Stjórnendur Össurar selja hlut sinn langt undir markaðsvirði 24. mars 2009 21:16 Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sér eftir hlut sínum í fyrirtækinu.
Forstjóri Össurar hf. og framkvæmdastjórar hafa selt stærstan hluta hlutabréfa sinna í félaginu, alls 23.441.801 hlut eða 5,6% af heildarhlutafé félagsins. Hluturinn er seldur á genginu 88 sem er 9% undir lokagengi dagsins í dag. Viðskiptin námu því tæpum 2100 milljónum króna. Stærstur hluti bréfanna var upphaflega keyptur á hlutabréfamarkaði og fjármagnaður að nokkru leyti með lánsfé. Bréfin eru seld til uppgjörs á þeim skuldum. Össur hf. eða aðrir hluthafar Össurar hf. hafa aldrei veitt stjórnendum lán eða ábyrgðir. Kaupandi hlutabréfanna er danska fjárfestingafyrirtækið William Demant Invest A/S. William Demant Invest hefur verið stærsti hluthafi Össurar frá árinu 2005 og eykur við kaupin hlut sinn úr 34,3% af heildarhlutafé í 39,9%. Þessar eignabreytingar leiða ekki til skyldu til að gera yfirtökutilboð í hlutabréf annarra hluthafa, þar sem nýsamþykktar breytingar á yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti hafa ekki formlega tekið gildi. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að engar breytingar séu fyrirhugaðar á rekstri Össurar hf., hvorki á Íslandi né annarsstaðar, í kjölfar þessara viðskipta. „Við sjáum verulega eftir þessum hlut okkar í félaginu en verðum að sætta okkur við að hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda hlutabréfunum. Össur hf. er gott og fjárhagslega sterkt fyrirtæki. Áherslan hefur alltaf verið jafnt á vöxt og hagnað, sem nú skilar sér í að félagið er eins vel undirbúið fjárhagslega og hægt er fyrir þær sviptingar sem nú ríða yfir," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar. Eggert Þór Aðalsteinsson, fyrrverandi viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu og starfsmaður hjá greiningadeild Kaupþings, segir á bloggsíðu sinni að hluturinn hafi verið seldur á tombóluverði. Hann segir að Össur sé eitt frambærilegasta fyrirtæki á Íslandi og spyr sig hvort „Íslands eina von" verði selt á brunaútsölu til erlendra fjárfesta.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira