Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FME og sérstakur saksóknari undirrita verklagsreglur Sérstakur saksóknari og settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME) undirrituðu fyrir helgina verklagsreglur til grundvallar samstarfi sínu. 16.3.2009 16:14
Erlendum ferðamönnum fækkaði um 10% í febrúar Samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð fóru um 18 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum en í febrúarmánuði árið 2008 voru þeir tvö þúsund fleiri eða um 20 þúsund. Erlendum gestum fækkar því um 10% milli ára. 16.3.2009 15:51
Hlutir í SAS hækka gífurlega – greinendur eru gáttaðir Hlutir í SAS á mörkuðum á Norðurlöndunum hafa hækkað gífurlega í dag eða á bilinu 30 til 50%. Greinendur eru gáttaðir á þessari þróun enda ekkert í kortunum sem styður þessar hækkanir. 16.3.2009 15:42
Cherie Blair ráðin til að lögsækja RBS og sir Fred Goodwin Cherie Blair, fyrrum forsætisráðherrafrú Bretlands, hefur verið ráðin til að stjórn lögsókn gegn Royal Bank of Scotland (RBS) og sir Fred „The Shred" Goodwin fyrrum forstjóra bankans. 16.3.2009 15:08
Takmarkað hve ríkið getur hjálpað Sparisjóðabankanum Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að það sé takmarkað hve mikið ríkið geti lagt af mörkunum til aðstoðar Sparisjóðabankanum. Eins og kunnugt er af fréttum reynir bankinn nú í samvinnu við kröfuhafa að finna flöt á áframhaldandi rekstri bankans. 16.3.2009 15:00
Þrír sparisjóðir óska eftir auknu eigin fé frá stjórnvöldum Þrír sparisjóðir hafa óskað eftir því að nýta sér heimild í neyðarlögum um að ríkissjóður leggi þeim til 20% af bókfærðu eigin fé eins og það var í árslok 2007. Og fleiri munu vera á leiðinni með slíka ósk. 16.3.2009 13:49
Sakaðir um að stinga undan 30 milljónum króna Tveir karlmenn á sjötugsaldri hafa verið ákærðir fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum sem framin voru í rekstri einkahlutafélagsins Slitur. 16.3.2009 13:39
Krónan veikist um 2,5 prósent Krónan hefur veikst um 2,5 prósent það sem af er dags. Gengisvísitalan stendur nú í 196,6 stigum og hefur ekki verið veikara síðan í byrjun febrúar. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur Greiningar Íslandsbanka, segir skýringuna liggja í vaxtagjalddaga á ríkisbréfum á morgun. 16.3.2009 13:27
ÍLS leitar að viðskiptavaka í stað Straums Íbúðalánasjóður (ÍLS) leitar nú að viðskiptavaka í stað Straums sem gekk af skaftinu þegar Fjármálaeftirlitið yfirtók bankann í síðustu viku. 16.3.2009 13:18
Deilt um verðbætur til verktaka hjá Faxaflóahöfnum Deilt var um greiðslu á verðbótum til verktaka í hafnarstjórn Faxaflóahafna á fundi stjórnarinnar fyrir helgina. Stjórnin samþykkti svo að fela hafnarstjóra að ganga til samninga um greiðslu skertra verðbóta vegna þriggja verkefna á vegum hafnarinnar. 16.3.2009 12:42
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðfellur á mörkuðum í dag Verð á hráolíu hríðféll á mörkuðum í kjölfar þess að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, ákváðu að fresta enn ákvörðun um að hægja á framleiðslu sinni. 16.3.2009 12:20
Gera ráð fyrir 0,5% stýrivaxtalækkun Greining Íslandsbanka telur að niðurstaða peningastefnunefndar verði sú að lækka vexti um 0,5 prósentustig og vextir verði í kjölfarið 17,5%, en stýrivaxtaákvörðunardagur verður næsta fimmtudag. Þessa niðurstaða var birt í nýrri gengis- og stýrivaxtaspá frá 11. mars síðastliðnum. 16.3.2009 12:14
Straumur selur 50% hlut sinn í Wood & Company Straumur hefur selt 50% hlut sinn í fjárfestingarbankanum Wood & Company. Söluverðið er 10 milljónir evra eða um 1,4 milljarðar kr. Auk þess fær Straumur 30% af hagnaði Wood næstu tvö árin. 16.3.2009 12:04
Faxaflóahafnir skiluðu 230 milljónum í hagnað í fyrra Ársreikningur Faxaflóahafna sf. var lagður fyrir stjórn félagsins fyrir helgina og samþykktur. Helstu niðurstöðutölur eru að reksturinn eftir fjármagnsliði skilaði hagnaði sem nemur 230.8 milljónum kr. 16.3.2009 11:29
Cosser hefur enn áhuga á Íslandi Steve Cosser fjárfestir, sem gerði tilboð í útgáfufélag Morgunblaðsins, er ekki hættur við að fjárfesta á Íslandi, samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Oddssyni lögmanni hans. Cosser var á meðal þriggja aðila sem gerðu tilboð í Árvakur, sem rekur Morgunblaðið og mbl.is. Tilboði var hins vegar tekið frá hóp sem Óskar Magnússon lögmaður fór fyrir. 16.3.2009 10:47
Skuldir Manchester United seldar á tombóluverði Skuldir enska fótboltafélagsins Manchester United eru nú seldar á tombóluverði þar sem lánadrottnar félagsins eru óttaslegnir yfir skuldastöðu félagsins. Forgangslán félagsins ganga nú kaupum og sölum á 70% af nafnvirði. 16.3.2009 10:43
Færeyjabanki einn á uppleið Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hefur hækkað um 0,96 prósent í dag. Þetta er jafnframt eina hækkun dagsins. Á sama tíma hefur gengi bréfa í Marel Food Systems lækkað um 0,71 prósent og í Össur um 0,41 prósent. 16.3.2009 10:22
Fjárfestar í Debenhams styðja hlutafjáraukningu Fjárfestar í Debenhams eru reiðubúnir til að styðja hlutafjáraukningu í verslunarkeðjunni verði hún tilkynnt samhliða ársuppgjöri keðjunnar í þessari viku. 16.3.2009 10:18
Engin skerðing hjá Frjálsa lífeyrisjóðnum Frjálsi lífeyrissjóðurinn þarf ekki að skerða réttindi og lífeyri sjóðfélaga í tryggingadeild sjóðsins þrátt fyrir þann ólgusjó sem ríkti á verðbréfamörkuðum árið 2008. 16.3.2009 09:40
Reiknar með að stýrivextir lækki um 1-1,5 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans reiknar með því að Seðlabankinn muni lækka stýrivexti um 1 til 1,5 prósentustig á fimmtudaginn kemur en þá verður ákvörðun tekin um stýtivexti. 16.3.2009 09:32
Töluverð aukning á aflaverðmæti milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 samanborið við 80 milljarða yfir árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 18,8 milljarða eða 23,5% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam tæpum 8 milljörðum miðað við rúma 5 milljarða í desember 2007. 16.3.2009 09:20
Verðbréfamiðlun Straums í London er til sölu Teathers, verðbréfamiðlun Straums í London er til sölu og er vonast til að nýr eigandi taki við henni fyrir lok þessarar viku. 16.3.2009 08:45
Asíubréf hækkuðu Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf hátæknifyrirtækja og bílaframleiðenda sem hækkuðu mest. Japanski Mitsubishi-bankinn hækkaði um sex prósent og bréf bílaframleiðandans Mazda hækkuðu um tæplega 10 prósent en Japanar hafa nú á ný öðlast bjartsýni á að bílasala þeirra á erlendri grundu aukist. 16.3.2009 07:38
Olíuríkin draga ekki úr framleiðslu Samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, ætla ekki að minnka olíubirgðir og ná þannig fram hækkun á heimsmarkaði. Þess í stað verður lögð áhersla á að koma í veg fyrir að aðildarríki samtakanna framleiði olíu umfram kvóta. 15.3.2009 22:00
AIG dregur úr bónusgreiðslum Bandaríska trygginga- og fjárfestingafélagið AIG Investments hefur ákveðið að draga úr bónusgreiðslum til starfsmanna. Greiðslur til lykilstjórnenda verða lækkaðar um 30%. Þetta kemur fram í bréfi sem Edward Liddy, stjórnarformaður AIG, skrifaði Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna. 15.3.2009 16:44
Arðgreiðslur HB Granda afar hófsamar Stjórnarformaður og forstjóri HB Granda segja arðgreiðslur félagsins afar hófsamar. Þeir fagna að félagið hafi tekist að halda uppi fullri starfsemi. 15.3.2009 12:59
Jón Ásgeir selur einkaflugvél og snekkju Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hefur selt einkaþotu sína og 50 metra langa snekkju. ,,Það er ágætt að eiga þessa hluti en það er pottþétt hægt að lifa án þeirra," segir Jón í viðtali við Sunday Times. 15.3.2009 10:54
Fjöldi atvinnulausra nálgast 17 þúsund Atvinnuleysi heldur áfram að aukast hröðum skrefum og nú eru 16.878 manns atvinnulausir á landinu öllu. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að skráð atvinnuleysi í vor verði komið upp í 10% en nú eru líkur á að það hlutfall komi jafnvel fyrr á árinu. 14.3.2009 16:30
Leita leiða til að hækka olíuverð Samtök olíuríkja koma saman til fundar nú um helgina til þess að leita leiða til að minnka olíubirgðir og hækka þannig verðið á heimsmarkaði. Mikil andstaða er við það hjá neysluríkjunum. 14.3.2009 14:15
Íranir vilja minni olíu Olíumálaráðherra Írans lagði til á fundi OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, að olíuríkin dragi enn frekar úr framleiðslu sinni. ,,Það er alltof mikil olía á markaðnum," sagði Gholam Hossein Nozari, olíumálaráðherra Írans, við blaðmenn í Vín í Austurríki þar sem fundurinn fer fram. 14.3.2009 12:15
Stærstu iðnveldin funda um efnahagsmál Nú um helgina funda fjármálaráðherrar og seðlabankastjórar 20 helstu iðnvelda í Bretlandi. Ríkin endurspegla rúmlega 80% af efnahag heimsins. 14.3.2009 11:30
Byr mun lifa af með hjálp ríkisins „Byr mun standa af sér óveðrið sem verið hefur í efnahagslífinu að undanförnu," segir Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri. Hann segir að árið 2008 hafi vissulega verið erfitt en samkvæmt ársuppgjöri tapaði Byr tæpum 29 milljörðum. 13.3.2009 20:17
Útrásarvíkingar þurfa að svara fyrir greiðslukortanotkun Hinir svokölluðu útrásarvíkingar eru meðal þeirra sem fá sent bréf frá Ríkisskattstjóra í næstu viku þar sem þeir eru beðnir um að gera grein fyrir notkun á erlendum kreditkortum hér á landi. 13.3.2009 18:40
Byr tapaði tæpum 29 milljörðum króna Byr sparisjóður tapaði um 28.881 milljónum króna eftir skatta á árinu 2008. Í fréttatilkynningu frá Byr segir að þar sé um verulegan viðsnúning að ræða frá fyrra ári, þegar hagnaður eftir skatta nam 7.929 milljónum króna Virðisrýrnun útlána, krafna og óefnislegra eigna nam 29.202 milljónum króna. 13.3.2009 17:00
