Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
IBM í viðræðum um kaup á Sun Microsystems Wall Street Journal greinir frá því í dag að IBM sé í viðræðum um að kaupa Sun Microsystems fyrir 6,5 milljarða dollara eða rúmlega 700 milljarða kr. 18.3.2009 10:01
Hlutabréf í Rio Tinto lækka um 9% vegna óvissu Hlutabréf í álrisanum Rio Tinto hafa fallið um tæp 9% í morgun vegna óvissu um 19,5 milljarða dollara aðkomu kínverska félagsins Chinalco í eigendahóp Rio Tinto. Talið er að áströlsk stjórnvöld ætli sér að koma í veg fyrir kaup Kínverjanna. Rio Tinto er eigandi álversins í Straumsvík. 18.3.2009 09:58
Kaupþing lætur Roskildebank líta út eins og fyrirmyndarbanka Danskir fjölmiðlar fjalla töluvert um Evu Joly í dag og hlutverk hennar við að veiða fjármálaskúrka fyrir íslensk stjórnvöld. Af nógu sé að taka því eins og Berlingske Tidende orðar það lætur Kaupþing, eitt og sér, hinn gjaldþrota Roskildebanka líta út eins og íhaldssaman fyrirmyndarbanka. 18.3.2009 09:33
Að meðaltali 8% launahækkun í fyrra Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 8,0% að meðaltali á milli áranna 2007 og 2008 samkvæmt vísitölu launa, eftir því sem fram kemur í Hagtíðindum Hagstofunnnar. 18.3.2009 09:08
Heimsmarkaðsverð á olíu yfir 50 dollara á tunnuna Seint í gærkvöldi fór heimsmarkaðsverð á olíu yfir táknræn mörk er það fór yfir 50 dollara á tunnuna á markaðinum í New York. Þetta var 3,9% hækkun á olíuverðinu yfir daginn. 18.3.2009 08:59
HVB Group afskrifar 75 milljarða vegna taps á íslensku bönkunum HVB Group, sem er dótturbanki UniCredit í Þýskalandi, hefur sett tæplega 500 milljónir evra eða um 75 milljarða kr. inn á afskriftareikning vegna fyrirsjáanlegs taps á lánum til íslensku bankanna. 18.3.2009 08:52
Tími kominn á myndarlega lækkun stýrivaxta Á næstu vikum ætti að lækka hér stýrivexti um allt að 400 punkta (fjögur prósentustig), samkvæmt áliti skuggabankastjórnar Markaðarins. Seðlabanki Íslands tilkynnir á morgun, fimmtudag, um stýrivaxtaákvörðun sína, þá fyrstu eftir að ný lög um Seðlabankann tóku gildi og þar voru gerðar breytingar á yfirstjórn. 18.3.2009 08:00
Seðlabanki Japans kaupir fleiri skuldabréf Hlutabréf á asískum mörkuðum halda áfram að hækka í verði og hafa nú gert það fjóra daga í röð. Mest varð hækkunin hjá fjármálafyrirtækjum í morgun eftir að seðlabanki Japans lýsti því yfir að hann hygðist halda áfram að kaupa ríkisskuldabréf af viðskiptabönkunum til að glæða útlánastarfsemi þeirra. 18.3.2009 07:26
Róm fram yfir Reykjavík „Í árslok verðum við í stöðu til að fjármagna okkur sem ríki og Seðlabanki Evrópu stendur að baki bankakerfi okkar,“ sagði Brian Lenihan, fjármálaráðherra Írlands, í viðtali við Bloomberg í gær. 18.3.2009 00:01
Heiðar að mestu skilinn við Novator Heiðar Már Guðjónsson, framkvæmdastjóri Novator, á tíðum nefndur hægri hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Straums og meirihlutaeiganda Novator, hefur að mestu sagt skilið við fyrirtækið. 18.3.2009 00:01
Ekki veitir af hollráðum Hjá Háskólaútgáfunni er komin út um margt merkileg bók. Sú heitir „Penny for your thoughts" og er eftir Tobias Nielsén, Dominic Power og Margréti Sigrúnu Sigurðardóttur, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskólans. 18.3.2009 00:01
Sparisjóðirnir óska eftir 25 milljörðum „Sparisjóðirnir eru að verða einu viðskiptabankarnir sem ekki eru í eigu ríkisins. Það verður að tryggja tilvist þeirra og gæta jafnréttis á íslenskum bankamarkaði,“ segir Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sparisjóða. 18.3.2009 00:01
Dýr leið valin við endurreisn bankanna Bandaríski bankinn JP Morgan og Seðlabankinn veltu þeirri hugmynd upp eftir bankahrunið í haust að færa innlán úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju en skilja aðrar eignir eftir í gömlu bönkunum, sem yrðu eignaumsýslufélög og sjá um fjárhagslega endurskipulagningu stærstu fyrirtækja landsins. 18.3.2009 00:01
Íslensk fyrirmynd Margir supu hveljur þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fór um víðan völl í Kastljóssviðtali í fyrrahaust. Mál manna var, að svona gerðu menn ekki. Var vísað til passasamrar framkomu Bens Bernankes, seðlabankastjóra Bandaríkjanna og nær sterílla vaxtaákvörðunarfunda kollega þeirra, Jean-Claude Trichet, í Evrópu. 18.3.2009 00:01
Stuldur þegar eignir gömlu bankanna voru færðar yfir í þá nýju Agnar Hansson bankastjóri Sparisjóðabanka segir erfitt að selja eignir þar sem erlendir lánadrottnar telji að íslensk stjórnvöld hafi stolið eignum þegar þær voru færðar úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Þetta kom fram í seinni fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Agnar sagðist því miður ekki bjartsýnn á að samningar næðust við erlenda lánadrottna. 17.3.2009 22:07
Framkvæmdarstjóri lífeyrissjóðanna lét af störfum á föstudag Framkvæmdarstjóri fjögurra af þeim fimm lífeyrissjóðum sem sérstakur saksóknari hefur nú til skoðunar lét af störfum á föstudaginn síðasta. Fjármálaeftirlitið vísaði málum fimm lífeyrissjóða sem hafa verið í rekstri hjá eignastýringu Landsbankans til saksóknara í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa málefni sjóðanna verið lengi í skoðun hjá fjármálaeftirlitinu en meint brot eiga að hafa átt sér stað á fyrri hluta árs 2008. 17.3.2009 19:48
Fyrrum Kaupþingsmaður stofnar ráðgjafafyrirtæki Bjarki H. Diego fyrrum yfirmaður fyrirtækjasviðs hjá Kaupþingi hefur stofnað félagið Licito ehf. sem er ætlað að veita ráðgjöf og upplýsingagjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Bjarka var sagt upp störfum hjá Kaupþingi rétt fyrir áramót. 17.3.2009 21:32
Straumur yfirtekur hlut í Sjóvá Straumur Burðarás gekk í dag að 33,4% hlut í Sjóvá sem veðsettur var í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi nú í kvöld. 17.3.2009 20:38
Fjárfest fyrir hundruð milljóna umfram heimildir Málefni fimm lífeyrissjóða eru til rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara bankahrunsins. Grunur leikur á um að farið hafi verið út fyrir ramma laga um fjárfestingar. Fjárfest hafi verið fyrir hundruð milljóna króna umfram heimildir. 17.3.2009 18:30
Fullkomin óvissa um endurreisnarsjóð Straums Þrír milljarðar króna í endurreisnarsjóði Straums, eru í fullkominni óvissu og hugsanlega glatað fé. Fjöldi erlendra fjárfesta hafði sýnt sjóðnum áhuga. 17.3.2009 18:30
Sérstakur saksóknari hefur fengið fimm mál frá FME Fjámálaeftirlitið hefur vísað samtals fimm málum til frekari rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, eitt þeirra tengistt lífeyrissjóðum sem eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans. Fréttastofa sendi FME fyrirspurn í framhaldi af því að eftirlitið og sérstakur saksóknari hafa gert með sér samkomulag um verklagsreglur sín í millum en vangaveltur hafa verið um hvort bankaleynd sem FME telur á skýrslum sínum sé aflétt að hluta með fyrrgreindu samkomulagi. 17.3.2009 17:56
FME vísar málum fimm lífeyrissjóða til saksóknara Fjármálaeftirlitið hefur vísað málum fimm lífeyrissjóða sem eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans til frekari rannsóknar sérstaks saksóknara sem í dag hóf opinbera rannsókn á meintum brotum þeirra á fyrri hluta árs 2008. 17.3.2009 16:36
Róbert Wessman og Björgólfur vilja eignast hlut í vinsælum íþróttaklúbbi Róbert Wessman og Björgólfur Thor Björgólfsson munu eignast hlut í La Manga klúbbnum, á suðurhluta Spánar, verði áætlanir þeirra að veruleika. 17.3.2009 15:05
FME sendi saksóknara öll gögn í fjórum málum Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sent sérstökum saksóknara öll gögn sem FME hefur aflað í fjórum málum. Þetta kemur fram í fyrirspurn Fréttastofu til FME. 17.3.2009 15:01
Írar munu kjósa Róm fremur en Reykjavík „Margir stjórnmálaspekingar segja að næsti valkostur Írlands muni verða Róm eða Reykjavík,“ segir Brian Lenihan fjármálaráðherra Írlands í samtali við Bloomberg-fréttaveituna. „Flestir munu greiða Róm atkvæði sitt.“ 17.3.2009 14:50
Íslandsbanki segir erlenda greiðslumiðlun eðlilega Íslandsbanki hefur frá áramótum, án milligöngu Seðlabanka Íslands, notað reikninga sína í öllum helstu myntum hjá JP Morgan, Danske Bank, Svenska Handelsbanken og SEB til erlendrar greiðslumiðlunar fyrir sína viðskiptavini. 17.3.2009 13:57
Enginn kostnaður hjá Byr vegna viðbótarlífeyris Byr mun ekki innheimta kostnað vegna fyrirframgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði, en heimilt er að taka allt að 1% þóknun af útgreiddri upphæð fyrir kostnaði. 17.3.2009 13:46
Skipta átti Kaupþingi í Lúxemborg í tvö félög Samkvæmt þeirri áætlun sem lá fyrir um framtíð Kaupþings í Lúxemborg var ætlunin að skipta bankanum upp í tvö félög undir nöfnunum New Bank og Securitization Company. 17.3.2009 13:38
Ekkert lát á samdrætti í kortaveltu Íslendinga Ekkert lát er á samdrætti í kortaveltu og er það til marks um að einkaneysla muni reynast mun minni á yfirstandandi ársfjórðungi en raunin var í fyrra. 17.3.2009 12:30
Spáir einnig 16,2% verðbólgu í mars Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í mars. Reynist spá deildarinnar á rökum reist mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 17,6% í 16,2%, en verðbólga fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum. 17.3.2009 12:18
Fjármálaráðherra Lúxemborgar beitir sér í þágu Kaupþings Stjórnendur Kaupþings í Lúxemborg reyna nú allt hvað þeir geta til að varna því að bankinn fari í þrot eftir að lánadrottnar höfnuðu áætlun um endurskipulagningu. Fjármálaráðherra Lúxemborgar hyggst beita sér í málinu. 17.3.2009 12:08
Stefna á að fækka sparisjóðum um helming Sparisjóðum á að fækka úr fjórtán í 6-8 sem verði með þéttriðið útibúanet um allt land og muni þeir kaupa eða yfirtaka útibú nýju viðskiptabankanna á landsbyggðinni. 17.3.2009 11:53
Nokia segir upp tæplega 2.000 manns Finnski farsímarisinn Nokia ætlar að segja upp tæplega 2.000 manns á næstunni. Er þetta gert í hagræðingar- og sparnaðarskyni. 17.3.2009 11:23
Skiptastjóri Baugs skráði húsið á konuna rétt eftir hrun Erlendur Gíslason, lögmaður á Logos og nýskipaður skiptastjóri þrotabús Baugs, skráði einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á eiginkonu sína Kristjönu Skúladóttur 10. nóvember síðastliðinn. Þau höfðu þá verið skráð saman fyrir húsinu í hartnær tíu ár eftir því sem fram kemur hjá Fasteignamati ríkisins. 17.3.2009 11:00
Hlutir í Debenhams falla eftir slæmt uppgjör Hálfsársuppgjör Debenhams var verra en menn gerðu sér vonir um en það nær til síðustu mánaðarmóta. Sökum þessa féllu hlutir í Debenhams um 12% í morgun, niður í 40,5 pens. 17.3.2009 10:59
Landsbanki og Innovit áfram með Gulleggið Landsbankinn og Innovit hafa skrifað undir endurnýjun á samstarfssamningi um stuðning við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi háskólanema og nýútskrifaðra. Landsbankinn verður bakhjarl Innovit til næstu tveggja ára og meginbakhjarl Gulleggsins 2009, frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanema og nýútskrifaðra. 17.3.2009 10:49
Rauðar tölur á rólegum degi í kauphöllinni Markaðurinn byrjar rólega í kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,2% og stendur í rúmum 222 stigum. 17.3.2009 10:32
Atvinnulausir orðnir fleiri en 17.000 Atvinnuleysið heldur áfram að aukast af fullum krafti og eru atvinnulausir nú orðnir rúmlega 17.000 talsins. Þetta þýðir að atvinnuleysi er orðið yfir 10,5%. 17.3.2009 10:26
Gjalddagar krónubréfa nema 26 milljörðum í mars Tveir gjalddagar krónubréfa eru í mars, samtals að upphæð 26 milljarða kr. Sá fyrri er 21. mars upp á 3 milljarða kr. og sá seinni er 23. mars upp á 23 milljarða kr. 17.3.2009 09:59
Óvíst hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks Óvíst er hvaða áhrif gjaldþrot Baugs hefur á Saks verslunarkeðjuna í Bandaríkjunum en Baugur á 8,5% í Saks. 17.3.2009 09:17
Íslendingur stjórnar viðræðum um aðild Rússa að WTO Stefán Jóhannesson sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu mun stjórna viðræðum um aðild Rússlands að WTO, Alþjóðaviðskiptastofnuninni, síðar í mánuðinum. 17.3.2009 08:53
Bréf í Asíu hækkuðu þriðja daginn í röð Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði þriðja viðskiptadaginn í röð sem er lengsta samfellda hækkunartímabil í sjö vikur. Bréf nokkurra banka hafa hækkað þar sem lækkaður útlánakostnaður þeirra hefur bætt afkomutölur með þeim hætti að síður þarf að afskrifa skuldir þegar lántakendur hafa betri tök á að standa í skilum. 17.3.2009 07:20
Vill koma í veg fyrir bónusgreiðslur AIG Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur látið íljós reiði sína á 165 milljóna dollara bónusgreiðslunum sem yfirmenn AIG tryggingarrisans hafa fengið greidda, en fyrirtækinu var bjargað af ríkinu frá gjaldþroti. 16.3.2009 21:24
Skilanefnd Glitnis tekur yfir hlutafé Moderna Finance AB Skilanefnd Glitnis hefur með samkomulagi við Milestone ehf. í dag gengið að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB dótturfélagi Milestone ehf. í Svíþjóð. 16.3.2009 20:13
Lánardrottnar Kaupþings í Lúx hafna áætlun um endurskipulagningu Lánardrottnar Kaupþings í Lúxemborg hafa hafnað áætlun um endurskipulagningu bankans. Í desember var undirritað samkomulag á milli yfirvalda í Lúxemborg og fjárfestingarsjóðs í eigu líbískra yfirvalda um endurskipulagningu bankans en þetta samkomulag var háð ýmsum skilyrðum, þar á meðal samþykki lánardrottna bankans. 16.3.2009 18:49