Fleiri fréttir

Óbreytt framtíðarsýn laskaðra sparisjóða

Tveir sparisjóðir færðust í sögubækur um síðustu helgi. Þrettán standa eftir en helmingur þeirra stendur höllum fæti. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson leit yfir sögu sparisjóðanna og skoðaði ástæðurnar fyrir falli þeirra.

Rangri eða slæmri ráðgjöf fylgt

Kröfuhafar SPRON töldu stjórnvöld fylgja rangri eða gallaðri ráðgjöf í aðdraganda þess að Fjármálaeftirlitið (FME) greip inn í rekstur SPRON og Sparisjóðabankans um síðustu helgi.

Goldman Sachs vill skila 1200 milljarða fjárveitingu frá ríkinu

Forsvarsmenn Goldman Sachs sögðu í dag að þeir vonuðust til þess að 10 milljarða dala, eða tæplega 1200 milljarða króna, fjárveitingu frá ríkinu yrði skilað til baka svo fljótt sem auðið væri. Fjölmiðlar vestanhafs búast jafnvel við því að lánið verið endurgreitt í næsta mánuði.

Stjórnendur Össurar selja hlut sinn langt undir markaðsvirði

Forstjóri Össurar hf. og framkvæmdastjórar hafa selt stærstan hluta hlutabréfa sinna í félaginu, alls 23.441.801 hlut eða 5,6% af heildarhlutafé félagsins. Hluturinn er seldur á genginu 88 sem er 9% undir lokagengi dagsins í dag. Viðskiptin námu því tæpum 2100 milljónum króna.

Hlutabréf lækkuðu á Wall Street

Helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street lækkuðu í dag. Búist hafði verið við þessu enda varð mikil hækkun á mörkuðum i gær eftir að ríkisstjórnin hafði tilkynnt um aðgerðir til að hjálpa bönkunum. Dow Jones vísitalan lækkaði í dag um 1.49%, S&P 500 lækkaði um -2.02% og Nasdaq lækkaði um 2.44%.

Blóðrautt sólarlag í kauphöllinni

Úrvalsvísitalan lækkaði um 11,4% í dag og stendur í 215 stigum. Höfuðástæðan er að hlutabréf SPRON voru tekin úr viðskiptum í kauphöllinni.

Aeroflot keppir við Icelandair um kaupin á CSA

Rússneska flugfélagið Aeroflot ætlar sér að bjóða í tékkneska ríkisflugfélagið Czech Airlines (CSA) og mun þar keppa meðal annars við Travel Service sem er dótturfélag Icelandair í Tékklandi.

Breytingar á framkvæmdastjórn Straums

Fjórir meðlimir framkvæmdastjórnar Straum hafa látið af störfum í stjórninni, Þetta eru þeir Antti Makinen, Nick Stagg, Skúli Valberg Ólafsson og Svanbjörn Thoroddsen.

FME fái ekki heimild til að kæra ekki

Allt stefnir í að fallið verði frá því að Fjármálaeftirlitið fái heimildir til að kæra ekki brot til lögreglu, hafi fyrirtæki eða einstaklingur frumkvæði að því að láta því upplýsingar í té vegna alvarlegra brota.

Nýbúar halda fasteignamarkaði Kaupmannahafnar á floti

Á vissum svæðum í Kaupmannahafnarborg eru það nýbúar sem standa á bakvið sjö af hverjum tíu fasteignakaupum. Að hluta til skýrist það af því að þeir lána hver öðrum fyrir kaupum á íbúðum eða húsum.

Nýja Kaupþing hættir við ábyrgðarmannakerfi

Nýja Kaupþing hefur fyrst íslenskra banka ákveðið að hætta töku sjálfskuldarábyrgða eða fasteignaveða þriðja aðila vegna lána til einstaklinga. Einstaklingar fá því framvegis fyrirgreiðslu eingöngu í takt við eigin greiðslugetu og efnahag.

Arabískir olíusjeikar á flótta frá Las Vegas

Vellauðugir olíusjeikar frá Dubai eru nú að koma sér undan því að fjárfesta áfram í stærsta hóteli og spilavíti Las Vegas borgar. Las Vegas hefur orðið illilega fyrir barðinu á fjármálakreppunni og viðskiptin þar eru ekki nema svipur hjá sjón m.v. fyrri ár.

SA vill endurskoða stýrivexti fyrr en áformað er

Nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar hlýtur að koma Seðlabankanum verulega á óvart, segir í frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins (SA). Hjöðnun verðbólgu er mun hraðari en hann virðist hafa gert ráð fyrir og það hlýtur að leiða til þess að stýrivextir verði endurskoðaðir fyrr en áformað var.

Mikill áhugi á þrotabúi SPRON

Að minnsta kosti tíu fjármálafyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á að kaupa eignir úr þrotabúi SPRON. Formaður skilanefndar segir æskilegt að söluferlið taki stuttan tíma.

Í miðlunarkerfi Reuters kostar evran 230-250 krónur

Gengi krónunnar á erlendum markaði hefur verið tiltölulega stöðugt síðustu daga. Var evran þannig skráð í miðlunarkerfi Reuters í um 230 krónum í gær og hljóða tilboðin í miðlunarkerfinu upp á 230-250 krónur í morgun.

Hagstæðar verðbólgutölur veiktu gengi krónunnar um 0,75%

Eftir nokkuð snarpa lækkun hefur gengi krónunnar verið stöðugt síðustu daga. Evran hefur verið í kring um 154 krónur frá því í lok síðustu viku og viðskiptin á millibankamarkaði með gjaldeyri hafa engin verið fyrr en í morgun, en í kjölfar birtingar á hagstæðum verðbólgutölum veiktist krónan um 0,75%.

Sameining tveggja banka vandkvæðum bundin

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að þótt rætt hafi verið um sameiningu tveggja af stóru bönkunum þremur innan ríkisstjórnarinnar séu augljósir vankantar á slíkri sameiningu. „Ef af yrði myndi sá banki hafa um 50% markaðshlutdeild sem telst ekki gott út frá samkeppnissjónarmiðum og erfitt yrði að réttlæta slíka ákvörðun,“ segir Gylfi.

Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr

Hin mikla óvissa sem ríkt hefur á fjármálamörkuðum undanfarna mánuði gerir það nú að verkum að Danir fjárfesta í gulli og silfri sem aldrei fyrr. Gullkaup Dana á fyrstu mánuðum þessa árs eru um 40% meiri en á sama tíma í fyrra.

Grimsby hagnast á erfiðleikum Íslands

Fisksalar í Grimsby brosa nú út að eyrum þar sem íslensk fiskiskip eru aftur byrjuð að sigla til þessarar sögufrægu hafnarborgar og selja þar afla sinn eftir 12 ára stopp.

Gengi bréfa í Marel fellur um 2,39 prósent

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um 2,39 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni og stendur í 45 krónum á hlut. Þá féll gengi bréf aí Bakkavör um 2,1 prósent. Gengi annarra félaga hefur ekki hreyfst úr stað.

Heimsmarkaðsverð á olíu skríður yfir 54 dollara

Heimsmarkaðsverð á olíu skreið yfir 54 dollara á tunnuna í gærkvöldi í kjölfarið á mikilli uppsveiflu á mörkuðunum á Wall Street. Hækkun gekk síðan aðeins til baka í morgun er verðið lá í kringum 53,80 dollara.

Facebook fyrir 20.000 sterkefnuð svín

Stofnandi vefsíðunnar Affluence.org lýsir henni sjálfur sem ...“Facebook fyrir sterkefnuð svín“. Um er að ræða vefsíðu þar sem meðlimir verða að eiga a.m.k. 60 milljónir kr. í handraðanum eða vera með árslaun sem nema hátt í 40 milljónum kr.

Ársverðbólga mælist nú 15,2%

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 15,2% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 19,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 1,9% verðbólgu á ári (7,6% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hækkun á Asíumörkuðum

Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun með aukinni trú fjárfesta á að nýjustu áætlanir Timothy Geitners, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gangi upp.

Hæstu bónusarnir verða greiddir til baka

Andrew Cuomo, saksóknari í New York fylki, segir að þeir fimmtán starfsmenn sem fengu hæstu bónusana frá bandaríska trygginga- og fjárfestingafélaginu AIG hafi samþykkt að skila þeim til baka. Um er að ræða 30 milljónir bandaríkjadala af þeim 165 sem félagið greiddi fyrr í þessum mánuði.

Áttu ekki greið viðskipti við Seðlabankann

Fráfarandi stjórn og forstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis harmar hvernig yfirtakan á bankanum var kynnt opinberlega af hálfu stjórnvalda í beinni útsendingu. Stjórnendum var ekki gefið færi á því að greina starfsmönnum frá því hvað hafði gerst.

Hlutabréfavísitölur ruku upp

Verð á hlutabréfum á Wall Street rauk upp í dag og er málið helst rakið til frétta af fasteignum og bankakerfinu en aukinnar bjartsýni virðist gæta á meðal bandarískra fjárfesta um að betri tíð sé í vændum en verið hefur.

Saka íslensk stjórnvöld um gerræðisleg vinnubrögð

Erlendir lánadrottnar saka íslensk stjórnvöld um gerræðisleg og illa ígrunduð vinnubrögð vegna yfirtökunnar á SPRON. Tap lánadrottna SPRON og Sparisjóðabankans er talið nema rúmum 150 milljörðum króna.

SpKef selur Íbúðalánasjóði skuldabréf fyrir 10 milljarða

Stjórnendur Sparisjóðsins í Keflavík og Íbúðalánasjóðs undirrituðu í dag samkomulag um að sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði, í samræmi við heimild til slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja.

Íslendingar og Færeyingar undirrita lánssamning

Færeyingar og Íslendingar undirrituðu í dag lánssamning milli Landsstjórnar Færeyja og íslenska ríkisins. Samkvæmt samningnum lánar Landsstjórn Færeyja íslenska ríkinu 300 milljónir danskra króna.

Enn hækkar gengi Össurar

Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 3,16 prósent í dag og er það mesta hækkunin í Kauphöllinni. Þá hækkaði gengi bréfa í Færeyjabanka um 2,19 prósent.

Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports komin í uppnám

Salan á líkamsræktarstöðvum JJB Sports er komin í uppnám þar sem milljarðamæringurinn Mike Ashley, eigandi Newcastle United, reynir nú hvað hann getur til að koma í veg fyrir söluna til Dave Whelan sem er eigandi Wigan Athletic keppinauta Newcastle, Wigan Athletic.

Innlán SPRON of stór biti fyrir aðra sparisjóði

Umfang SPRON var of stórt til þess að unnt hefði verið að færa innlán sparisjóðsins inn í aðra sparisjóði í stað þess að færa þau til Kaupþings. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði Gylfa Magnússon viðktiptaráðherra að þessu í umræðum sem fram fóru í dag á þingi í kjölfar greinargerðar Gylfa varðandi aðgerðir gegn SPRON og Sparisjóðabankanum um helgina.

Eignir sjálfseignastofnunnar SPRON orðnar að engu

Verðmæti hlutafjár sjálfseignarstofnunar SPRON varð að engu þegar bankinn hrundi á laugardag. Eigið fé stofnunarinnar nam rúmum einum milljarði króna en meginhlutverk hennar var að styrkja menningar- og íþróttastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu.

Fasteignavefurinn á Vísir.is orðin sá stærsti á landinu

„Við erum að greina mikla aukningu á heimsóknum á vefinn okkar, það er greinilegt að mikill áhugi er á kaupum og sölu fasteigna. Svo virðist að markaðurinn sé eilítið að vakna, en hann er auðvitað nánast búinn að vera frosinn," segir Grétar Jónasson framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.

Áhyggjuefni hve áhugi fjárfesta á ríkisbréfum er lítill

Takmarkaður áhugi fjárfesta í útboði Seðlabankans á ríkisbréfum síðastliðinn föstudag hlýtur að vera stjórnvöldum nokkurt áhyggjuefni, sér í lagi í ljósi þess að útboðinu var m.a. ætlað að koma til móts við hluta af stórum gjalddaga innstæðubréfa í þessari viku.

Flutningurinn gengið vel

Flutningur greiðsluþjónustu SPRON yfir í Kaupþing hefur gengið vel og ekki er vitað um tæknileg vandamál vegna þessa. Upplýsingafulltrúi Kaupþings segir að bankanum hafi borist fjölmargar fyrirspurnir í morgun frá fyrrum viðskiptavinum SPRON.

Sjötíu fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í janúar

Á fimmtudaginn birtir Hagstofan yfirlit yfir gjaldþrot fyrirtækja í febrúar en um er að ræða nýjan hagvísi sem Hagstofan hyggst birta mánaðarlega. Í janúar voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem var aukning um 71% aukning frá sama mánuði í fyrra þegar gjaldþrotin voru 41. Flest voru gjaldþrotin í janúarmánuði í byggingarstafsemi og mannvirkjagerð en fjármálakreppan hefur komið afar illa niður á þeirri starfsemi.

Sjá næstu 50 fréttir