Siv spyr utanríkisráðherra um lán til Icelandic Glacial Siv Friðleifsdóttur þingmaður Framsóknarflokksins hefur beint skriflegri fyrirspurn á alþingi til utanríkisráðherra um hvort hann hafi haft áhrif á að fyrirtækið Icelandic Glacial fékk 450 milljón kr. lán í lok síðasta árs eða síðar. 13.3.2009 16:40
Hlutabréfaverð hækkar í vikulokin Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, rauk upp um 12,39 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Össuri, sem hækkaði um 3,43 prósent, Færeyjabanka, sem hækkaði um 0,97 prósent, og Marel Food Systems, sem hækkaði um 0,61 prósent. 13.3.2009 16:34
HS Orka tapaði 11,7 milljörðum í fyrra Tap HS Orku (Hitaveitu Suðurnesja) á síðasta ári nam tæplega 11,7 milljörðum kr. Árið áður nam hagnaður af rekstri félagsins tæpum 3,5 milljörðum kr. 13.3.2009 16:08
Íslensku bankarnir bjarga All Saints frá þroti Tískuvörukeðjan All Saints hefur verið bjargað frá þroti eftir að íslensku bankarnir Kaupþing og Landsbankinn, aðallánadrottnar All Saints, féllust á fjárhagslega endurskipulagingu keðjunnar. 13.3.2009 15:34
Whelan ræðir við JJB Sports um kaup á líkamsræktarstöðvum Íþróttavörukeðjan JJB Sports á nú í viðræðum við Dave Whelan, stofnanda keðjunnar og núverandi eigenda Wigan Athletic um sölu á líkamsræktarstöðvum JJB Sports. 13.3.2009 15:13
Segir Kaupþing hafa brotið gegn lögum um neytendalán Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að Kaupþing banki hf. hafi brotið gegn ákvæðum laga um neytendalán, vegna skilmála bankans á lánum í erlendri mynt með því að tilgreina ekki í skilmálum myntkörfulánssamnings með hvaða hætti vextirnir eru breytilegir og við hvaða aðstæður þeir breytist. 13.3.2009 14:45
Kaupþing fær leyfi dómstóls til að kanna ákvörðun Breta Dómstóll í Bretlandi (High Court) hefur heimilað Kaupþingi banka hf. að fylgja eftir kröfu sinni um að fram fari lögfræðileg endurskoðun á réttmæti ákvörðunar breskra stjórnvalda um að framselja til þriðja aðila, án bóta, innstæður á Kaupthing Edge reikningum hjá dótturfélagi bankans í Bretlandi, Kaupthing Singer & Friedlander, þann 8. október 2008. 13.3.2009 14:23
Fréttaskýring: Stýrivaxtalækkun og afnám gjaldeyrishafta Tveir mjög jákvæðir punktar komu fram í máli fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) nú fyrir hádegið á blaðamannafundi í Seðlabankanum. Annarsvegar var um að ræða að svigrúm hefur myndast fyrir stýrivaxtalækkun og hinsvegar að fyrstu skrefin í afnámi gjaldeyrishaftanna eru í sjónmáli. 13.3.2009 14:18
Fallið frá ákæru á Baug vegna gjaldþrots Ákveðið var að falla frá ákærum á hendur Baugi Group í ljósi þess að félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. 13.3.2009 13:28
Hansa í greiðslustöðvun til 8. júní Hansa ehf. hefur verið veitt áframhaldandi greiðslustöðvun til 8. júní næstkomandi. Hansa er í eigu Björgólfs Guðmundssonar og er helsta eign þess breska knattspyrnuliðið West Ham United. MP banki, sem er á meðal kröfuhafa í félagið lagðist hart gegn því að Hansa fengi framlengingu á greiðslustöðvun, féll frá þeim kröfum í síðustu viku. 13.3.2009 13:11
Baugsmenn stofna nýtt félag í Bretlandi Forstjórar Baugs í Bretlandi, þeir Gunnar Sigurðsson og Don McCarthy, hafa stofnað nýtt félag í Bretlandi undir nafninu Tecamol. Jón Ásgeir Jóhannesson er sagður tengjast félaginu. 13.3.2009 13:08