Viðskipti innlent

Skilanefnd Glitnis tekur yfir hlutafé Moderna Finance AB

Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis.
Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis.

Skilanefnd Glitnis hefur með samkomulagi við Milestone ehf. í dag gengið að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB dótturfélagi Milestone ehf. í Svíþjóð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skilanefnd Glitnis. Þar segir ennfremur að með þessu færist yfirráð yfir íslenskum dótturfélögum Moderna Finance, Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skilanefndar Glitnis.

„Áfram er unnið að endurskipulagningu félaganna og er samningurinn við skilanefndina liður í að tryggja rekstur þeirra til frambúðar. Samningurinn mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur íslensku félaganna.

Samningurinn hefur ekki áhrif á söluferlið sem var hafið á erlendum eignum Moderna Finance AB. Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir að yfirtaka á hlutafé Moderna Finance AB sé eðlilegt framhald á vinnu skilanefndarinnar, eftir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu Moderna Finance samstæðunnar náðu ekki fram að ganga."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×