Fleiri fréttir

Lækkun á Asíumörkuðum í morgun

Hlutabréf lækkuðu í verði á mörkuðum í Asíu í morgun þrátt fyrir að öldungadeild Bandaríkjaþings hafi samþykkt björgunaráætlun bankanna í gær.

Halli of mikill fyrir Evrópusambandið

Ný fjárlög uppfylla ekki skilyrði Maastricht-sáttmála Evrópusambandsins um efnahagslegan stöðugleika. Samkvæmt þeim hefði halli á fjárlögum næsta árs ekki mátt fara yfir 47,3 milljarða króna.

Buffett opnar veskið á ný

Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett gert gert samkomulag um kaup á hlutabréfum í bandarísku risasamsteypunni General Electric fyrir þrjá milljarða bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 330 milljarða íslenskra króna. Kaupin eru gerð í gegnum fjárfestingafélagið Berkshire Hathaway, sem hann hefur stýrt í rúm fjörutíu ár.

Fjárfestar bíða vongóðir á Wall Street

Gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum á borð við Apple og DeCode lækkaði nokkuð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag á meðal fjármálafyrirtækin stóðu nokkuð óbreytt.

Gengi DeCode aldrei lægra

Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um 2,56 prósent á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum í dag og endaði gengi bréfa í fyrirtækinu í 38 sentum á hlut.

Fátt bendir til að krónan styrkist

Fátt bendir til þess að krónan muni styrkjast á næstunni, segir Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans.

Krónan aldrei veikari í lok dags

Gengi krónunnar veiktist um þrjú prósent og stendur gengisvísitalan í 202,7 stigum. Krónan hefur aldrei verið veikari í lok dags og nú. Vísitalan fór í 207 stig um hádegisbil.

Fitch mælir með enn einni stýrivaxtahækkun

Seðlabanki Íslands á að hækka stýrivextina til þess að koma í veg fyrir að krónan veikist meira en orðið er. Þetta segir Paul Rawkins, yfirmaður hjá greiningafyrirtækinu Fitch Ratings í London í viðtali á Bloomberg. Hann segir þetta nauðsynlegt í ljósi þess að krónan hefur veikst á síðustu dögum í kjölfar þess að ríkið gerði yfirtökutilboð í Glitni og lánshæfismat banka og ríkis voru lækkuð.

Hörð gagnrýni á Seðlabankann hjá greiningu Kaupþings

Hörð gagnrýni kemur fram á Seðlabanka Íslands hjá greiningu Kaupþings í dag þegar hún kynnti efnahagshorfur sínar. Þar segir m.a. að Seðlabankinn hafi ekki nýtt tíman undanfarna sjö mánuði til að efla lausafjárstöðu hagkerfisins.

Segir Þorstein Má ekki hafa farið með fleipur í Kastljósi

Björn Ingi Sveinsson forstjóri Saxbygg og stjórnarmaður í Glitni segir að Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður bankans hafi ekki farið með fleipur í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Þá sagði Þorsteinn að boðað hefði verið til blaðamannafundar í Seðlabankanum áður en búið var að fá samþykki hjá stærstu hluthöfum bankans. Seðlabankinn sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að samþykki hefði verið komið þegar boðað var til fundarins.

Fréttaskýring: Seðlabankinn er alls ekki starfi sínu vaxinn

Gengisvísitalan er komin í 205 stig sem þýðir að dollarinn kostar 111 krónur og hefur aldrei verið dýrari í sögunni. Þetta segir aðeins eitt, Seðlabankinn er alls ekki starfi sínu vaxinn. Raunar þegir bankastjórn Seðlabankans þunnu hljóði meðan að gjaldþrot blasir við hjá fjölda heimila og fyrirtækja. Einkum þeim sem létu ginnast af gylliboðum bankana um myntkörfulán á undanförnum einu til þremur árum.

Erlendir bankar hafa hætt viðskiptum með krónuna

Saxo Bank hefur hætt viðskiptum með íslensku krónuna en ákvörðun var tekin um það í gær og hefur Saxo Bank því ekki átt viðskipti með íslenskar krónur í dag, og sömu sögu er að segja af mörgum öðrum dönskum bönkum.

Bandaríkin opna í mínus

Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í Bandaríkjunum í dag eftir mikla uppsveiflu í gær. Mikill órói er í röðum fjárfesta sem vonast til þess að Öldungadeild Bandaríkjaþings gefi græna ljósið á björgunaraðgerðir stjórnvalda vestanhafs í dag.

Landsbankinn ekki að bjarga sér frá þroti

Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans segir það fjarri að Landsbankinn hafi selt eignir sínar til að bjarga sér frá þroti. Bankinn hafi styrkst og ætli nú að einbeita sér að almennri bankaþjónustu.

Gjaldþrot og atvinnuleysi blasir við

Við höfum rétt séð toppinn á því sem koma skal og það er alveg ljóst að ríkisvaldið hefur gert alvarleg mistök, segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs. Hann segir gjaldþrot fyrirtækja blasa við og að fjöldi fólks muni missa vinnuna á komandi mánuðum.

Bandaríkjadalur aldrei dýrari

Gengi Bandaríkjadals fór í 112 íslenskar krónur í hádeginu en gaf lítillega eftir nokkrum mínútum síðar. Endi dollarinn yfir 111 krónum í dag hefur hann aldrei verið dýrari.

Þorgerður sagði hugmyndir um þjóðnýtingu makalausar

Fyrir rúmum tveimur mánuðum ræddi Richard Thomas, sérfræðingur hjá greiningardeild fjárfestingarbankans Merill Lynch um stöðuna hjá íslensku bönkunum. Hann gagnrýndi stjórnvöld harðlega og vildi meina að með aðgerðarleysi sínu keyrðu stjórnvöld íslensku bankana í þrot með það að markmiði að taka þá svo aftur í sína eigu. Í fréttum Sjónvarpsins frá 25.júlí segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem þá var starfandi forsætisráðherra ,ummælin makalaus og spyr hvort Thomas þurfi ekki á endurmenntun að halda.

Krónan fallin um 10 prósent á tveimur dögum

Gengi krónunnar hefur fallið um 5,4 prósent í dag og hefur því fallið um 10,2 prósent á tæpum tveimur dögum. Gengisvísitalan stendur í 207 stigum og hefur aldrei verið hærri.

Mesta lækkun úrvalsvísitölunnar á einum ársfjórðungi

Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 22,4% á þriðja ársfjórðungi og kemur sú lækkun í kjölfar 13,3% lækkunar á öðrum fjórðungi ársins. Um er að ræða mestu lækkun sem orðið hefur á einum ársfjórðungi í kauphöllinni.

Gengisvístalan komin í 202 stig

Gengi íslensku krónunnar heldur áfram að hrapa í morgun. Hefur gengið fallið um 2,6% og er gengisvístalan komin í 202 stig.

Straumur kaupir erlenda starfsemi Landsbankans

Straumur og Landsbankinn hafa skrifað undir samkomulag um kaup Straums á meirihluta af erlendri starfsemi Landsbankans á sviði fyrirtækjaráðgjafar og verðbréfamiðlunar fyrir 380 milljónir evra eða sem svarar til 55,4 milljarða kr.

Enn veikist íslenska krónan

Krónan hefur veikst um tæp 0,4 prósent frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag og fór gengisvísitalan í rétt rúm 197,5 stig. Krónan féll um 5,3 prósent í gær. Danska krónan hefur aldrei verið dýrari.

Evrópsk bjartsýni hækkar Kaupþing

Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hefur hækkað um 1,3 prósent í dag. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum það sem af er dags eftir skell víða um heim í gær, að Bandaríkjunum undanskildum.

Milljarðar streyma inn í banka á Írlandi á kostnað breskra banka

Tugir milljarða króna streyma nú inn í banka á Írlandi í framhaldi af því að ríkisstjórn landsins ákvað að tryggja innistæður í bönkum þar án þaks á upphæðinni. Það eru einum breskir bankar sem verða fyrir barðinu á þessu en peningarnir koma af öllu evrusvæðinu.

Ein króna - eitt jen

Japanska jenið kostar nú eina krónu, eftir gengisfall íslensku krónunnar um rúm fimm prósent í gær.

Sjá næstu 50 fréttir