Fitch mælir með enn einni stýrivaxtahækkun 1. október 2008 15:26 Davíð Oddson, seðlabankastjóri. MYND/Stöð 2
Seðlabanki Íslands á að hækka stýrivextina til þess að koma í veg fyrir að krónan veikist meira en orðið er. Þetta segir Paul Rawkins, yfirmaður hjá greiningafyrirtækinu Fitch Ratings í London í viðtali á Bloomberg. Hann segir þetta nauðsynlegt í ljósi þess að krónan hefur veikst á síðustu dögum í kjölfar þess að ríkið gerði yfirtökutilboð í Glitni og lánshæfismat banka og ríkis voru lækkuð. „Með því að hækka vextina á ný gæti Seðlabankinn sett gólf undir Krónuna," segir Rawkins. „Þetta gæti hjálpað til við að vega á móti verðbólguþrýstingi innanlands en þetta gæti einnig flýtt fyrir harðri lendingu í efnahagslífinu." Bloomberg bendir á að krónan hafi veikst um 8,3 prósent gagnvart evru á þeim tíma sem liðinn er frá því tilkynnt var um yfirtöku ríkisins á Glitni. Það hafi aftur orsakað að lánshæfismat allra bankanna var lækkað. Rawkins segir að slæmt ástand krónunnar komi fljótt fram í verðbólgu og því hafi þrýstingur á Seðlabankann aukist. „Þeir gætu þurft að hækka vextina enn á ný." Áætlanir bankans gerðu ráð fyrir því að stýrivextir gætu farið að lækka í mars á næsta ári en Rawkins segist efast um að hægt sé að slá því föstu að vaxtahækkunarferlið hafi stöðvast, í ljósi aðstæðna á fjármálamörkuðum heimsins. „Möguleikar Seðlabankans til þess að byrja að lækka vextina í mars hljóta að vera mjög takmarkaðir," segir hann. Hann bætir því við að þrátt fyrir að bankinn vildi lækka vextina á einhverjum tímapunkti verði hann að huga að utanaðkomandi þáttum. „Bankinn verður að laða til landsins erlent lánsfé." Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður að öllum líkindum tilkynnt þann 6. nóvember næstkomandi.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira