Viðskipti innlent

Moody´s tekur eignasölu Landsbankans inn í lánshæfismat sitt

Moody´s mun taka sölu Landsbankans á erlendum eignum sínum til Straums til greina inn í lánshæfismat sitt á Landsbankanum á næstunni.

Sem kunnugt er af fréttum í gær hefur Moody´s nú lánshæfismat á íslensku bönkunum. þar með Landsbankanum, til athugunar með lækkun í huga.

Í tilkynningu frá Moody´s kemur fram að þeir muni kanna og meta áhrifin af sölu Landsbankans á erlendum eignum sínum og leggja það til grundvallar í mati sínu.

"Moody´s mun meta þessi jákvæðu áhrif á móti áhyggjum af eignastöðu bankans," segir m.a. í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×