþrota

Stjórn Milestone ehf. hefur óskað eftir eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur í dag fallist á ósk félagsins og kveðið upp úrskurð um að félagið skuli tekið til gjaldþrotaskipta.

Magma: Tapaði rúmum 500 milljónum á síðasta ári

Tap Magma Energy nam tæpum 4,5 milljónum dollara á síðasta rekstrarári félagsins (árið er júní til júní) eða rúmlega 500 milljónum kr. Af þessu tapi féllu tæplega 1,9 milljón dollara til á síðasta ársfjórðungi rekstrarársins.

Sjávarútvegurinn á góðri siglingu í kreppunni

Sjávarútvegur má nokkuð vel við una þegar litið er á umsvif útflutningsfyrirtækja landsins. Velta í fiskveiðum jókst um 11% að nafnvirði frá maí og júní í fyrra til sama tímabils í ár.

Álverðið hefur hækkað um 100 dollara í vikunni

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um rúmlega 100 dollara í vikunni. Þessa stundina stendur verðið í 1.946 dollurum á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga sem er helsta viðmiðunarverðið á þessum markaði.

SI: Vinnubrögð stjórnvalda valda töfum og tjóni

Samtök iðnðarins (SI) gagnrýna harðlega vinnubrögð stjórnvalda í samskiptum við erlenda fjárfesta og uppbyggingu iðnaðar sem reiðir sig á nýtingu orkuauðlinda. Stjórnvöld eru ekki samstiga og senda frá sér misvísandi skilaboð.

Vilja setja 150 milljónir í atvinnulíf Suðurnesja

Næstkomandi fimmtudag 24. september verður aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja haldinn í Reykjanesbæ. Á fundinum verður afgreidd tillaga fráfarandi stjórnar um að félagið leggi til allt að 150 milljónir króna til eflingar atvinnulífs á Suðurnesjum.

Markaðsvirði Twitter orðið milljarður dollara

Markaðsverðmæti félagslegu netsíðunnar Twitter er nú orðið einn milljarður dollara eða tæplega 124 milljarðar kr. Þetta þykir nokkuð gott í ljósi þess að Twitter er enn í sömu skrifstofum í San Francisco þar félagið hóf starfsemi sína 2006 og starfsfólkið telur ekki nema um 50 manns.

Greining: Ársverðbólgan verður 8% næstu sex mánuði

Greining Nýja Kaupþings gerir ráð fyrir 4% hækkun verðlags næstu 6 mánuði, þ.e. mánuðina ágúst 2009 til febrúar 2010. Verðbólgan verður því ríflega 8% á ársgrundvelli á þessu tímabili gangi spáin eftir.

Adidas og Puma binda enda á 60 ára illdeilur

Þýsku íþróttavörurisarnir Adidas og Puma hafa ákveðið að binda endi á 60 ára gamlar illdeilur milli fyrirtækjanna. Verður þetta gert með vinaleik í fótbolta milli starfsmannaliða þeirra.

deCODE fær aðvörun frá Nasdaq

deCODE hefur aftur fengið aðvörun frá Nasdaq kauphöllinni í New York vegna þess að verð á hlutum í félaginu hefur verið undir lögboðnu lágmarki undanfarna 30 daga. Samkvæmt reglum Nasdaq má verð á hlut í félögum sem skráð eru á þessum markaði ekki vera undir einum dollara.

Skilnaður að baki nær fimmtu hverjum íbúðaviðskiptum Dana

Ný könnun leiðir í ljós að rekja má nær fimmtung af öllum íbúðaviðskiptum í Danmörku til skilnaða. Þetta er veruleg aukning frá árinu 2006 þegar samskonar könnun leiddi í ljós að 10% viðskiptanna mátti rekja til skilnaða.

Breska FSA kannar sölu á JJB Sports hlutum til Kaupþings

Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur boðað Chris Ronnie fyrrverandi forstjóra JJB Sports á sinn fund í næstu viku til að ræða sölu hans á hlutum í JJB Sports til Kaupþings. Eins og áður hefur komið fram var Ronnie viðskiptafélagi Exista í Bretlandi og um tíma átti hann og Exist um 30% hlut í JJB Sports.

Íslenskar vísitölur horfnar af heimskortinu

FTSE, sem heldur utan um hlutabréfavísitölur heimsins, hefur ákveðið að hætta að birta þær íslensku í daglegum gögnum sínum. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Ísland segir í frétt um málið í viðskiptablaðinu Financial Times.

Sjá næstu 50 fréttir