Hagstæðar verðbólgutölur veiktu gengi krónunnar um 0,75% 24. mars 2009 11:57
Eftir nokkuð snarpa lækkun hefur gengi krónunnar verið stöðugt síðustu daga. Evran hefur verið í kring um 154 krónur frá því í lok síðustu viku og viðskiptin á millibankamarkaði með gjaldeyri hafa engin verið fyrr en í morgun, en í kjölfar birtingar á hagstæðum verðbólgutölum veiktist krónan um 0,75%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að án hafta hefðu þessar tölur hins vegar líklega haft meiri og skjótari áhrif á gengisþróunina. Hið sama má segja um viðbrögð gjaldeyrismarkaðarins við vaxtalækkun Seðlabankans í síðustu viku sem var minni en vænst var almennt á markaðinum. Viðbrögð gjaldeyrismarkaðarins komu seint og voru lítil við þeim tíðindum. Ástæðu lækkunarhrinu krónunnar um miðjan mánuðinn má rekja til vaxtagjalddaga ríkisbréfaflokks og væntinga um gjaldeyrisflæði vegna hans. Flokkur þessi er tæplega 71 milljarðar kr. að nafnvirði og var 7% vaxtagreiðsla af honum á gjalddaga á þriðjudaginn í síðustu viku. Þarna var því um að ræða nærri 5 milljarða kr. greiðslu að ræða sem að verulegu leyti féll í skaut erlendra eigenda bréfanna, en gjaldeyriskaup vegna vaxtatekna eru leyfileg undir gjaldeyrishöftum. Áhrifin af þessu voru jafn mikil og raun ber vitni vegna þess hvað gjaldeyrismarkaðurinn er grunnur. Í því sambandi má geta þess að veltan á millibankamarkaði með gjaldeyri var tæpir 4,0 milljarðar kr. í febrúar og í janúar var hún 4,3 milljarðar kr. Áhrifin voru þó hugsanlega ekki að öllu leyti vegna gjaldeyriskaupa vegna vaxtagreiðslnanna sjálfra heldur einnig vegna þess að aðrir þátttakendur á gjaldeyrismarkaðinum hafi viljað safna gjaldeyri í sarpinn vegna ótta við veikingu krónunnar í kjölfar vaxtagreiðslugjalddagans. Þá má einnig vera að hluti af gjaldeyrisviðskipunum vegna þessara vaxtagreiðslna hafi ekki enn verið framkvæmdur. Seðlabankinn hefur verið nokkuð stór þátttakandi á millibankamarkaði með gjaldeyri það sem af er ári. Bankinn var þannig með um 1,5 milljarða kr. af veltunni á millibankamarkaðinum í febrúar eða um 39% og um 1,3 milljarða kr. af veltunni í janúar eða 31%. Áhugavert verður að sjá tölur fyrir mars þegar þær verða birtar og þá hvort að lækkunina undanfarið megi rekja til þess að bankinn hafi verið umsvifaminni inni á gjaldeyrismarkaðinum en áður.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira