Fleiri fréttir

Hagur Apple vænkast

Bandaríski hátækniframleiðandinn Apple hagnaðist um 1,14 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 126 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi. Hann er sá fjórði bókum félagsins. Til samanburðar nam hagnaðurinn 904 milljónum dala á sama tíma í fyrra.

Hagnaður Yahoo dregst verulega saman

Hagnaður bandaríska netleitarfyrirtækisins Yahoo drógust saman um 64 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Fyrirtækið leitar nú leiða til að draga úr rekstrarkostnaði, svo sem með uppsögnum.

Talsvert fall á bandarískum hlutabréfamarkaði

Gengi hlutabréfa féll almennt á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag en fjárfesta þykja greina fá merki um bata í efnahagslífinu þó sumir reikni með mýkri lendingu en búist var við.

Saga Capital bregst við veðkalli - Ákvörðun FME kemur verulega á óvart

Saga Capital hefur í dag orðið við veðkalli Seðlabanka Íslands frá því í gær og lagt fram viðbótarveð í formi reiðufjár og ríkisskuldabréfa í samræmi við reglur Seðlabankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en í henni undrast forstjóri Saga Capital ákvörðun Fjármálaeftirlitsins.

Um 20 milljarða króna viðsnúningur hjá sveitarfélögum vegna lóðaskila

Sveitarfélögin á landinu berjast nú við mikinn vanda í kjölfar efnahagsástandsins í landinu. Sem dæmi má nefna að talið er að endurgreiðsla á lóðum og byggingarrétti muni valda 20 milljarða kr. viðsnúningi í bókhaldi sveitarfélaganna þar sem félögin höfðu áður reiknað með þessu sem tekjum.

Kaupþing segir lífeyriseigur tryggar

Inneign sjóðfélaga í lífeyrisafurðum Kaupþings er aðskilin eignum bankans og ekki er hægt að ráðstafa henni upp í skuldbindingar bankans. Þetta þýðir að eignir sjóðanna eru eignir sjóðfélaga en ekki bankans. Þetta kemur fram í orðsendingu frá Kaupþingi í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir rekstur Kaupþings.

Eimskip hækkaði mest í dag

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu hækkaði um 6,1 prósent í Kauphöllinni í dag. Það er mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi Össur, sem hækkaði um 3,35 prónset, Century Aluminum fór upp um 0,85 prósent, Bakkavör um 0,79 prósent og Færeyjabanki um 0,32 prósent.

Hitaveitugull lagt inn í Sparisjóðinn í Keflavík

Grindavíkurkaupstaður færði í gær 2 milljarða kr. inn á reikning í Sparisjóðnum í Keflavík en bæjarfélagið hefur verið með um 4 milljarða kr. inn á innlánsreikningi í Landsbankanum eftir sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja fyrr á árinu. Víkurfréttir greina frá þessu.

Skilanefndarmenn fá um 265.000 krónur í mánaðarlaun

Nefndarmenn hinna svokölluðu skilanefnda sem falin var stjórn Landsbanka Íslands, Glitnis og Kaupþings fá greiddar rúmlega 265.000 krónur á mánuði fyrir störf sín. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu eru nefndarmenn starfsmenn eftirlitsins samkvæmt tímabundnum ráðningasamningum sem við þá hafa verið gerðir.

Hnútar að leysast í Bretlandi að sögn SÍ

Sá hnútur sem hefur orðið á í greiðsluflæði milli Íslands og Bretlands virðist hafa verið leystur að mestu, ef marka má tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.Bankinn segir að búast megi við að það taki nokkra daga að koma greiðslum í eðlilegt horf.

Krónan veldur usla í netbókunarkerfi SAS

Það er víðar en á Íslandi sem íslenska krónan veldur usla. Þannig segja norrænir miðlar frá því að SAS-flugfélagið hafi ekki getað selt flugmiða frá Íslandi til Noregs að undanförnu vegna bilunar í netbókunarkerfi. Hana má svo rekja til óvissunnar gengi íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum.

Misjöfn staða fjármálafyrirtækja vegna krafna Seðlabankans

Forsvarsmenn SPRON segja félagið hafa átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hafi gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar vegna frétta af því að Seðlabankinn hyggist krefja nokkrar fjármálastofnanur um auknar tryggingar vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta.

VBS vill að staðið verði við gerða samninga vegna kröfu SÍ

VBS fjárfestingarbanki hf (VBS) hefur sent frá sér tilkynningu vegna kröfu Seðlabanka Íslands á hendur fjármálafyrirtækjum um auknar tryggingar. Segir VBS að verði staðið við gerða samninga er eigið fé VBS ekki í hættu vegna þessa. En vanefndir á samningnum af hálfu mótaðila VBS hefðu neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins.

Bati á millibankamarkaði erlendis kemur Íslendingum til góða

Nokkur bati hefur orðið á millibankamörkuðum erlendis síðustu daga og er það til marks um að umfangsmiklar aðgerðir yfirvalda í helstu iðnríkjum til að afstýra alþjóðlegri bankakreppu séu farnar að skila árangri. Þetta kemur lántakendum á Íslandi til góða.

Seðlabankinn mun ekki krefja Byr um auknar tryggingar

Í ljósi umræðna um Sparisjóðabankann (áður Icebank) og önnur fjármálafyrirtæki vill Byr sparisjóður koma því á framfæri, að á undanförnum árum hefur Byr lagt ríka áherslu á sjálfstæði gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum. Öll dagleg uppgjörð og innlend greiðslumiðlun fer nú í gegnum Seðlabanka Íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands.

Atorka hækkar um 80 prósent í afar fáum viðskiptum

Gengi hlutabréfa í Atorku skaust upp um 80 prósent í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma falla erlend félög hratt. Afar lítil viðskipti hafa átt sér stað í Kauphöllinni og skýrir það öfgakenndar sveiflur.

Green hefur enn áhuga á eignum Baugs

Breski auðjöfurinn Philip Green segist enn hafa áhuga á skuldum Baugs en segir ekki víst að samningar náist alveg á næstunni. Þetta er haft eftir honum á fréttavef Breska ríkisútvarpsins.

Sparisjóðir kaupa Glitni Bank í Noregi

Samband sparisjóða í Noregi hefur fest kaup á Glitni Bank í Noregi og er kaupverðið 300 milljónir norskra króna eða sem svarar til 5,1 milljarðs kr.

Asíubréf upp

Hlutabréf hækkuðu á Asíumörkuðum í morgun vegna aukinnar bjartsýni á Wall Street í New York. Flestar Asíuvísitölur hækkuðu og Dow Jones rauk upp í gær í ljósi þess að talið er að bandarísk stjórnvöld muni leggja fram annan hjálparpakka bönkunum til handa.

Þrautaganga Seðlabankans

Seðlabanki Íslands gerði ítrekaðir tilraunir fyrr á þessu ári til að auka gjaldeyrisforða þjóðarinnar án árangurs. Erlendir Seðlabankar töldu íslensku bankana vera of stóra.

Seðlabankinn frestar útgáfu ríkisskuldabréfa

Seðlabankinn ákvað í dag að fresta útgáfu ríkisskuldabréfa sem fyrirhuguð var þann 23. október næstkomandi. Ástæða frestunarinnar er sögð vera „þær sérstöku aðstæður“ sem nú séu uppi á markaði.

Gætu fengið aðgang að samtölum Browns og Darlings

Svo gæti farið að lögmenn Kaupþings í Bretlandi fái aðgang að samtölum Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Alistairs Darlings, fjármálaráðherra landsins, fallist breskir dómstólar á að taka fyrir mál bankans á hendur breskum stjórnvöldum.

Plúsdagur í kauphöllinni

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,8% í dag og endaði í 655 stigum. Er þetta fyrsti jákvæði dagurinn í kauphöllinni í langan tíma.

Íslensk útrás á Azoreyjum

Iceland Drilling (UK) Ltd, dótturfélag Jarðborana, hefur undirritað samning við orkufyrirtækin Sogeo og GeoTerceira á Azoreyjum um borun á rannsóknar- og vinnsluholum háhitasvæðum á eyjunum og verður orkan nýtt til raforkuframleiðslu.

Lán leysa ekki vanda Íslands að fullu

Lán til Íslendinga frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og seðlabönkum ýmissa landa leysa ekki vandamál Íslands að fullu heldur eru einungis lausn á þeirri krísu sem landið er í. Þetta segi Harald Magnus Andreassen, aðalhagfræðingur hjá norska fjármálarfyrirtækinu First Securities.

Olíutunnan stefnir í 50 dollara, OPEC dregur úr framleiðslu

Heimsmarkaðsverð á olíu stefnir nú í 50 dollara á tunnuna miðað við framvirka samninga um afhendingu á olíu í desember n.k.. Búist er við að OPEC, samtök olíuframleiðenda, muni minnka framleiðslu sína til að mæta þessum verðlækkunum.

Jón Þór segir að endanleg upphæð láns liggi ekki fyrir

Endanleg upphæð láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum liggur ekki fyrir. Þetta segir Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra og einn helsti ráðgjafi ráðherra Samfylkingarinnar í efnahagsmálum, í samtali við Vísi.

Óska eftir framlengingu á greiðslustöðvun

Stoðir munu óska eftir greiðslustöðvun til 20. janúar næstkomandi. Beiðnin verður tekin fyrir í dag. Þetta staðfestir Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, í samtali við fréttastofu.

Nýi Kaupþing banki stofnaður

Nýi Kaupþing banki hf. hefur formlega verið stofnaður en skilanefnd hefur unnið að stofnun bankans síðan ljóst var að hún tæki yfir rekstur Kaupþings banka.

Mikil óvissa um þróun langtímavaxta

Mikil óvissa er um þróun langtímavaxta á næstu vikum og mánuðum. Ljóst er að mikið framboð verður af verðtryggðum skuldabréfum með ríkisábyrgð á næstunni vegna endurfjármögnunar íbúðalána bankanna.

Kópavogsbær velur Bakvörð

Kópavogsbær og HugurAx hafa gengið til samstarfs um innleiðingu Kópavogsbæjar á Bakverði, tímaskráningarlausn HugarAx.

Sjá næstu 50 fréttir