Viðskipti innlent

VBS fær lán hjá ríkissjóði til sjö ára upp á 26 milljarða

VBS fjárfestingarbanki hefur gengið frá samkomulagi við ríkissjóð um 26 milljarða  lán til 7 ára vegna skuldbindinga bankans við Seðlabanka Íslands.

Í tilkynningu segir að með samningnum sé tryggt að ríkissjóður og þar með skattgreiðendur, fái að fullu greitt skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna endurhverfra viðskipta við Seðlabankann.

Auk þessa mun samningurinn tryggja langtímafjármögnun á meginhluta skulda VBS fjárfestingarbanka, og þar með renna styrkum stoðum undir framtíð félagsins, hagsmuni viðskiptavina, hluthafa og starfsfólks.

Jón Þórisson forstjóri VBS segir að með þessu láni sé bankinn kominn í var og geti haldið starfsemi sinni áfram óbreyttri. "Í stöðunni í dag eru mörg tækifæri til staðar fyrir þá sem eftir eru á markaðinum og við ætlum okkur að nýta þau," segir Jón.

Lánasamningurinn inniheldur skilyrði um eiginfjár- og lausafjárstöðu auk annarra skilyrða og veitir hinu opinbera ríkari aðgengi að upplýsingum er varða rekstur og rekstrarhæfi bankans.

Stefnt er að því að birta endurskoðaðan ársreikning VBS fjárfestingarbanka þann 31.mars næstkomandi.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×