SpKef selur Íbúðalánasjóði skuldabréf fyrir 10 milljarða 23. mars 2009 19:40 Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, og Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, undirrita samninginn um skuldabréfakaupin.
Stjórnendur Sparisjóðsins í Keflavík og Íbúðalánasjóðs undirrituðu í dag samkomulag um að sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði, í samræmi við heimild til slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja. Íbúðalánasjóður mun greiða 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa sem hér segir: · Úr flokki HFF150434, bréf að nafnvirði kr. 1.033.936.941 · Úr flokki HFF150644, bréf að nafnvirði kr. 4.846.955.385 Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa Sparisjóðsins í Keflavík á Íbúðalánasjóð sem mun verða gerð upp að 8 árum liðnum. Til ársins 2010 er Sparisjóðnum í Keflavík óheimilt að lána eða selja ofangreind íbúðabréf á eftirmarkaði og einungis heimilt að nota íbúðabréfin í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands. Á árinu 2009 áskilur Íbúðalánasjóður sér rétt til að skipta ofangreindum íbúðabréfum út fyrir bréf úr nýjum flokki íbúðabréfa sem stofnaður verður á árinu, þannig að uppreiknuð staða bréfanna við skiptin jafngildi markaðsvirði bréfanna úr flokkum HFF150434 og HFF150644 á skiptadegi. Kjósi Sparisjóðurinn í Keflavík að selja íbúðabréfin skuldbindur hann sig til að skipta sölu bréfanna niður á 3 ár þannig að hámarksfjárhæð bréfa sem heimilt er að selja á hverju ári, fyrst á árinu 2010, sé 1/3 af nafnverðsfjárhæð afhentra bréfa. Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði segir að afhending íbúðabréfanna fari fram á næstu tveimur vikum í samræmi við afgreiðslu Sparisjóðsins í Keflavík á hinum seldu skuldabréfum til Íbúðalánasjóðs.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira