Ekkert lát á samdrætti í kortaveltu Íslendinga 17. mars 2009 12:30
Ekkert lát er á samdrætti í kortaveltu og er það til marks um að einkaneysla muni reynast mun minni á yfirstandandi ársfjórðungi en raunin var í fyrra. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun var kreditkortavelta alls 22,1 milljarðar kr. í febrúar síðastliðnum. Að krónutölu er um ríflega 13% samdrátt að ræða á milli ára, en að raungildi nemur samdrátturinn hins vegar tæplega 30% frá febrúar 2008. Snarpastur er samdrátturinn í erlendri kortaveltu, en að raunvirði dróst kreditkortanotkun erlendis saman um ríflega helming í síðasta mánuði frá sama tíma í fyrra. Innlend kreditkortanotkun skrapp saman um tæplega fjórðung í febrúar miðað við sama mánuð 2008. Innlend debitkortanotkun hefur, líkt og kreditkortanotkunin, minnkað verulega í kjölfar bankahrunsins í fyrrahaust. Raunbreytingar á framangreindri greiðslukortanotkun gefa góða mynd af þróun einkaneyslu, og sé rýnt í þá þróun má gera ráð fyrir að einkaneysla á fyrstu tveimur mánuðum ársins hafi verið allt að fjórðungi minni en á sama tíma í fyrra. Er það álíka mikill samdráttur á milli ára og sjá mátti í nýlegum tölum Hagstofu yfir landsframleiðslu á 4. fjórðungi nýliðins árs.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira