Spáir einnig 16,2% verðbólgu í mars 17. mars 2009 12:18
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í mars. Reynist spá deildarinnar á rökum reist mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 17,6% í 16,2%, en verðbólga fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum. Þetta er nákvæmlega sama verðbólgustig og hagfræðideild Landsbankans hefur spáð fyrir um í mars. Fjallað er um málið í Morgunkorni deildarinnar. Þar segir að áhrif gengishruns krónu á haustmánuðum í fyrra eru nú að fjara út, og raunar eru þegar farin að sjást merki um jákvæð áhrif gengisstyrkingar síðustu mánaða í þeim liðum VNV sem hraðast bregðast við gengisbreytingum, s.s. innfluttri ferskvöru og eldsneyti. Á móti koma áhrif af útsölulokum sem enn gætir í liðum á borð við föt og skó, sem og húsgögn og heimilisbúnað. Póst- og símakostnaður mun að mati okkar einnig hækka talsvert í kjölfar verðskrárhækkunar annars af stóru símafyrirtækjunum. Áhrif annarra liða munu verða minni ef spá okkar gengur eftir. Greining telur að 12 mánaða verðbólga muni ganga hratt niður það sem eftir lifir árs. Djúp efnahagslægð gengur nú yfir Ísland, atvinnuleysi stefnir í sögulegar hæðir, verðlækkun mun einkenna íbúðamarkað á komandi ársfjórðungum og hrávöruverð hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári á heimsmarkaði. Auk heldur hefur krónan sótt talsvert í sig veðrið frá síðasta fjórðungi nýliðins árs og frekari styrking sé í pípunum á meðan núverandi gjaldeyrishöft og háir skammtímavextir eru við lýði. Allt leggst þetta á eitt við að halda aftur af hækkun VNV. Spáir deildin að verðbólga verði komin niður fyrir 4% í upphafi næsta árs og að verðbólgan verði undir 2,5% markmiði Seðlabankans allan seinni hluta þess árs.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira